Sólöld - 30.09.1918, Síða 7
SÓLÖLD.
5
þjóðarfána. 1 þeim fána er prússneski örninn og
eru litirnir svartir og hvítir að mestu leyti. þetta
var liaft þannig vegna þess að Prússland var
stærsta og mesta konungsríkið sem sameinaðist
þýzka keisaradæminu og hefir svarti örninn verið þar
merki Hohenzoll ættarinnar í fimm hundruð ár, en
sú ætt er konunglega ættin á Prússlandi.
Fáni Austurríkis og Ungverjalands er dæma-
laust skrítinn; er hann með grænum bletti í horninu
að neðan. Löndin hyggja tvær þjóðir en sami
maður stjórnar báðum, hann er nefndur Austurríkis
keisari en konungur U’ngverj'alands og græni blett-
urinn táknar Ungverjaland sem er tiltölulega lítið í
samanburði við Austurríki.
Keisarafánihn á Rússlandi var tví höfðaður örn
á gulum grunni. það er upphaflega komið frá
Grikklandi. Ivan keisari III. kvæntist 1472, og
gekk að eiga dóttur stjórnandans á Grikldandi;
hann tók upp stjórnarmerki hennar. Aðrir rúss-
neskir fánar eru t. d. St.. Andrews fáninn og St.
fíeorge; er sagt að St. Andrews hafi fyrst komið
með kristna trú til Rússlands.
Frakkland hefir sömu liti og England—rauð-
an, hvítan og bláan. Áður höfðu Frakkar fána er
þeir kölluðu “fleur-de-lys,” en nú vita menn ekki
hvað það hefir þýtt; sumir halda að það hafi verið
lilja, aðrir að það hafi verið spjót, en enginn vcit
það með vissu. þegar Napoleon varð keisari var
tekið upp merki hans sem var örn. En þrílit.a
flaggið sem þar er hú hefir verið haft í hundrað ár.
I flaggi Spánar er löng saga. 1 því eru merki
landa sem alls ekki lieyra lengur til Spáni. Spánn.
var voldugt ríki í gamla daga. I flagginu þar er
merki Austurríkis og nokkurs hluta Frakklands og
Sikileyar, Portugals og Belgíu. öll þessi lönd heyrðu
einu sinni til Spáni og ltir þeirra eða merki eru enn
i flagginu.
það flagg sem lengst hefir verið óbreytt er
flagg Dana. Fyrir 700 árúm sýndist konunginum
í Danmörku sem hann sæi krossmark á himni þegar
hann var að berjast og taldi hann það sér sigur
merki; enda vann hann sigur. Ilann tók upp krossinn
sem merki í flagg sitt. þetta flagg er kallað
“Danebrog,” eða flaggið liiminsenda.
Eitt liinna nýjustu þjóðflagga er flaggið á ítálíu.
þegar rómverska veldið molaðist í sundur skiftist
það alt í smá ríki; réði páfinn yfir sumum en harð-
stjórnandi konungar yfir öðrum. Maður sem hét
Yict.or Emmanúel rak þessa harðstjóra alla af stóli
með aðstoð manns sem hét Garibaldi, og sameinuðu
þeir alla Italíu í eina þjóð. Hann var gerður að
konungi og var þá samþykt sameiginlegt flagg fyrir
þjóðina.
Grikkland komst í gamla daga í hendur Tyrkja
og var í þeirra liöndum í 500 ár. Árið 1830 fékk
sú þjóð frelsi. Fyrsti óliáði koungur á Grikklandi
var frá Bavaríu og tók þjóðin upp merki hans.
Til Islands
þó ytri farsæld förlög mín
í faðmi sínum geymdi,
og upp í hæstu sæti sín
mig setti—ef þér ég gleymdi,
þá ríkti eilíft eyðihjarn
í instu veru minni,
]>ví drottinn gæti’ ei blessað barn
sem brigðist móður sinni.
Ég bið þess guð, er gaf mér þig
að geyma í skauti sínu;
ég bið að gæfan geri mig
að góðu barni þínu.
Ég bið að læri þjóðin þín
að þekkja köllun sína.
þig drottinn Ulessi, móðir mín
og mikli framtíð þína.
Sig. Júl. Jóhannesson.
Óskir og athafnir
Eftir Ednu Lehmann.
Ef þú vilt að veröld batni
vinur; ráð skal kenna þér;
hafðu gát á gjörðum þínum,
gerðu alt sem fagurt, er.
Kasta allri eigingirni,
önd að hefja þér er skylt.
Skapað geturðu’ heima hjá þér
himnaríki, ef þú vilt.
Óskir þú að veröld verði
vitrari; það ráð mit.t er
að þú, vinur, viljir byrja
vizku að afla sjálfum þér.
Nota tímann, lærðu að lifa,
lifðu til að nema rétt.
þeim sem öðrum vizku veita
verður sjálfum námið létt.
Óskir þú að heimur hljóti
hærri sælu, vinur minn,
hluttekning og hlýju sýndu
hvar sem liggur vegur þinn.
Vinarorð af einni tungu
oft er fjöldans leiðarsól,
eins og tré af einum plöntuð'
ótal sveitum veita skjól.
Sig. Júl. Jóhannesson.