Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1918, Blaðsíða 68
62
Guðm. G. Hárðarson:
1IÐUNN
öfl), hafa margvísleg kemisk áhrif á jarðlögin. Við
þetta hafa bergtegundirnar oft tekið miklum breyt-
ingum frá fyrslu gerð, en sumar leyst í sundur og
orðið að molum og dusli. Hin uppleystu efni hefir
vatnið ilutt með sér og skilið þau svo eftir á öðr-
um stöðum í holum og klettasprungum og myndað
af þeim kristalla og nýar steintegundir. Þannig hefir
vatnið étið járn úr basaltinu og skilið það eftir sem
rauðu á yfirborðinu í mýrum og keldudrögum. Einnig
hefir það unnið kalk úr bergtegundunum og myndað
af því silfurberg og marmara í holum og sprungum
fjallanna vfða um land. Hveravatnið leysir kísil úr
berglögunum á leið sinni upp úr jörðunni og myndar
af því hverahrúður umhveríis hverina. IJegar vatn,
þrungið af slíkuin steinefnum, seillar til langframa
í gegnum leir- og sandlög eða möl, þéttast lög þessi
og verða að leirsteini, sandsteini og völubergi (Konglo-
merat). Þessi kemisku áhrif vatnsins eru mjög marg-
brotin og er því engin leið að lýsa þeim hér út í
æsar. Þau hafa mikla þýðingu í þá ált, að gera jarð-
efnin hæf til næringar jurtagróðrinum, því með þess-
um hætti leysast bergtegundirnar upp og breytast
smám saman í smágervan jarðveg og gróðrarmold.
2. Þegar vatnið frýs í holum og sprunguin klelta
og steina, þenst það út og sprengir út frá sér bergið.
Þannig liefir vatninu sniám saman tekist að losa
kynstrin öll af möl og grjóli úr hinum fornu berg-
lögum.
Vatn það, sem fallið hefir á yfirborð landsins, hefir
leitað niður fjöll og dali áleiðis lil sjávar; hefir það
borið með sér niður á bóginn alt lauslegt, sem orðið
hefir á vegi þess og það hefir ráðið við. Á leið þeirri
safnast það saman í læki og ár, er bera með sér
ógrynni af leir og möl og hnullungum. Með ruðn-
ingi þessum grefur valnið sér djúpa farvegi, er síðan
víkka og verða að dölum. Miklu af framburðinum