Menntamál - 01.12.1966, Blaðsíða 22
228
MENNTAMÁL
kennara til að semja álitsgerðir um gildi ýmissa námsbóka,
sem nú eru við lýði.
— Hefurðu fleiri verkefni með höndum?
— Já, ég vinn t. d. að athugun á skólamálum strjálbýlisins j
í samvinnu við OECD-nefndina, sem fæst við hagræna rann-
sókn íslenzkra menntamála með tilliti til áætlanagerðar.
Helztu vandamálin, sem ég læt mig varða þar, eru jafn-
vægi menntaframboðs í dreifbýli og þéttbýli, stærð dreif-
býlisskóla frá uppeldisfræðilegu sjónarmiði, og loks heima-
vist, heimanakstur og heimanganga, séð frá uppeldis- og
sálfræðilegum sjónarhóli.
— Þig skortir sýnilega ekki verkefni. Ekki geturðu ann-
að öllu þessu einn þíns liðs?
— Starf sem þetta verður aldrei unnið að nokkru veru-
legu gagni af einum manni. Það sem hann getur gert er
fyrst og fremst að skipuleggja starfið og velja verkefnin.
Hér þurfa fleiri að leggja hönd á plóginn — ekki nauðsyn- t
lega menn í föstu starfi til að byrja með, heldur mætti
ráða menn til að sinna afmörkuðum viðfangsefnum, eins
og ég nefndi reyndar áðan.
— Þið eruð þrír, sem berið ábyrgð á þessu starfi, er ekki
svo?
— Jú, ég hef mér til ráðuneytis tvo afbragðsmenn, þá
Jóhann S. Hannesson skólameistara á Laugarvatni og dr.
Wolfgang Edelstein, sem vinnur að menntarannsóknum við
vísindastofnun í Berlín. Ég tel það ómetanlegt, að þessir
menn skuli hafa viljað tengjast rannsóknunum. Hitt er svo
aftur rétt, því miður, að þeir eru báðir störfum hlaðnir
og geta lítið sinnt rannsóknunum nema á sumrin.
—• Hvað geturðu sagt mér um vinnuskilyrði og aðbún-
að? >
— Þau mál hafa nú loksins færzt í viðunandi horf. Eftir
nokkurra mánaða þröng hafa Skólarannsóknirnar fengið
gott húsnæði á efstu hæð í enda húseignarinnar Borgartúni
i