Heimir : söngmálablað - 01.01.1937, Blaðsíða 17

Heimir : söngmálablað - 01.01.1937, Blaðsíða 17
Hvernig á að œfa karlakórslag? 11 og standa saman í i'öslu sambandi. Milliraddirnar, annan tenór og fyrsta bassa, á að æfa hvora fyrir sig fyrst, og síðan fcr vel á að æfa fyrsta og annan bassa saraan, þannig að siðai-nefnd rödd sé veikt sungin. Er að því nokkur stuðningur. Annan tenór, sem er jafnan erfiðasta röddin, er bezl að æl'a með báðum bassaröddunum veikt sungnum. Þessi samæfing raddanna er lieppileg, ef söngstjórinn gætir þess, að spila röddina, sem liann er að æfa, sterkara en hinar raddirnar, svo auðvelt sé að greina hana úr. Meðal annara orða. Á söngstjóranáinskeiðum hafa menn haft orð á því við mig, að margir kórar eigi erfið- ara með sönginn, þegar söngstjórinn aðeins slær aðal- hljóðfallið i laginu, en „slær ekki inn“ raddirnar. Þetta stafar af vanþekkingu á hrynjanda raddarinnar. Þess- vegna á ávallt að æí'a rödd þannig, að aðalhljóðfallið sé skýrt dregið fram um leið, 1, 2, 3, 4, o. s. frv. Og þess- vegna á söngstjórinn að slá laklinn fyrir hverja rödd um sig, svo söngmennirnir geli lært af taktslögunum að falla inn í sönginn á réttum stöðum. Enginn kór getur sungið hljóðfallsbundið, nema að söngmenn i öllum röddum þekki aðalhrynjandann i laginu. Og þetta lærist seint, ef söngstjórinn slær ekki aðalhljóðfallið. Það er einmitt á því, sem mismunandi nótnagildi í röddunum er byggt. Það væri æskilegt, að allir söngstjórar gætu skilið þetta. En því miður lialda margir söngstjórar að allskonar pat út í loftið og liandatilburðir við bvert atkvæði sé hin full- konmasta söngstjórn. Þegar vel er gáð að, þá er þetta þó ekki annað en veik tilraun til þess að sýnast frumlegur. Betra væri að söngurinn vrði aðalatriðið og söngstjórinn sjálfur aukaatriðið. Ég neita því ekki, að stundum verður að gefa rödd bendingu um, að hún eigi að falla inn í, en aðalhljóðfallið verður ávallt að koma skýrt fram í takt- slættinum. Til þess nolar söngstjórinn hægri hendina, en vinstri hendina nolar hann lil þess að ná fram styrkleika- verkunum og blæbrigðum í söngnum, með bendingum, svo lítið ber á.

x

Heimir : söngmálablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir : söngmálablað
https://timarit.is/publication/601

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.