Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1933, Blaðsíða 82
78
röskunar efnis, enda skal þinginu skýrt frá þesskonar brej't-
ingum.
IV. Verkahringur þingsins. 1. 1 sáttmálanum og annarstaðar
eru talin nokkur mál, sem þingið eitt á að ráða til lykta. Þau
eru þessi:
a. Þingið tekur nýja íelaga í bandalagið, 2. mgr. 1. gr. sm.
b. Það afgreiðir frumvörp til breytinga á sáttmálanum, 1.
mgr. 26. gr. sjn.
c. Tekur þátt í ákvörðun á tölu föstu og lausu sætanna i ráð-
inu, kýs i lausu sætin og setur reglur um kjörtímabil og
endurkjör i þau, 1. og' 2. mgr. 4. gr. sm.
d. Samþykkir ráðningu ráðsins áframkvæmdarstjórabanda-
lagsins, 2. mgr. 6. gr. sm.
e. Ákveður tillags-einingar hvers félaga til bandalagsins, 5.
mgr. 6. gr. sm. Samkvæmt ályktun 17. des. 1920 ákveður
þingið fjárhagsáætlun bandalagsins og úrskurðar reikn-
inga þess.
f. Samkvæmt skipulagsskrá Haagdómsins 13. des. 1920 vel-
ur þingið dómendur í dóminn, ásamt ráðinu. Þingið getur
og leitað álits dómsins samkvæmt 14. gr. sm.
g. Þingið fer með deilumál milli félaga bandalagsins sam-
kvæ.mt 9. og 10. mgr. 15. gr. sm., sbr. og 17. gr. hans.
h. Þingið getur tekið til meðferðar milliríkjasamninga, sem
þykja stofna friði milli ríkja í hættu, svo og' livert það á-
stand, sem slíka verkun kann að liafa, 19. gr. sm.
i. Þingið setur sér þingsköp, og getur því einnig breytt þeim.
Það úrskurðar sjálft eða forseti þess öll atriði, er þing-
haldið varða, innan takmarka sáttmálans og þingskap-
anna, sbr. 28. gr. þingsk. Það hefur og sett reglur um
starfsmenn skrifstofunnar (Sjá 13. gr. III.).
2. Þessi talning er alls ekki tæmandi. I 3. mgr. 3. gr. sm. er
almenn regla um valdsvið þingsins. Samkvæmt henni getur
það farið með öll mál, sem falla innan verkahrings Þjóða-
bandalagsins eða varða frið milli ríkja (peace of the world).
Sama regla orðrétt, að breyttu breytanda, er i 4. mgr. 4. gr.
um starfsvið ráðsins.
Greiningin milli „málefna, er falla innan verkahrings
Þjóðabandalagsins“ og „málefna, er varða frið milli ríkja“
er í rauninni villandi, því að hún gefur í skyn, að friðarmál-
in falli ekki innan verkahrings bandalagsins. Þau eru einmitt
aðalverkefni þess, eins og bæði sést á formála sáttmálans,
upphafi XIII. kafla Yers. samningins og' 11. gr. sm„ auk fjöl-