Skírnir - 01.01.1931, Blaðsíða 210
204 Eirikur í Bót og Eirikur á Rangá. [Skirnir
frá Vindfelli (7 ára). Oddný á Arnheiðarstöðum og Þórður
áttu heldur ekki nema 1 barn, Árna, 14 ára. En þau höfðu
líka 2 fósturbörn, Jón Eiríksson og Grím Þorleifsson (10
ára), líklega bróðurson Þórðar, og þau voru kölluð rík.
Eiríkur hafði nóg börn eftir, þó að þessi 2 væru tek-
in, og hefir eflaust oft verið erfitt fyrir þeim hjónum, því
að nóg var um harðindi og hallæri á síðasta tug 17. ald-
arinnar, sérstaklega var skæður hinn mikli fellisvetur 1695—
1696. En hann hefir eflaust verið hraustur starfsmaður^
hugprúður og óvílinn, glaðlyndur og vongóður og »háði
svo herkinn stríðið«, eins og séra Þorvaldur sagði.
Honum hefir vafalaust þótt mikils vert að komast að
Rangá, næsta bæ við Bót, þar sem hann var upp alinn,
því að Rangá hefir ætíð reynzt farsældarjörð. Þar hefir
honum að líkindum vegnað vel og áunnið sér vináttu og
virðingu sveitunga sinna.
Þó að eigi sé hægt að kalla það fullsannað, að Eirik-
ur á Rangá sé hinn sami maður sem Eiríkur Hallsson á
Hallgeirsstöðum (1703) og sonur Halls í Bót Eirikssonar,
þá finnast mér líkurnar fyrir því svo sterkar, að ég gæti
eigi verið í neinum vafa um það fyrir mitt leyti.
Því má og enn bæta við, að nöfn sumra barna hans
benda i sömu átt. Arndis heitir dóttir hans og Arndís hét
föðursystir hans, kona Páls á Haugsstöðum á Dal Hösk-
uldssonar frá Heydölum. Önnur hét Kristín og Kristín hét
önnur föðursystir Eiriks, kona séra Sigfúsar Tómassonar í
Hofteigi. Þær eiga báðar heima í sama hrepp sem Eiríkur
á Hallgeirsstöðum og hefir hann líklega haft gott til þeirra
að segja meira eða minna.
Ekki er kunnugt, hvenær Eiríkur á Rangá dó. Sjálfur
segir hann í einni vísu sinni, að hann »lifi á sjötugs aldri«,
þegar hann kveður þá visu. Eiríkur á Hallgeirsstöðum er
talinn 50 ára 1703. Hann hefði þvi verið 60 ára 1713, og
þá verið búinn að vera 10 ár á Rangá, ef hann hefði kom-
ið þangað 1703. Hann hefir því ekki dáið fyrr en eftir þann
tíma, líklega ekki fyrr en 1715 eða síðar. Fyrir 1723 er