Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1996, Blaðsíða 37

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1996, Blaðsíða 37
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 37 dætur og dvel ég nú hjá dóttur minni Sesselju Sóleyju að Suðurgötu 16 í Sandgerði. Hinar dætur mínar eru Guðrún Karlotta, Margrét Eiríka og Gotta Asa Ingibjörg, sem er yngst. Eg á Vestur-Stafnesið enn og ek þangað öðru hverju, því ég ek bíl þótt gamall sé orðinn. Eetta er enda ekki langt að fara — um 5-10 mín- útna akstur héðan frá Sandgerði. Þar held ég mig líka löngum að sumrinu. Jafnan var margmennt hjá okkur að Vestur-Stafnesi og varla leið það sumar að ekki væru drengir í sumar- vist hjá okkur. Þeir reru með mér á sjóinn, en allt til 1979 sótti ég sjó á sumrum á trillu sem ég átti og hét „Lundinn". Oft byrjaði ég að róa síð- vetrar eða í apríl.“ Tíðir skipsskaðar „Skipsskaðar og sjóslys voru tíð hér um slóðir á æskuárum mínum og hef ég verið sex til tíu ára þegar breskur togari strandaði hér á Staf- nesrifinu, sem orðið hefur skeinu- hætt mörgum skipum, og minnir mig að þessi togari hafi heitið Admiral Tokyo. Hann strandaði þarna um nótt að vetrarlagi, ég held snemma í febrúar, og veðrið var mjög vont, suðvestan rok og stórbylur. Allir sem vettlingi gátu valdið drifu sig niður að strandstaðnum, en veðrið var svo vont og myrkrið mikið að menn töldu sig rétt hafa séð bregða fyrir ljósi klukkan eitt til tvö um nóttina... Um morguninn var allt um garð gengið, enda feikna mikið flóð og sjór gekk „upp á grös“ eins og sagt var, eða mikið hærra en vant er. Er mér í barnsminni að þegar dagaði var ekkert sjáanlegt eftir af skipinu nema ketillinn. Um borð munu hafa verið þrettán manns, þar á meðal þrettán ára drengur, sonur skipstjórans. Þetta fréttist vegna þess að skipið hafði komið inn til Keflavíkur skömmu áður. Við strákarnir gengum fjöruna þarna í grennd næstu daga og hvar- vetna gat að líta sprek úr brúnni og fleira, en allt sundurkubbað eftir brimganginn. Þó vakti það furðu manna að lífbátinn rak lítt skemmd- an á land norðanvert við þann stað Sigurbjörn Metúsalemsson á yngri árum ásamt konu sinni Júlíu Jónsdóttur. Hún heldur á elstu dóttur þeirra, Guðrúnu Karlottu. þar sem Stafnesvitninn stendur núna. Að vísu var á bátnum gat. En þetta sannaði að áhöfnin hafði kom- ið honum á flot í von um að einhverj- ir fengju bjargast á honum. En eng- inn komst af og ekkert lík rak, enda háttar því svo til þarna við Stafnesrif- ið að þar eru djúpir álar sem skila engu. Fleiri slysum man ég eftir eins og þegar Hafnarfjarðarbáturinn „Ása“ fórst, tveimur eða þremur ár- um eftir að ég byrjaði að róa. í Hala- veðrinu 1925 fórst svo útilegubátur- inn „Sölvi“ þarna. Ekkert lík rak af þessum bátum heldur, enda höfðu menn sjaldnast björgunarbelti. Loks hafði kútter „Sigríður“ strandað þarna nokkrum árum áður, en í góðu veðri og björguðust allir af henni.“ Barið á glugga um nótt „En mesta slysið og það minnis- stæðasta er það þegar togarinn „Jón forseti“ fórst þarna 28. febrúar 1928. Ég frétti þannig af strandinu að um kvöldið hafði ég verið ásamt öðrum manni, sem var útgerðarmaður, á bæ úti í Hvalsneshverfi þar sem systir hans bjó. Við komum seint heim að Litla Bæ og ég var rétt um það bil að sofna þegar bankað er á gluggann: Þar var þá kominn Sigfús heitinn Þorsteinsson frá Hólakoti, en hann hafði orðið fyrstur manna til þess að verða var við strandið. Atvikaðist það þannig að hann heyrði eimpípu- blástur og sá skotið upp neyðarblysi frá Stafnesrifinu. Var þegar farið að vekja upp á næstu bæjum og einnig var maður sendur til Sandgerðis eftir hjálp. Menn hröðuðu sér vitaskuld á strandstaðinn og kom þá í ljós að togarinn, sem menn ekki báru kennsl á í fyrstu, hafði strandað nærri þeim stað þar sem enski togarinn hafði strandað þegar ég var barn, en þó töluvert norðar, nær landi og á tals- vert „betri“ stað, ef svo má segja. Hann hafði strandað á svonefndri Kolaflúð, en sá enski hafði strandað á sjálfum „Rifshausnum“ sem var langtum vonlausari staður. Fyrir inn- an Kolaflúðina er djúpur áll, en við landið klappir og stórgrýtisurð. Veður var þannig að sunnankaldi var á og gekk á með hryðjum. Ekki var viðlit að fara af stað á báti meðan myrkt var, enda fjara í ofanálag og svo aðgrunnt að ekki var viðlit að aðhafast neitt fyrr en birti og byrjaði að falla að. Sæta þurfti lagi því þegar meir félli að vissum við að brimið gerði björgun nær ókleifa. En þegar í birtingu tókum við að setja „Sigur- fara“ niður, en hann stóð uppi í svo- nefndum Skiphólma sem er nokkru fyrir sunnan vitann. Tók það drjúgan tíma.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.