Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1996, Blaðsíða 94

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1996, Blaðsíða 94
94 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ Kútter Sophie Wheatly. oft ein í þær leitarferðir. Fór Jónas stundum með henni og sá hve hún gekk vandvirknislega að leitinni, því að hún skoðaði í hverja klettaskoru, hvert lón og hvern þarabing í fjör- unni. María var roskin kona að aldri, sviphrein og virðuleg, stór og vel vaxin.“ Afdrif Emilie og Sophie Wheatly“ „Óveðrið stóð nær linnulaust næstu nótt. Mörgum hefur þá ekki verið svefnsamt. Óhugur bjó í brjósti allra sem séð höfðu hið hörmulega slys við Viðey og enn voru mörg skip úti sem ekkert hafði spurst til. Af fenginni reynslu vissu menn að þil- skipunum var hætt, ekki síst þeim sem verið höfðu fyrir Reykjanesi. Vonuðust menn eftir því að þau hefðu komist í var við Garðskaga. Nýr dagur reis. Enn var hið versta veður, þótt ofsinn væri ekki jafn mik- ill og daginn áður. Þegar Reykvík- ingar horfðu út til Viðeyjar var þar ekkert að sjá. Óveðrið hafði brotið Ingvar í spón. Um hádegi þennan dag komu nokkur þilskip til Reykjavíkurhafnar og höfðu þær fréttir að færa að veðrið úti fyrir hefði verið afskaplegt daginn áður og um nóttina. Loks hafði frést til allra þilskipanna nema þriggja: Sophiu Wheatly, Emilie og Svans og voru menn mjög uggandi um afdrif þeirra. Til tveggja þeirra fyrrnefndu hafði sést eftir að óveðrið skall á og voru þau þá á leið norður yfir Flóann, en engar spurnir höfðu menn af Svani. Birti því heldur betur yfir mönnum þegar Svanur kom til Reykjavíkur um kvöldið og hafði skipið lent í miklum hrakningum og erfiðleikum. En ekki varð þess langt að bíða að fregnir fengjust af afdrifum þilskips- ins Emilie, sem var í eigu Th. Thor- steinssonar kaupmanns og útgerðar- manns í Reykjavík. Þegar flóabátur- inn Reykjavík kom næst frá Borgarnesi til Reykjavíkur hafði hann meðferðis bréf frá Pétri Þórð- arsyni hreppstjóra í Hraunhreppi þar sem hann skýrði frá að margs konar brak úr þilskipi hefði rekið á fjörur við Akra þar vestra og þar á meðal spýtubrot með skipsnafninu Emilie. Eftir að bréf þetta barst urðu menn enn hræddari um örlög Sophiu Wheatly, enda hafði skipið sést stefna í sömu átt og Emilie. Var Reykjavíkin því fengin til þess að fara strax af stað upp í Borgarnes til þess að láta vita þar að skipsins væri saknað og reyna að fá fréttir um hvort nokkuð hefði fundist við Mýr- ar sem bent gæti til afdrifa skipsins. Reykjavíkin kom samdægurs til baka með óyggjandi sorgarfréttir um afdrif Sophiu Wheatly. Hjá Knarrar- nesi á Mýrum hafði sama daginn og brakið úr Emilie fannst við Akra rek- ið skut skipsins og stóran hluta úr þilfari þess með bitum undir, svo og brak úr skipstjórakáetunni og var nafnspjald skipsins fest þar við.“ Enn liðu mörg ár uns tekið var að hyggja að slysavörnum „Alls fórust 68 menn með þilskip- unum þremur: Ingvari, Emilie og Sophiu Wheatly. Flestir þessara manna voru á besta aldri og skip- stjórar skipanna orðlagðir afla- og dugnaðarmenn. Gífurlegt fjölmenni var við útför- ina í Reykjavík. Öllum verslunum og atvinnufyrirtækjum var lokað meðan á athöfninni stóð og fólk safnaðist saman til þess að sýna hinum látnu virðingu sína. Báðir Reykjavíkur- prestarnir, Ólafur Ólafsson og Jó- hann Þorkelsson önnuðust athöfn- ina, svo og séra Friðrik Friðriksson. Blöðin birtu eftirmæli eftir skipverj- ana og Guðmundur Guðmundsson skólaskáld orti erfiljóð sem enn er í minnum haft og talið meðal bestu kvæða hans. Miklar umræður urðu manna á meðal eftir mannskaðana miklu. Kom víða fram vanmáttug gremja vegna þess hve litlar tilraunir höfðu verið gerðar til þess að bjarga áhöfn- inni af Ingvari. Málið varð til þess að hafist var handa um að safna fé til kaupa á björgunarbáti og tækjum og lögðu einstaklingar fram fé og for- ystukonur ýmissa kvenfélaga efndu til hlutaveltu og hétu að gefa 50 kr. af ágóðanum til kaupa á björgunartækj- um. Aðalhvatamaður að kaupum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.