Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1996, Blaðsíða 14

Bjarmi - 01.12.1996, Blaðsíða 14
í BRENNIDEPLI Henning Emil Magnússon María, móðir hans er allir kristnir hylla sem frelsara heims, hefur því miður verið þrætuepli kristinnar kirkju alllengi. Líklega verður ágrein- ingur kaþólskra og mótmælenda augljósastur þegar að Maríu kemur. Kaþólskir hafa eytt of miklu púðri í að lyfta Maríu til himins en mótmælendur hafa farið hina leiðina. Þeir hugsa lítið um hana nema kannski einu sinni á ári þegar þeir stilla henni upp á bak við jötuna á öðru hvetju jólakorti. Hvers á María að gjalda? Misskilningurinn Að misskilja er að leggja skakkan skilning i eitthvað. Skakkur skilningur er oft afleiðing óheilbrigðs áhuga. Eins er það þekkt að áhugaleysi leiðir ekki af sér skoðanaleysi heldur sæg ranghugmynda. Þess vegna er skilningur besta vörnin gegn miskilningi. Skilningur er að botna í ein- hvetju og þegar maður hefur botnað í einhveiju þá hefur maður áttað sig á því, komist á rétta slóð eftir að hafa farið um víðfeðmt haf upplýsinganna og dregið úr sjó sann- leikann. Óheilbrigður áhugi kaþólsku kirkjunnar hefur orðið til þess að María hefur þurft að bera þunga titla, þola undar- legar kenningar og avemaríur. Stundum hefur henni verið eignaður þáttur í hjálpræðisverki sonar sins. Einhverjir Óhtilbrigður áhugi kaþólsku kirkjunnar hefur orðið til þess að María hefur þurft að bera þunga titla, þola undarlegar kemingar og avemaríur. Stundum hefur henni verið eignaður þáttur í hjálprœðisverki sonar síns. hafa litið á hana sem meðalgöngumann milli okkar og Jesú. Það væri einungis til að æra óstöðugan að rifja upp hvað Píus, Leó, Jóhannes Páll eða önnur Péturslíki á páfa- stóli hafa sagt um Maríu. Hún myndi sjálf afþakka öll meðmæli þeirra. Áhugaleysi mótmælenda hefur stundum orðið til þess að María hefur ekki fengið að njóta sannmælis. Henni er sjaldan hampað sem auðmjúkum lærisveini sonar síns sem svaraði kalli Guðs í hlýðni. María í Nýja testamentinu Sú mynd af Maríu, sem mótast eingöngu af hugmyndum manna, hjálpar okkur lítið í leitinni að sannleikanum. Ef við ætlum að átta okkur þá þurfum við að snúa okkur til Maríu Nýja testamentisins. Þar er María sem er laus við seinni tíma viðbætur og skakkan skilning. Maríu eru gerð góð skil í guðspjalli Lúkasar. Hún býr í Nasaret og er föstnuð smiðnum Jósef. Engillinn Gabríel er sendur frá Guði með þau tíðindi að hún muni þunguð verða og son ala sem eigi að heita Jesús. Á ríki Jesú mun enginn endir verða. Svar Maríu við stórtiðindum engilsins var á þessa leið: „Sjá, ég er ambátt Drottins. Verði mér eftir orðum þínum.“ María heimsækir Elísabetu frænku sína sem fyrir heilagan anda mælir: „Hvaðan kemur mér þetta, að móðir Drottins mins kemur til mín?“ Þessi staðfesting verður Maríu tilefni til lofsöngs: „Önd min miklar Drottin, og andi minn gleðst í Guði, frelsara mínum. Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar.“ Atburði jólaguðspjallsins er óþarft að rifja upp en vert er að gefa gaum að því að „María geymdi allt þetta í hjarta sér og hugleiddi það“. Næst vitum við af Mariu þar sem hún týnir Jesú og finnur hann síðan eftir mikla leit. Jesú, sem þá var tólf ára, bar að vera „i húsi föður síns“. 14

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.