Prestafélagsritið - 01.01.1930, Page 229
Prestafélagsritiö.
AÐ HVERJU DEINDISTÆFISTARFJESÚ?
HVER VAR LÍFSHUGSJÓN HANS?
Eftir Sigurð P. Sívertsen.
Tilefnið til ofanritaðra spurninga um það, að hverju æfi-
starf ]esú hafi beinst, hver verið lífshugsjón hans, er nýút-
komin bók eftir séra Gunnar Benediktsson, sem nefnist:
„Æfisaga Jesú frá Nazaret“. Höfundur leitast þar við að
gera sér »heilsteypta mynd af persónu hans og lífshugsjón,
starfsháttum hans og örlögum« (bls. 4). Og hann kemst að
þeirri niðurstöðu, að starf ]esú og lífshugsjón hafi fyrst og
fremst verið stjórnmálalegs, en ekki trúarlegs eðlis. Fyrir
]esú hafi ekki vakað að stofna til nýrra trúarbragða, heldur
hitt að flytja boðskap stéttarbyltingar og koma af stað þjóð-
félagsbyltingu. Um flokk þann, er ]esús myndar um sig, kemst
höfundur svo að orði, að það sé »ekki eitt einasta atriði í
frásögnum samstofna guðspjallanna, sem bendir í þá átt, að
um trúarbragðaflokk hafi verið að ræða. Ekki eitt einasta
atriði í kenningu sinni setur ]esús fram sem trúarskoðun, og
því síður er þar um fastmótað skoðanakerfi að ræða. Enda
verður ekki nein þeirra trúarsetninga, sem kristin kirkja hefir
einkum bygt tilveru sína á, með nokkrum rökum dregin út
úr boðskap ]esú« (bls. 41 n.). En á bls. 55 segir höfundur:
»Um það er ekki að villast, svo sem síðar verða færð rök
að, að fyrir ]esú vakir stéttarbylting. Úr hinu er erfiðara að
skera, hvenær sú hugmynd verður ákveðin hjá honum, að sú
bylting geti ekki gerst smámsaman og á friðsamlegan hátt,
heldur verði nauðsyn að fara leiðir ofbeldisins*. Og höfundur