Tímarit lögfræðinga - 01.12.1998, Blaðsíða 9
Þessi mynd er að öllum líkindumfrá lögfrœðingaþinginu 1927þótt ekki séfull vissafyrir
því. Fremsta röð: Olafur Lárusson, Björgvin Vigfússon, Magnús Jónsson, Jóhannes Jó-
hannesson, Lárus H. Bjarnason, Jón Sveinbjörnsson, Eggert Briem, Páll V. Bjamason,
Steindór Gunnlaugsson og Gunnar Sigurðsson frá Selalæk. Miðröð: Símon Þórðarson,
Valtýr Blöndal, Gunnar E. Benediktsson, Stefán Jóh. Stefánsson, Þórður Eyjólfsson,
óþekktur, Finnur Einarsson (var ekki lögfr.), Vigfús Einarsson, Gunnlaugur Briem, Sig-
urður Grímsson, Jón Hallvarðsson og Guðmundur Ólafsson. Aftasta röð: Magnús Gísla-
son, Stefán Stefánsson, Tómas Jónsson, Isleifur Árnason, Gústav Jónasson, Theodór B.
Líndal og Thor Thors.
lands og starfar það enn eins og flestum lögfræðingum ætti að vera kunnugt.
Einnig munu hafa starfað um lrkt leyti félag fulltrúa héraðsdómara,8 félag stjóm-
arráðsfulltrúa og félag hæstaréttarlögmanna. Þessi félög störfuðu fyrst og fremst
sem hagsmunafélög þeirra hópa sem þeim tilheyrðu þótt sum hafi að einhverju
marki sinnt almennum menningarmálum lögfræðinga.9 Þá má nefna að Sakfræð-
ingafélag íslands var stofnað 17. nóvember 1949 og starfar enn. Það félag var þó
ekki einskorðað við lögfræðinga. Þá störfuðu á íslandi tvær deildir úr norrænum
lögfræðingasamtökum, íslandsdeild norrænna stjómsýslumanna og íslandsdeild
norrænu lagamannasamtakanna. Síðamefnda félagið hafði aðallega beitt sér fyrir
þátttöku íslenskra lögfræðinga í samstarfi norrænna lögfræðinga og þá einkum
með þátttöku þeirra í norrænu lögfræðingamótunum. Það var sammerkt öllum
þessum sérfélögum að þau sinntu afmörkuðum verkefnum, en síður málefnum
sem snertu lögfræðingastéttina í heild. Þá vom allmargir íslenskir lögfræðingar
ekki tengdir neinu þessara félaga eða samtaka. Fmmkvöðlar Lögfræðingafélags
íslands töldu brýna þörf á að bæta þar úr.
9 Ármann Snævarr: „Við stofnun Lögfræðingafélags íslands hinn 1. apríl 1958“. Tímarit lög-
fræðinga 1958, bls. 29-35.
261