Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1996, Blaðsíða 23

Bjarmi - 01.12.1996, Blaðsíða 23
KRISTNIBOÐ Það var stórhátíð og gleðistund í kirkjunni í Álasundi í Noregi þann 31. ágúst sl. þegar Sverrir Jóhannes- son og Sólveig Fure hlutu vígslu til kristniboðsstarfa í Tansaníu. Meðal kirkjugesta voru kristniboðsvinir frá Ellingsðya. Paðan kom Lars Slotsvik skipstjóri. Hann kynntist Ólafi Ólafssyni, afa Sverris, fyrir rúmum áttatíu árum á vitnis- burðastund í Siglufjarðarkirkju og kom honum í tengsl við Norska kristniboðssambandið. Það var greinilegt að heimamenn þekktu söguna og birtist allítarleg grein um þá Lars og Ólaf í norska staðar- blaðinu. Þar er greint frá kristniboðssamstarfi íslendinga og Norðmanna sem um þessar mundir er aðallega í Kenýu og Eþíópiu. Samstarfið hófst með ungum dreng frá íslandi og skipstjóra frá Ellingsöya. Það var hátíð og fögnuður meðal kristniboðsvina á Ellingsöya þegar Herborg og Ólafur komu þangað frá Kína. Áfram segir í blaðagreininni að það sé hátíð í Spjelkavik- kirkju, þegar Sverrir og Sólveig hljóta vígslu, og enn ein blaðsíða skrifuð í íslensk-norska kristniboðssögu. Kristniboðsblaðið Utsyn segir: „Þegar þetta er skrifað, - Síðastliðið vor birtist grein í Utsyn þar sem sagt var frá sjúkrahúsinu í Haydom í Tansaníu og kom fram að frá hausti 1997 mundi vanta lækna til starfa. í blaðagreininni var ágeng spurning um hvort læknar fengju ekki lengur kristniboðsköllun, og okkur varð ljóst, segir Sólveig, að það er núna sem þörf er fyrir okkur í Tansaníu. Sverrir Jóhannesson og Sólveig Fure ásamt börnum sínum Lilju 4 ára og Einari 2 ára. Sverrir Jóhannesson oq Sólveiq Fure hljóta víqslu til kristniboðsstarfa 1996, er það ljóst að góðverkið, sem Lars Slotsvik gerði 1915, þegar hann tók Ólaf tvítugan með sér á „S/S Bard“ til Noregs og veitti honum fjárhagslegan stuðning til mennt- unar, hefur haft stórkostlegri afleiðingar fyrir kristniboðs- málefnið en nokkurn gat órað fyrir á þeim tíma. Ekki bara Ólafur Ólafsson varð kristniboði, heldur einnig tvö barna hans og tvö bamaböm! ísland - Noregur - Kína - Eþíópía - Japan - Tansanía, þannig hefur þetta öfluga kristniboðsstarf náð æ lengra. Drottinn kristniboðsins er mikill í visku sinni og vegir hans eru órannsakanlegir!“ Vígsluþegarnir, Sverrir og Sólveig, fengu kveðjur frá Islandi. íslenskir kristniboðsvinir vilja líta á þau sem sína fulltrúa og fá að fylgjast með starfi þeirra í Tansaníu. Hjónin tjáðu þakklæti fyrir það að íslendingar vilja standa með þeim í bæn og umhyggju. - Kristniboðshefð fjölskyldunnar hefur gert það að verkum, segir Sverrir, að tilhugsunin um kristniboðsstarf hefur ekki verið fjarri. Leiðtogar Norska kristniboðs- sambandsins höfðu fyrir nokkrum árum spurt okkur hjónin hvort við vildum starfa sem kristniboðar. - Okkur fannst nauðsynlegt að afla okkur reynslu og þekkingar og ákváðum að fresta að svara spurningunni, segir Sólveig. - Við vitum ekki hversu langur tími okkur er gefinn til starfa. Hlutverk kristinna manna er að kunngjöra hjálpræði Guðs meðal allra þjóða. Það era forréttindi að fá að vera með og stefna að þessu sameiginlega markmiði: „Heiminn fyrir Krist." Heilbrigðisþjónusta hefur gildi og merkingu í sjálfri sér, segir Sverrir, - og við viljum í okkar starfi í Tansaníu bera Kristi vitni. Við erum smá, heldur Sverrir áfram, - en kristniboðsskipun Jesú hefur sem umgjörð orð um mátt hans og umhyggju og nærveru hans alla daga. Þess vegna föram við út með djörfung og í trausti til Guðs. Sólveig er með háskólapróf í félagsvísindum og kennara- réttindi. Sverrir er læknir. Þau eiga tvö börn, Lilju sem er 4 ára, og Einar sem er 2 ára. Fjölskyldan er núna að læra ensku og hitabeltislæknisfræði í Liverpool í Englandi og um miðjan janúar fara þau til Tansaníu til starfa við Haydom Lutheran Hospital. Meira en ellefu þúsund sjúkl- ingar voru lagðir þar inn á síðasta ári. Sjúkrahúsið er rekið af lútersku kirkjunni í landinu i samstarfi við Norska kristniboðssambandið. Lesendur Bjarma era hvattir til að muna eftir fjölskyld- unni og framgangi Guðs rikis í Tansaníu í bænum sínum. Margrét Jóhannesdóttir 23

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.