Æskan

Årgang

Æskan - 01.04.1989, Side 17

Æskan - 01.04.1989, Side 17
Ég fæ alltaf hlaupasting ef ég reyni wtthvað á mig. Viltu svara þessu eins lótt og þú getur því að mér líður svo tlla, Að lokum: Getur þú gefið ungling- Urtt góð ráð til að megra sig? Þakka aíar skemmtilegt blað. Kata Svar: Jóhann Heiðar Jóhannsson lœknir langhlaupari gaf eftirfarandi upp- ‘ysingar: Hlaupasting fœr fólk af tveim ^dvðum. Hann getur stafað af' J’ainpa eða samdrœtti í þind - og J.r íUni 1 vöóvum í brjóstgrind. Ráð J hvoru tveggja er að draga djúpt " aun °S slaka vel á. Magaöndun Q a skjóta maganum fram um leið S andað er að sér - á við þegar ra'nPastingir koma í þind en anda a meira ineð brjóstinu ef stingir eru DrJ<'stgrindarvöðvum. vi) lauPas,<"gur gerir eittkum vart Un s,S hjáfólki, setn er í lélegri þjálf- ’ Og þVl SeiJJ rey,jir um ()J ý gjg yjfi hu'nd^ ^ s,u"di þœr reglu- 0 "Surinn kemur ekki skyndilega han er «á lcera að þekkja hvenœr ns er von. Þá er ráð að anda strax vfrtl en “ður til aðforða því að hann slcetnur. fon)Sla ^ ^ at> S™nna sig er að Sj Usl aukabita og sœtindi og hreyfa c‘ðo n^u^uná‘ó’ til að mynda syitda s 'okka. Ekki aðeins annad. . . nv°ri tveggja! Hlutverk í hvikmynd K*ra Æska! 8 er trvggur lesandi þinn og auð- vitað áskrifandi. Að sjálfsögðu er blaðið misjafnt, stundum leiðinlegt en oftast bráðskemmtilegt. Mér fínnst allt í lagi að „skíra“ erlenda leikara, söngvara og popptónlistar- fólk íslenskum nöfnum. Það stuðlar að því að vernda íslenska tungu. Mig langar til að spyrja nokkurra spurninga: 1. Ég hef áhuga á leiklist. Hvernig getur maður fengið hlutverk í kvik- mynd? 2. Hve gamall þarf maður að vera til að fá inngöngu í leiklistarskóla? 3. Getur Æskan ekki birt á áberandi stað hver svarar næst í þættinum Að- dáendum svarað? Ég mæli með hand- knattleikskappa. 4. Er ekki hægt að hafa fastan íþróttaþátt? G.T.C. Svar: 1. Stöku sinnum er auglýst eftir fólki til að leika í kvikmyndum og sjón- varpsmynduin. K vikmyndageröar- inenn velja síðan úr hópnum eftir reynsluleik og viðtöl. Þetta á einkum við um hlutverk barna og unglinga. Oft eru þó valdir í hlutverk þeir sem iðkað hafa leiklist - í skólum eða með leikfélögum. 2. Leiklistarskóli ríkisins er hinn eini sem veitir starfsmenntun hér á landi. Þar er aldurstakmark 19 ár. Víða er efnt til námskeiða í leiklist og þá ýmist fyrir ákveðna aldurshópa eða fólk á öllum aldri. 3. Um skeið tilkynntum við hverjir svöruðu í þœttinum. Við urðum þá að birta í 1. tbl. hver yrði í 3. tbl. til þess að lesendur hefðu nœgan tíma til að senda spurningar. Undanfarið höfum við ekki kynnt það en stuðst við ábendingar í bréfum (þá fylgja oftast spurningar) og símtölum. Við reynum að hafa í þáttunum þá sem vekja for- vitni lesenda en margt breytist á tveim mánuðum og því höfum við farið þessa leið. 4. íþróttaþáttur var í blaðinu fyrir fá- um árum og ef til vill verður hann tekinn upp að nýju. íþróttamenn eru raunar tíðir gestir á síðum blaðs- ins. . . Vélhjól í rúmi Kæra Æska! Það væri frábærlega til fundið að birta veggmyndir af Kim Wilde eða Lenu Philipson. Ég læt skrýtlu fljóta með þessari ábendingu: Hvers vegna sofa Hafnfirðingar alltaf með vélhjól uppi í rúmi? Af því að þeir nenna ekki að ganga í svefni. . . íris Jóhannsdóttir. Alltaf að minnka Sæl, Æska mín góð! Ég sendi þér skrýtlu: Einu sinni voru margir krakkar að metast um eigur sínar. Þá sagði ung- ur drengur: „Ég á litla kerlingu sem alltaf er að rninnka." Krakkarnir trúðu honum ekki og spurðu mömmu hans hver það væri. Hún sagði þeim að það væri amma hans. . . Margrét Guðmundsdóttir, Iðu 3, Biskupstungum, Árnessýslu.

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.