Æringi - 01.01.1908, Blaðsíða 57
55
í vófu skaltu hans þór halda,
hvenær sem þarf róg að bera.
Ef manni þarftu voða að vinna,
vertu blíður í orði og hóti,
faann þú skalt með gætni ginna
í grenið þarna á Veðramóti.
Fúsa, Dóra, Leifa, Lalla
lostætum með krásum seddu,
rsmærri liðsmenn líka alla
ljúfmensku og krónum gleddu.
Þú skalt láta litla bita
liggja á vegi okkar þjóðar,
og heita þeim, sem þakkir vita
þór og fylgisveizlur góðar.
rStóra bita dönskum drengjum
djarfmannlega bjóða skaltu,
þjóðarbjór í löngum lengjum
til launa, vinur, að þeim lialtu.
»Móðurland« þá mun þór síðar
mildu ljúka upp skauti sinu,
-er að þór steðja óláns hríðar,
og orna sonarbrjósti þínu.
Að símalaunum sjálfsagt færðu
saðning fram á ellidaga,
í embætti þar eflaust nærðu
of aldrei gerir Dönum baga.
Tólf þúsundir tak fyrir starfa,
trygð og fylgi þitt við Dani
»móðurlands« til þjóðarþarfa,
þóttú verðir íslands bani.