Skírnir - 01.01.1931, Blaðsíða 127
Skirnir]
Þjóðabandalagið.
121
lagið. Þeir óttast, að ísland gæti dregizt inn í styrjöld
þeirra vegna eða óþægindi um verzlun sína og viðskifti.
Þessum möguleika verður vitanlega ekki neitað. En lega
landsins er sú, að ísland hlýtur ávallt óbeinlínis að verða
fyrir erfiðleikum, ef t. d. brezka veldið, eða aðrir grannar
þess, dregst í styrjöld og nokkru máli þykir skifta, að hefta
viðskifti milli íslands og andstæðinga Bretaveldis. Ef þetta
stórveldi lendir í ófriði með bandalaginu, þá er ísland sizt
verr farið en ella, þótt það sé í bandalaginu. Þá nýtur það
verndar bandalagsins og Bretlands þar með. En ef Breta-
veldi lenti í ófriði gegn bandalaginu, gerðist friðrofi, þá
niundi Bretaveldi alveg eins geta þröngvað kosti íslands, þó
að það væri ekki í bandalaginu, eins og þótt það væri í
því. Og Bretland gæti vitanlega ráðið því, hvort íslandi
væri unnt að efna skyldur sínar við bandalagið eða ekki.
En bandalagið veit, að enginn verður skuldbundinn um
getu fram, og mundi ekki misvirða við ísland, þótt því
hefði ekki orðið þess kostur, t. d. vegna þess, hve það er
háð brezkum samgöngum og viðskiftum, að fara eftir ákvæð-
um sáttmálans. Bandalagið mundi aldrei gera þá kröfu, að
Island legði sig undir hallæri og hungursneyð til þess að
halda fyrirmæli sáttmálans. Það væri þvert ofan í anda
2. málsgr. 16. gr. hans. En sá er munurinn, að ísland get-
ur, ef það er í bandalaginu, snúið sér til þess og beiðzt
ráða þess og aðstoðar, ef þröngvað er kosti þess af öðrum
nkjum með hverjum hætti, sem það er gert. Og meðal
annars ætti ísland þá heimting á þvi, að bandalagið styddi
það til að varðveita Iand sitt og stjórnmálasjálfstæði. Gæti
þetta atriði að haldi komið við friðarsamninga eftir styrj-
öld, þótt ísland hefði verið tekið af ófriðaraðilja, meðan á
styrjöldinni stóð.
8. í ágreiningsmálum sínum við aðilja utan bandalags-
>ns hafa félagar bandalagsins og nokkrar skyldur samkv.
17. gr. sáttmálans. Ef slík deila kemur upp, þá skal veita
þeim aðilja, sem utan bandalagsins er, kost á því, að sæta
þeim kostum um jöfnun á deilunni, sem félagar banda-
lagsins njóta samkvæmt því, sem sagt var. Ef utanbanda-