Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1998, Blaðsíða 81

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1998, Blaðsíða 81
það almennt ekki viðbótarskilyrði riftunar, t.d. samkvæmt kpl., að kröfuhafi hafi sannanlega skorað á skuldara að efna samninginn. Fræðimenn hafa bent á, að framangreind meginregla byggi á svo föstum grunni, að ekki verði talið á grund- velli einstakra sérlagaákvæða, sem ganga í gagnstæða átt, að áskorun verði almennt gerð að viðbótarskilyrði fyrir rifmn. Sem dæmi hefur verið nefnt, að kpl. geri það ekki að skilyrði riftunar, að kröfuhafi minni skuldara á efndirnar.60 Frá þeirri meginreglu, að ekki sé þörf áskorunar áður en vanefndaúrræðum verður beitt, eru ýmsar undantekningar í íslenskum rétti. Slíkar undantekningar geta stuðst við ákvæði settra laga. Þannig skal samkvæmt 21. og 26. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins veita opinberum starfs- manni áminningu og gefa honum kost á að bæta ráð sitt, áður en honum er veitt lausn um stundarsakir samkvæmt því lagaákvæði. Er sambærileg regla almennt talin gilda í vinnuréttarsamböndum, þ.e. að brotlegur starfsmaður eigi rétt á áminnlngu, áður en til fyrirvaralausrar uppsagnar kemur.61 Sjá H 1951 197 og H 1996 605. Af öðrum lagaákvæðum má nefna 17. gr. hlutafélagalaga. nr. 2/1995, þar sem ræðir um það tilvik, þegar áskrifandi hlutafjár greiðir ekki framlag sitt á gjalddaga. Er þá heimilt að selja hlut öðrum, en „... jafnan skal þó, áður en hlutir eru afhentir öðrum, veita áskrifanda 4 vikna frest til að koma málum sínum í rétt horf...“ eins og segir í því ákvæði. Þá má geta ákvæðis 1. tl. 1. mgr. 61. gr. húsaleigul., þar sem áskorun leigusala til leigutaka um greiðslu húsaleigu er forsenda riftunar af hálfu leigusala, og samkvæmt 4. tl. 60. gr. sömu laga er það skilyrði riftunar af hálfu leigutaka samkvæmt þeim tölulið, að leigjandi hafi skorað á leigusala að bæta úr vanefndum og gefið honum sanngjaman frest í því skyni, sbr. H 1995 2016. í 1. mgr. 9. gr. svl. nr. 75/1997 er í 9. gr. fjallað um heimild til eindögunar veðkröfu, þótt ekki sé kominn gjalddagi hennar. Meðal atvika, sem heimila slíka eindögun, er það, þegar eigandi eða veðsali misnotar í verulegum atriðum umráðarétt sinn yfir veðinu eða vanefnir með öðmm hætti verulega skyldur sínar samkvæmt 7. gr. í 2. mgr. 9. gr. kemur fram, að áður en eindögunar verður krafist samkvæmt þessu ákvæði, skal veðhafi með hæfileg- um fresti gera eiganda eða veðsala viðvart og gefa þeim kost á að efna skyldur sínar réttilega, nema því aðeins að frestur geti leitt til tjóns. Þá getur undantekning frá meginreglunni byggst á viðskiptavenju, þ.e. að kröfuhafa beri samkvæmt venju í skiptum aðila eða venju í tilteknum viðskipt- um að skora á skuldara að efna skyldur sínar áður en til riftunar eða beitingar annarra vanefndaúrræða kemur. í samningi aðila kann gagngert að vera ákvæði um áminningu sem undan- fara riftunar, sbr. H 1987 1690, og ber þá við það að miða. Staðlaðir samnings- skilmálar geta t.d. gengið út frá slíku, sbr. t.d. gr. 25.5. í ÍST. 30. í því ákvæði 60 Sjá t.d. Bernhard Gomard: Ydelsen, bls. 130. 61 Sjá nánar Bernhard Gomard: Ydelsen, bls. 131; Arnmundur Backman og Gunnar Eydal: Vinnuréttur, bls. 173. 333
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.