Tímarit lögfræðinga - 01.06.1990, Blaðsíða 73
Fyrirlestrar:
Um Luganosamninginn. Fluttur 18. janúar 1989 á fundi Lögmannafélags
íslands.
Evrópskt efnahagssvæði. Fluttur 25. september á fundi í laganefnd Norður-
landaráðs í Osló 25.-26. september 1989.
Dómstólar á þjóðréttarsviði. Fluttur 6. október 1989 á fundi Dómarafélags
íslands.
Um gerðardóma. Fluttur 28. desember 1989 á fundi Dómarafélags íslands
Rannsóknir:
Unnið að rannsóknum í tengslum við lögfræðilega orðabók vegna útgáfu
bókarinnar Lögbókin þín og rannsóknum á evrópurétti.
Þorgeir Örlygsson
Ritstörf:
Þinglýsing kaupsamnings í fasteignakaupum. Tímarit lögfræðinga 39 (1989),
bls. 3-43.
Um hugtakið mynstur. Úlfljótur, tímarit laganema 42 (1989), bls. 211-220.
íslenzkar lagaskilareglur á sviði sifjaréttar. Fyrri hluti. Um stofnun og lok
hjúskapar. Tímarit Háskóla íslands 4, 1 (1989), bls. 99-116.
Fyrirlestrar:
Löggjöf um kerfisbundna skráningu á upplýsingum er varða einkamálefni
manna. Fluttur 30. marz 1989 á fundi Félags áhugamanna um tölvuendurskoðun
(FAT).
Rannsóknir:
Unnið að eftirtöldum verkefnum: athugun á réttarreglum um afleiðingar
mistaka við þinglýsingar, á íslenskum lagaskilareglum á sviði sifjaréttar og
samningu skýringa við einstakar greinar þinglýsingarlaga.
4. VINNSLA LAGASAFNS
Unnið hefur verið að útgáfu Lagasafns og var á árinu ráðinn ritstjóri,
Marteinn Másson lögfræðingur. Jón Sigurgeirsson lögfræðingur hefur auk þess
annast framkvæmdir samkvæmt sérstökum samningi við Dómsmálaráðuneytið,
en hann er starfsmaður SKÝRR. Sigurður Líndal forstöðumaður Lagastofnun-
ar hefur verið til ráðuneytis, en hann er í útgáfustjórn ásamt skrifstofustjórunum
Jóni Thors og Ólafi W. Stefánssyni. Samið hefur verið við prentsmiðjuna
Gutenberg um prentun Lagasafnsins og Bókfell h.f. um bókband. Eru horfur á
að Lagasafnið komi út á vori komanda.
67