Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1996, Blaðsíða 15

Bjarmi - 01.12.1996, Blaðsíða 15
í guðspjalli Jóhannesar finnum við Maríu 1 brúðkaupsveislunni í Kana og undir krossi sonar síns á Golgatahæð. Síðast heyrum við af Maríu í hópi biðjandi lærisveina í upphafs- kafla Postulasögunnar. Drottinn, forða mér frá miskilningi María, ambátt Drottins, svaraði kallinu í fullu trausti til fyrirheita Guðs. Hún hefur án efa hlotið ákúrur frá mönnum og ætli hún hafi ekki stundum undrast yfir hlutverki sínu, að vera móðir Jesú? Henni hefur eflaust fundist erfitt að skilja biðina löngu, eftir því að Jesús hæfi starf sitt. En aldrei möglaði hún. María var Guði þakklát fyrir þá náð sem hann hafði auðsýnt henni. Þegar við lesum um Mariu í Nýja testa- mentinu er erfitt að sjá nokkra stoð fyrir Maríudýrkun og ljóst er að hefð kirkjunnar hefur meira mótunarvald þar en Guðs orð. Eins er undarlegt að menn finni sig knúna til að semja bænir til þessarar hógværu konu. Hin sanna Maríubæn er þvi ef til vill þessi: „Drottinn, forða mér frá misskilningi.“ En hlutverk Maríu er ekki ómerkilegt. Hún var kölluð af Guði til erfiðs verkefnis sem hún leysti í trúmennsku. En hlutverk hennar er lítilsvirt með því að gera henni þann óleik að tilbiðja hana. Það er ekki til betri leið til að gera lítið úr henni. Með þvi er tekin af henni sú gjöf sem hún færði heiminum: að gera Guð vegsamlegan með lífi sínu. „Maria á meira undir því að hafa tekið trú á Jesú heldur en að hafa fætt hann. Móður- hlutverkið hefði verið blessun sneytt ef hún hefði ekki eignast Krist í hjarta sínu á ríkari hátt en undir belti,“ er haft eftir Ágústínusi kirkjuföður. María er kristnum fyrirmynd en ekki dýr- lingur. Hún er annað og meira en konan á jólakortinu. Fordæmi hennar er fólgið í hlýðni, þolinmæði og auðmýkt. Þessir eigin- leikar ættu að vera kristinni kirkju hvatning til eftirbreytni. Þessir kostir Maríu eru þeir sem kristnilif hér á landi þarf mest á að halda til að geta vaxið sem Guðsríki á jörðu.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.