Tímarit lögfræðinga - 01.09.1992, Blaðsíða 68
6. Hinn 19. mars flutti dr. Gaukur Jörundsson framsögu um efnið „Störf
umboðsmanns Alþingis“. Fundargestir voru 37.
7. Hinn 11. maí var haldinn hádegisverðarfundur. Þar flutti Jón Búi Guð-
laugsson verkfræðingur framsögu um efnið „Tölvumál og upplýsingatækni sem
sérstaklega varðar starfssvið sérfræðinga eins og lögfræðinga“. Fundargestir
voru 23.
Almennir fundir voru að venju haldnir í Lögbergi, nema aðventufundurinn,
sem haldinn var í Kornhlöðunni í Lækjarbrekku, og fundurinn um störf
umboðsmanns Alþingis, sem haldinn var í fundarsal Hótel Sögu. Aðalfundurinn
var haldinn að Holiday Inn og hádegisverðarfundurinn var haldinn í Kornhlöð-
unni.
8. Hið árlega málþing félagsins var haldið síðasta laugardaginn í september,
hinn 28. september 1991, og stóð frá kl. 13.00 til 17.30, þegar léttar veitingar
voru reiddarfram. Málþingið var haldið að Borgartúni 6 um efnið „ Framkvæmd
aðskilnaðar dómsvalds og umboðsvalds í héraði“. Ari Edwald aðstoðarmaður
dómsmálaráðherra ávarpaði þingið í fjarveru ráðherra, en fundarstjóri var
Forsteinn Geirsson ráðuneytisstjóri. Framsögumenn voru Markús Sigurbjörns-
son prófessor, Þorleifur Pálsson skrifstofustjóri, Valtýr Sigurðsson borgarfó-
geti, Rúnar Guðjónsson sýslumaður, Þorsteinn A. Jónsson deildarstjóri, Garð-
ar Garðarsson hrl. og Björg Thorarensen lögfræðingur.
Þátttaka sló öll met, en þátttakendur urðu alls 325. Skúli Guðmundsson
varaformaður félagsins hafði sem áður forystu fyrir undirbúningsnefnd, sem í
voru Dögg Pálsdóttir og Valtýr Sigurðsson. Markús Sigurbjörnsson prófessor
var þeim til halds og trausts við undirbúninginn. Þegar á hólminn kom og hinn
mikli fjöldi streymdi á staðinn var það örugg leiðsögn varaformanns yfir
dugmiklu starfsfólki staðarins, sem kom því til leiðar að allir fengu sæti, en þá
höfðu allir lausir stólar hússins verið bornir í sal. Þegar kom að hinum léttu
veitingum í lokin tilkynnti fundarstjóri, að dómsmálaráðherra byði þingheimi
þær veitingar sem fljótandi væru, og þökkuðu félagsmenn þessa rausnarlegu gjöf
og hlýhug til félagsins.
Bókaðir fundarmenn voru alls 615, að málþinginu meðtöldu. Að því frátöldu
voru að meðaltali 41 á almennum félagsfundum.
Stjórnin flytur þakkir ölllum þeim sem fluttu erindi á fundum félagsins og
lögðu á sig vinnu í þágu félagsmanna og lögfræðinnar í landinu.
Á fundum stjórnar hefur oft verið rætt um fyrirkomulag fundanna, stað, stund
og fundarform. Þór Vilhjálmsson hæstaréttardómari hefur komið þeirri hug-
mynd á framfæri að reyna mætti nýtt fundarform, til viðbótar hinu hefðbundna.
Það væri á þá leið að tekið væri fyrir hitamál eða deilumál sem væri ofarlega á
baugi, og deilt um það af fundarmönnum, sem komnir væru gagngert í því skyni
að leggja orð í belg að loknu stuttu inngangserindi, fremur en að hlusta á
146