Alþýðumaðurinn - 31.05.1967, Blaðsíða 7
- Hevrt, spurt...
(Framhald af blaðsíðu 4)
ELDSVOÐAR hafa verið tíðir
á Akureyri nú að undan-'-
förnu, og margar fjölskyldur
hafa misst heimili sín og búslóð.
Síðasti bruninn var að Gránu-
félagsgötu 33. Þar voru 8 manns
í heimili, hjón með 5 börn og
öldruð kona. Innbú og hús nær
gjöreyöislagðist, og er því tjón-
ið tilfinnanlegt. Hin aldraða
kona heitir Hjördís Hinriksen,
norsk að ætt og góður íslend-
ingur. AM veit að ekki barf að
kynna Hjördísi fyrir Akureyr-
ingum, því að hún hefur kynnt
sig sjálf og það af góðu einu,
sýnt hetjuskap og dugnað og
eigi æðrast þó að oft hafi í móti
blásið. Urn leið og AM sendir
vinkonu sinni Hjördísi beztu
kveðjur, vonar blaðið að marg-
ir Akureyringar sýni henni að
liún eigi marga vini, með því
að veita henni drengilegan
stuðning, og þakka henni með
því að örlög leiddu hana frá
Noregi til Akureyrar. Það er
auður hverjum bæ að eiga
sómakonur sem Hjördísi.
BÓNDI skrifar: Fyrir stuttu
var sagt frá því í Degi að
Búnaðarsamband Suðurlands
myndi verðlauna bændur þar
syðra er sköruðu fram úr með
snyrtilegri umgengni á búum
sínum og munu fyrstu verð-
laun í þessu sambandi verða
veitt á komandi hausti. Mér
líkar þessi hugmynd mjög vel
og ættu eyfirzkir bændur að
feta í fótspor bræðra sinna
syðra, og skora ég alveg sérstak
lega á þá Stefán í Auðbrekku og
Hjalta í Ytra-Garðshorni að
taka þetta mál upp á arma sína,
þar sem þeir eru framámenn
eyfirzkra bænda í núverandi
kosningabaráttu, og tel ég ugg-
laust að með snyrtilegri um-
gengni á jörðum sínum bæði
innan og utan dyra, hafi þeir
m. a. ásamt öðrum mannkost-
um verið valdir sem fulltrúar
bænda á framboðslista Fram-
sóknar og Alþýðubandalags.
DAGUR er oft skemmtilegur
í klaufaskap sínum. í næst
síðasta blaði hans er hann að
skamma blessað unga fólkið er
hann Herbert fékk til að vitna
í íslendingi, og dróttar að því
að það hafi alls ekkert vit á
því sem það er að tala um. Já,
það er svolítið annað en speki
unga fólksins er Björn Teits-
son lætur vitna í Degi um
ágæti Framsóknarflokksins. En
AM er nú svo frjálslynt blað, að
það álítur að ungt fólk er vitnar
í fslending þurfi ekki að vera
verr gefið, en það sem vitnar í
Degi. AM minnir að Dagur hafi
þurft að gera athugasemd við
eitt viðtal Bjöms við einn full-
trúa framsóknaræskunnar, þar
sem hann lét í það skína að okk
ar ágæta KEA færi líklega á
hausinn þegar Jakob hætti. Svo
óskar AM íslendingsstúlkunni
velfamaðar í Parísarför.
EFTIRFARANDI bréf barst
AM frá Raufarhöfn og þar
sem stökuþáttur AM er því mið
ur útlægur fram yfir kosningar
stingum við bréfinu inn í þenn-
an þátt. Það er ágætt að fá létt-
an humor í kosningaslagnum.
AM biður að heilsa höfundi og
þakkar honum fyrir síðast.
Ég fæ stundum ákaflega ein-
kennilegar hugdettur, og núna
rétt áðan datt mér í hug að gera
kosningasöng fyrir Framsókn,
og sendi ég þér drög að slíkuni
söng, sem kannski mætti birta í
vísnadálki Alþýðumannsins. —
Söngurinn hljóðar þannig:
Þér einhleypir karlar, sem illa
gengur til meyja,
andlitin þerrið, og segið skilið
við neyðina,
sú afgamla venja að elska
konur, mim deyja,
því Eysteinn oss kennir að
fara hina leiðina.
En til þess að atkvæðin aukist
að vexti'og mágni
má alls ekki fara leiðina að
nokkm gagni.
Og ef að við sigrum, athuga
skulið það,
að elta flokkinn til baka,
þegar í stað.
JFG.
- Til stuðningsmamia
A-LISTANS
(Framhald af blaðsíðu 1)
A-listann. Stuðningur við' hið
sundraða Alþýðubandalag er
stuðningur við óskadraum
Framsóknar um tveggjaflokka
kerfi á KAPÍTALÍSKUM
grundvelli. Stuðningur við A-
listann er stuðningur við auk-
ið áhrifavald jafnaðarstefnunn-
ar, er tryggja mun réttlátara
þjóðfélag.
MUNIÐ, SÓKN OKKAR
ER TIL SIGURS, JAFN-
AÐARMENN, og þið góðir
lesendur í öðmm kjördæmum.
AM heitir á ykkur að vinna
fyrir A-listann, hvar sem er á
landinu. Sigur A-listans er sig-
ur FÓLKSINS.
LIFEÐ HEIL.
- SKATAR SETTU
SVIP Á BÆINN
(Framhald af blaðsíðu 1)
AM vill heils hugar þakka
akureyrskum skátum farsælt
hálfrar aldar starf og væntir
þess að skátahreyfngin verði í
framtíðinni sem hingað til holl-
ur og þroskandi skóli fyrir
æskulýð þessa bæjar.
ÚR¥AL3RÉTTIR
á virkum dögum
oghátiðum
A matseðli vikunnar:
STEIKT LIFUR
BÆJARABJÚGU
KINDAUðT
NAUTASMÁSTEIK
MFRARKÆFA
Á hverri dós er tillaga
um framreiðslu
, KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ,
AUGLYSINGASIMINN ER
1-13-99
YOKOHRMH
Orðsending til eigendð biireiða og vinnuvéla
SIAUKIN SALA YOKOHAMA HJOLBARÐA SANNAR AGÆTI ÞEIRRA
Eigum ávallt fyrirliggjandi yfir 60 stærðir af HJÓLBÖRÐUM og SLÖNGUM.
REYNIÐ YOKOHAMA JAPÖNSKU NYLONHJÓLBARÐANA
!
VELAÐEILD K.E.A. - GÚMMÍVIÐGÉRÐIN
7