Skírnir - 01.01.1931, Blaðsíða 163
Skirnir]
Um Gauk Trandilsson.
157
eysku, er Ólafur feilan átti, sonarsonur Auðar djúpúðgu.
Meðal barna Ólafs feilans og Álfdísar var Þórður gellir,
Þóra, er átti Þorsteinn þorskabítur, faðir Þorgríms, föður
Snorra goða og Þórdís, er átti Þórarinn Ragabróðir lög-
sögumaður. Dóttir Ölvis var Jórunn, er átti Naddoddur
víkingur. Þeirra synir voru Már, faðir Beinis, föður Kolgrímu,
nióður Skeggja, föður Hjalta úr Þjórsárdal og Bröndólfur,
faðir Þorleifs, föður Bröndólfs, föður Þorkels skotakolls,
föður Þórarins, föður Halls í Haukadal og Þorláks, föður
Runólfs, föður Þorláks byskups. Fjöldi merkra manna var
af ætt þessari, þótt eigi verði hér fleiri taldir Dreifðist
hún víða um landið, þótt fjölmennust væri hún í Árnes-
þingi.* 1)
Þorbjörn laxakarl hefir komið út snemma landnáms-
tiðar, eða laust eftir 890, eftir því, sem næst verður kom-
izt.2) Hefir hann þá verið á ungum aldri. Landnám hans
náði yfir Þjórsárdal allan og Gnúpverjahrepp ofan til Kálf-
ár, að sögn Landnámabókar. En líklega er hér eitthvað
blandað málum, því .að svo virðist, sem hann hafi einnig
átt hinn neðra hluta Gnúpverjahvepps, allt til Sandlækjar,
en þar tók við landnám Ólafs tvennumbrúna, er nam Skeið-
in. Þá er þeir frændur Ófeigur grettir og Þormóður skafti
komu til íslands litlu síðar, dvöldust þeir hinn fyrsta vetur
1) Til yfirlits læt eg fylgja töflu þessa:
Ölvir barnakarl
I I i I
Steinólfr Einar Steinmóðr Jórunn
Þorbjörn laxakarl oc Una Salgcrður Hrolleifr Ólafr breiðr Konóil Már Bröndólfr
I | I I I I .1 I I
Otkell Þorgils Þork. trandili Eyjólfur Svertingur I’orni. skafti Álfdís Beinir Þorleífur
I I I I I I I
Gaukr Viga-Glúmr Grimr lögsm. Þórvör Þóra Kolgr. Bröndólfr
(um 935-980) (um 935—1003) (d. 1003) | III
Þóroddr goði Þorgrímr Skeggi Þorkell
I III
Skafti lögsm. Snorri goði Hjalti Þórarinn
(d. 1030) (d. 1031) (álifi 1017) |
Haliur
(996—1089)
2) Sbr. Safn til sögu íslands, I., bls. 289.