Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1933, Blaðsíða 104
100
irlaun. Allir, sem slíkar kröfur telja sig hafa, geta borið þær
undir dóminn. Afl atkvæða ræður úrslitum, og úrlausnum
dómsins verður ekki áfrýjað.
IV. 1. Starfsmönnum skrifstofu Þjóðabandalagsins er skipt
í þrjár deildir (divisions):
Fyrstci deitd, sem aftur er skipt í tvær undirdeildir:
a-deild: í benni eru: Framkvæmdarstóri, nú tveir vara-
framkvæmdarstjórar (deputjr secretaries-general) og undir-
framkvæmdarstjórar (undir-secretaries-general), 10 deildar-
stjórar (directors of sections) og einn féliirðir (treasurer).
Þessir starfsmenn eru einu nafni nefndir aðalstjórn skrif-
stofunnar. Vara- og undirframkvæmdarstjórarnir bafa hver
60 þús. gullfranka í árslaun, en hinir 41 þúsund.
b-deild: í henni eru 180 starfsmenn með frá því lægst
12 þús. gullfranka og hæst 28 þús. árslaunum, ýmsir skrif-
stofustjórar, fulltrúar, ráðunautar, túlkar og skjalaþýðend-
ur o. s. frv.
Önnur deild: Hér eru ýmsir lægri háttar starfsmenn, skrif-
stofumenn, hraðritarar o. s. frv., með frá 3500 gullfranka
byrjunarlaunum og upp í 16250 gullfranka.
Þriðja deild: Hér koma lægstu starfsmennirnir, svo sem
skrifarar, fjölritarar, símamenn, sendihoðar, dvraverðir o.s.
frv., með frá 3000 gullfranka byrjunarlaunum og upp í 9000
gullfranka á ári.
Akveðið liefur verið að lækka laun starfsmannanna, annara
en framkvæmdarstjóranna, um 10% um 2 ár frá 15. sept.
1931 að telja. Risnufé liefur yfirleitt verið lækkað.
V. Skrifstofa Þjóðahandalagsins skiptist i margar deildir
eftir störfum þeim, sem þar eru unnin. Yfirlit vfir deildir og
starfsgreinir skrifstofunnar gefur bezta hugmynd um það,
livert bákn hún er orðin, og liversu margþætt og margskonar
störf Þjóðabandalagið hefir með höndum:
A. Skrifstofa framkvæmdarstjórans (bureau du secrétaire
général). Þar starfa 5 menn alls, auk framkvæmdarstjórans.
Skrifstofan aðstoðar framkvæmdarstjórann um þau störf,
sem honum eru sérstaklega falin.
B. Skrifstofa lögfræðiráðunauts Þjóðabandalagsius (bureau
du conseiller juridique). Auk lögfræðiráðunautsins, sem stýrir
skrifstofunni, eru þar 19 æðri og lægri starfsmenn. Skrifstof-
an á að veita framkvæmdarstjóra, laganefnd þingsins og ráð-
inu lögfræðilegar leiðheiningar og sérfræðinga í lagaefnum,
svo og öðrum nefndum, sem starfa að lagaefnum, svo sem