Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1918, Page 9
IÐUNN]
Bandalag Norðurlanda.
(Erindi ílutt í Stúdentafélaginu 30. marz 1918.)
Eftir
Holger Wiehe.
Háttvirta samkoma.
Það sem ég ætla að segja yður í kvöld, verða
að eins fáeinar sundurlausar hugleiðingar.
Eins og menn vita, dó gamla sam-norræna hreyf-
ingin drotni sínum 1864, er Norðmenn og Svíar þorðu
ekki að koma Dönum að liði í ófriðnum við P*jóð-
verja. Og síðan hefir margt drifið á daga Norður-
landa, sem var miður vel fallið til þess að glæða
vonir um gott samkomulag landanna í milli. Langar
deilur milli Svía og Norðmanna, loks skilnaður (1905),
og sem afleiðing hans megn fjandskapur af Svía
hálfu í garð Norðmanna og jafnvel Dana. Einnig
mætti í þessu sambandi nefna, að — því miður —
oft hetir einnig verið grunt á því góða milli íslend-
inga og Dana — og er það enn að nokkru leyti.
Þrátt fyrir alt þetta hefir á síðustu árum risið upp
ný sam-norræn hreyting, enda var kali Svia í garð
Norðmanna og Dana farinn að réna all-mikið þegar
fyrir heimsstríðið. — Ungir rtienn um öll Norður-
lönd og af ýmsum stéttum, einkum verkamenn og
stúdentar, hafa tekið höndum saman og stofnað fé-
lög, er starfa að því að efla andlegt samband allra
Norðurlanda, og er Norræna stúdentasambandið, sem
einnig hefir sjálfstæðar íslenzkar deildir bæði í
Reykjavik og Kaupmannahöfn, einn þáttur þessa fé-
lagsskapar. En — brent barn forðast eldinn.
í^essi félög mega ekki fást við pólilik. Menn sáu, að
1*
L