Æskan - 01.11.1975, Page 36
Kastalarnir í N-Luxemborg vekja aðdáun og athygli ferSafólksins.
veitingahúsi í miðbænum. Síðan var næsta verkefni
að kaupa filmur. Eftir að hafa skoðað nægju sína í
Vianden og tekið margar myndir, héldu þau áfram
upp með ánni. Ardennafjöllin eru skógi vaxin upp á
hæstu brúnir og víða voru gulir brúskar í fjalishlíð-
unum. Þetta var fögur sveit fannst börnunum. Næsti
áfangastaður var Clervaux. Þar er klaustrið fræga,
sem Halldór Laxness dvaldi í forðum daga. Kristín
Óskar reyndi árangurslaust aS komast inn í þennan skriSdreka
úr síSari heimsstyrjöldinni. Þau létu sér því nægja aS taka myndir.
ÞAKKIR
Ég var svo hamingjusöm að fá að fara til Luxem-
borgar í boði Æskunnar og Flugleiða hf. í júní s.l.
Ég þakka fyrir þessa góðu daga, sem ég átti með
ferðafélögum mínum um þetta fagra land, þeim
Sveini Sæmundssyni blaðafulltrúa, Grími Engilberts
ritstjóra og ferðafélaga mínum Óskari R. Árnasyni.
Ég sendi mínar bestu óskir til Æskunnar og Flug-
leiða.
Luxemborg er gamalgróiS land og ákaflega fagurt.
Gamlar brýr, ár, kaslalar og tré, allt vakti þetta aS-
dáun þeirra Óskars og Kristínar.
Kristín Bjarnadóttir, Reykjavik.
Dalvík, 6. júní 1975.
Ég vil þakka Æskunni og Flugleiðum hf. fyrir ferð-
ina til Luxemborgar. Ég vil einnig þakka ferðafélög-
um mínum, Sveini Sæmundssyni, Grími Engilberts
34