Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.04.1989, Qupperneq 34

Æskan - 01.04.1989, Qupperneq 34
Kallaður Halli. . . Kæri Æskupóstur! Ég ætla að lýsa draumaprinsinum mínum. Hann er skolhærður með blá augu (held ég). Hann er í 6. Ó.S. í Seljaskóla. Hann spilar í Lúðrasveit Árbæjar og Breiðholts. Hann leikur á trommur og æfði knattspyrnu hjá ÍR. Hann heitir Haraldur og er kallaður Halli. M. Hringdu bara. . . Kæra Æska! Ég þakka fyrir gott blað. Ég sendi þér nokkrar skrýtlur: - Læknir, mér finnst ég vera epli. - Komdu nær. Ég bít ekki! Vitið þið af hverju öskubílunum í Hafnarfirði er ekið geysihratt? Ökumennirnir halda að það verði stolið úr þeim. . . Eitt sinn voru tvær ær á beit. Þá sagði önnur: - Meee. - Ég ætlaði einmitt að fara að segja þetta! ansaði hin. - Heyrðu, Jói! Hvert er símanúmer- ið hjá Magga? - Það man ég ekki. Hringdu bara og spurðu hann. . .! Helga Einarsdóttir 9 ára, Melshorni, Djúpavogi. í StykKishólmi Kæri Æskupóstur! Ég ætla að skrifa um félagslífið í Stykkishólmi. Félagsmiðstöðin er opin alla virka daga - fyrir einn bekk í einu, 6.-10. bekk. Á miðvikudags- og laugardags- kvöldum er hún opin fyrir 7.-10. bekk. Hér er hægt að stunda körfuknatt- leik og frjálsar íþróttir á veturna en á sumrin er iðkuð knattspyrna og frjálsar íþróttir. Hér er líka tónlistarskóli, lúðra- sveit, barnakór, bjöllukór og að sjálf- sögðu barnastúka. Að endingu: Hvað lestu úr skrift- inni og hvað er ég gömul? Ein í Hólminum. Svar: Hvað ég les úr skriftinni fer eftir því hvað þú ert gömul. . . Hve gömul ertu? (Mér dettur í hug að þú sért á tólfta ári, dável dugleg, opinská og ákveðin. . .) Pennavinaklúbbur Kæri Æskupóstur! Undanfarið hefur verið spurt í Æskupóstinum hvar sé hægt að fá er- lenda pennavini. Ég er í fmnskum pennavinaklúbbi og á nokkur eyðu- blöð frá honum þar sem hægt er að panta pennavini frá mörgum löndum. 35 kr. þarf að greiða fyrir hvert heim- ilisfang. Upplýsingar eru skráðar á eyðublað - en ekki má tilgreina færri en fjögur lönd sem óskað er eftir pennavinum í. Ef einhver kærir sig ekki um að eignast pennavin nema í einu landi getur hann látið vini sína fylla út blaðið með sér. Ég er fús að senda þeim sem óska eintak af eyðublaðinu - en á aðeins fá . . . Ég get líka gefið upp heimilis- fang klúbbsins ef einhver vill fá frek- ari upplýsingar en hér eru gefnar. Nanna Jónsdóttir, Rauðumýri 8, 600 Akureyri. Rauðir hundar Ágæta Æska! Ég sendi þér skrýtlu og uppskrift. Tvær litlar telpur komu í heim- sókn til Ingu og hittu pabba hennar. - Má Inga ekki koma út? - Nei, hún er með rauðu hundana. - Hún getur haft þá með sér út. . . Kókos-makkarón ur 1 egg - 80 g sykur - 100 g kókosmjöl Eggið er þeytt vel með sykrinum- Kókosmjölinu blandað saman við- Látið á vel smurða plötu. Bakað við 200 stiga hita í 8-10 mínútur. Eftir að kökurnar eru orðnar kald- ar er gott að dýfa þeim ofan í bráðið súkkulaði. Leikarinn Tom Hulce Æskupóstur! Mig langar til að fá upplýsingar um leikara og ákvað að best væri að skrna Æskunni. Ég veit ekkert um hann annað en það að hann lék Wolfgan® Amadeus Mozart í myndinni Ama deus. Getur þú leyst úr þessu? Leikaraaðdáandi Svar: Það var bandariski leikarinn To"1 Hulce sem brá sér ígervi Amadeusar- Tom leikur einnig ungan, þroskahej an mann í myndinni Nicky og Giu° e þegar þetta er skrifað er verið að syn° hana í kvikmyndaliúsinu Regnboga" um í Reykjavík. Tom (hér eftir Tómas) þykir óiga‘tí,r leikari og fékk tilnefningu til Óskars verðlauna fyrir túlkun sína á " • ' Mozart. Hann hefur einnig fe"8l góða dóma sem Dominick ~ 11 Nicky. Friðjón Guðmundsson sýni"gnr stjóri Háskólabíós útvegaði góðj" lega heimildir um Tómas og kvt myndirnar. Þar er þó ekki getió fœðingardag, hjúskaparstöðu cl . heimilisfang aðdáendaklúbbs I ót"aS^ ar, en það fýsir þig að vita. Lysi"8 ferli hans fylgdi gögnunt um wjnrfmn ar en þar fer tvennum sögum "J J‘ ingarstað hans. í öðrum bœkliug" segir að hann sé fceddur að Hvíta'" '^ (White Water) i Wisconsin en 1 er ncfnd borgin Detroit í ^‘C^‘^afí Þeim ber þó saman um að han" J 34 ÆSKALT

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.