Tímarit lögfræðinga - 01.09.1992, Blaðsíða 62
Páll Skúlason:
LAGABÓKMENNTIR
Lagasafnið 1991
Dóms-og kirkjumálaráðuneytið
Reykjavík 1991
Engin bók er hagnýtari þeim sem fæst við lög og lagaframkvæmd en
Lagasafnið, sem út hefur komið í ýmsum myndurn allt frá því fyrir aldamót. Nú
er komin út ný útgáfa þessa merka ritverks og verður hún gerð hér að
umtalsefni.
í formála segir að undirbúningurverksinshafi byrjað á árinu 1986, þ.e. 3 árum
eftir að næsta lagasafn á undan kom út. Ekki er ólíklegt að stefnt hafi verið að því
að koma lagasafni út 1989, á fimm ára afmæli hins gamla enda var Lagasafnið
1983 á tölvudiski og átti því að vera auðvelt að halda textanum réttum í takt við
löggjöfina eins og hún var á hverjum tíma. Ef það hefur verið ætlunin, hefur
einhver seinagangur orðið á framvindu málsins, því að það er ekki fyrr en í ágúst
1989 að sérstökum starfsmanni, Marteini Mássyni lögfræðingi, er falin umsjá
verksins og lagasafnið kemur svo út eftir áramót 1992 eins og áður segir.
Með Lagasafninu 1983 varð nokkur breyting á útgáfu og uppsetningu ritsins.
Með bréfi Vilmundar Gylfasonar, þáverandi dómsmálaráðherra, var Laga-
stofnun Háskóla íslands falið að annast útgáfuna. Mun sú stofnun hafa haft veg
og vanda af verkinu, í nánu samráði við dómsmálaráðuneytið þó. Björn Þ.
Guðmundsson, Friðrik Ólafsson og Ragnhildur Helgadóttir standa á titilblaði
sem útgefendur verksins en Friðrik ritstýrði því yfir síðasta og erfiðasta hjallann.
Sú breyting varð á efnismeðferð, að felldar voru niður tilvísanir í dóma en
140