Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1934, Page 109
IÐUNN
Hið hempuklædda árásarlið.
103
menn sér yfirleitt enga heildarmynd af hugsunarhætti
kennivaldsins. En nú, þegar hið forkláraða guðsorð
hljómar í tíma og ótíma gegnum útvarp, þegar rit-
höfundar eins og Benjamín Kristjánsson rísa upp til
,þess að opinbera innræti kirkjunnar, þá fjölgar þeim
með degi hverjum, sem sjá, hvert hið þjóðfélagslega
þlutverk kirkjunnar er.
En þegar svo er komið, gripur kirkjan til þess síð-
•asta örþrifaráðs, sem hún á: að þynna út kenningar
sínar, að afneita margs konar kjánalegri vitleysu og
viðbjóðslegum erfikenningum (meyjargetnaður, endur-
lausn o. fl.), að hella úr skálum ivandlætingar yfir
ýmsar svívirðingar, sem fortíð hennar býr yfir, að
gera gælur við vægustu tegundir félagslegrar gagnrýni
— alt saman í þeim fróma tilgangi, að enn um stund
megi henni takast að hafa hemil á stéttviltum múgnum.
En með vaxandi skilningi — með vaxandi manndómi
•og félagsþroska mun öreiga-kynslóð nútímans lærast
að sjá gegnum þetta alt.
Og gagnvart prestunum mun hún koma fram eins
•og Benjamín Kristjánsson vildi vera láta fyrir sjö ár-
um siðan, sem sé taka „þann eina úrkost, sem hún á,
•og sýna þá yfirburði sína með því að snúa við þeim
•bakinu með þegjandi fyrirlitningu."
Febr. 1934.
Skúli Guðjónsson.