Eimreiðin - 01.01.1932, Blaðsíða 118
106
KREUTZER-SÓNATAN
eimreiðin
Það var ómögulegt fyrir mig að loka augunum fyrir þessu,
og ég tók út miklar kvalir af því. En það var eins og eitt-
hvert óþekt vald þröngvaði mér gegn vilja mínum til þess að
vera kurteis við hann og vingjarnlegur. Eg átti að vísu enga
ósk heitari en að mega slá hann í rot, en til þess að láta ekki
undan þessari löngun minni, kvaldi ég sjálfan mig til að vera
ástúðlegur í viðmóti við hann. Við kveldborðið veitti ég hon-
um dýrindis vín, ræddi við hann af mikilli alúð, hrósaði fiðlu-
leik hans og bauð honum loks að koma og borða með okkur
næsta sunnudag og gat þess um leið, að ég vonaði að hann
vildi þá spila með konunni minni. Eg kvaðst ætla að bjóða
nokkrum kunningjum mínum, sem væru tónlistarvinir, svo
að þeir fengju þá ánægju að heyra hann spila.
Þannig lauk þessu kveldi.
Posdnyschev hallaði sér aftur á bak í mikilli geðshræringu
og rak upp sitt einkennilega ekkahljóð.
>Það voru harla undarleg áhrif, sem ég varð fyrir í návist
þessa mannsl* tók hann aftur til máls, eftir að hann hafði
jafnað sig dálítið. Fáum dögum seinna var ég að koma heim
af sýningu, geng inn í forstofuna og finn alt í einu einhver
þyngsli fyrir brjóstinu, eins og ég hefði orðið undir þunguw
steini, en get þó ekki gert mér grein fyrir, hvað þetta se.
En um leið og ég gekk um forstofuna hafði ég tekið eftir
einhverju, sem minti mig á hann. En það var ekki fyr en ég
var kominn inn í skrifstofu mína, að það rann upp fyrir mér,
hvað ég hafði orðið var við. Ég fór undir eins aftur fram 1
forstofuna til þess að ganga úr skugga um þetta. Jú, mer
hafði ekki skjátlast. Þarna hékk slagkápa hans. Það var ein
af þessum nýtízku slagkápum, sem jþér kannist við. Þannig
var það jafnan, að ég tók ákaflega nákvæmlega eftir öllu,
sem minti á hann, og 'gerði það an þess ég væri mér þesS
fullkomlega meðvitandi.
Ég spyrst fyrir hjá þjóninum. Jú, fiðluleikarinn er kominn-
Til þess að þurfa ekki að ganga gegnum salinn, fer ég inn 1
barnaherbergið. Þar situr Lísa og les í bók, en andspmms
henni situr barnfóstran með yngsta barnið í keltunni og er
eitthvað að dunda. Dyrnar inn í salinn eru lokaðar. Ég heyr1
reglubundið arpeggio leikið inni í salnum og að einhver talar