Skírnir - 01.01.1931, Blaðsíða 82
76
Kaupstaðaiferðir 1880—90.
[Skírnir
allir voru afgreiddir eftir röð, nema sérstaklega stæði á,
t. d. sökum veikinda, eða ef einhverra orsaka vegna var
komið framyfir menn; þá gátu þeir komizt að, er þeir
vildu. Þessi bið hét að liggja i ös. Var hún leið áhuga-
mönnum, en flestum var hún hreinir og beinir hátíðar-
dagar, sérstaklega ef vel viðraði og verzlunarhorfur i hag-
stæðara lagi.
Nu voru menn algjörlega lausir við venjulegu og óhjá-
kvæmilegu heimilisstörfin, — um hestana önnuðust hesta-
sveinar verzlunarinnar. Þar að auki lét verzlunin í té bezta
kaffi og vínföng svo að segja eftir hvers manns vild, án
sérstaks endurgjalds. Og svo var nú maturinn, — allt það
bezta, sem til var á heimilunum og eigi var á borðum
nema á stórhátíðum og tyllidögum, svo sem fornkjöt, bæði
reykt og vindþurkað, skammrifsbrækur, bringukollar og mag-
álar, pottbrauð og kökur, ostar af margvíslegri gerð og á
ýmsum aldri, haustfiskur og lúðuriklingur. Og þetta var
ekki étið þurt, því að nóg var af floti og smjöri, nýju,
söltuðu og súru ‘), og þessu ekki klínt á bitann með borð-
hnif, heldur spænt með sterkum sjálfskeiðing upp úr tíu
marka hvalskiðis-öskjum, með fallega útskornu trélokunum.
Og svo þorstadrukkurinn: rauðvínsblanda eða öl, — þar
voru ekki »maðkarnir í mysunni«. Þar að auk nutu margir
hinnar mestu gestrisni á bæjunum í þorpinu. En mest var
þó vert, að nú áttu menn kost á að hitta og ræða við
kunningja sína og vini, sem oft var annars aldrei unnt,
sökum fjarlægðar og samgöngu-erfiðleika. Einnig kynntust
menn þar merkum mönnum, sem gat orðið til gagns og
fróðleiks einkum yngri mönnum, sem af þeim gátu margt
lært með því að veita athygli framkomu þeirra, verzlunar-
aðferð og úttekt.
Þarna voru oft saman komnir hinir merkustu menn, og
1) Súrt smjör, sem fyrrum var mikið notað, sýrðist af sjálfu
sér, ef það var ekki saltað nýtt, en var alls ekki látið i sýru í þeim
tilgangi, eins og nokkrir nú ætla. Að visu var það geymt i sýru
sumstaðar, en einungis til þess að það léttist síður við geymsluna,.
en það þótti óþokkalegt og ekki gert á þrifaheimilum.