Tímarit lögfræðinga - 01.09.1992, Blaðsíða 69
fræðilegan fyrirlestur. Þessari hugmynd er varpað fram til nýrrar stjórnar, til
nánari úrvinnslu.
II. JÓLATRÉSSKEMMTUN
Sú nýbreytni frá síðasta ári að halda jólatréskemmtun fyrir börn og barnabörn
félagsmanna í samvinnu við Lögmannafélag íslands var endurtekin hinn 28.
desember í Átthagasal Hótel Sögu.
III. TÍMARIT LÖGFRÆÐINGA
Útgáfa tímaritsins hefur gengið mjög vel undir ritstjórn þeirra Friðgeirs
Björnssonar yfirborgardómara og Steingríms Gauts Kristjánssonar borgardóm-
ara. Stjórnin þakkar þeim góð störf og væntir þess að fá að njóta starfa þeirra
áfram. Erla S. Árnadóttir hefur annast framkvæmdastjórn tímaritsins af hálfu
stjórnarinnar og unnið þar mikið og gott starf. Fjárhagur tímaritsins hefur
batnað svo að tekin var upp sú nýbreyni að ráði ritstjóranna að greiða ritlaun
fyrir greinar. Ákveðið var að miða upphaf greiðslu við árgang 1990. Er þar ekki
um stóra fjárhæð að ræða, en hún gerir það þó að verkum að þeir sem leggja á sig
vinnu við að skrifa í ritið þurfa ekki á sama tíma að leggja út fyrir áskriftinni.
IV. STJÓRNARFUNDIR
Stjórnarfundir voru alls 15. Mikið starf var unnið að auki á milli funda vegna
þeirra margvíslegu verkefna, sem leysa þarf. Þegar hefur verið getið um hið
mikla starf Erlu S. Árnadóttur við málefni tímaritsins. Dögg Pálsdóttir gjaldkeri
félagsins sá um fjármál og hafði umsjón með færslu bókhalds, sem framkvæmda-
stjóri tók nú að sér. Ingvar J. Rögnvaldsson ritari sá um ritstörfin og Skúli
Guðmundsson varaformaður stjórnaði nefnd þeirri er sá um undirbúning
málþings. Þau Dögg og Skúli unnu auk þess mikið starf í ritnefnd Lögfræðinga-
tals, sem getið er hér að neðan.
V. FRAMKVÆMDASTJÓRASKIPTI
Hilmar Vilhjálmsson framkvæmdastjóri tók við nýju fullu starfi á árinu, og
baðst því lausnar frá störfum vegna mikilla anna. Hann lauk sínum störfum í
þágu félagsins, sem voru umfangsmikil, þar sem hann tók að sér færslu bókhalds
félagsins auk bókhalds tímaritsins og þeirra starfa sem hann hafði áður haft.
Stjórnin þakkar honum vel unnin störf og óskar honum góðs gengis í nýjum
störfum.
Lögmannafélag íslands hefur látið félaginu í té endurgjaldslaust skrifstofuað-
stöðu í húsi sínu að Álftamýri 9. Breyting varð á þeirri aðstöðu á árinu, þegar
lögmannafélagið þurfti á húsnæðinu að halda vegna ritarastarfa. Stjórn lög-
147