Heimilið og KRON - 01.01.1938, Page 9
HEIMILIÐ OG KRON
Innlánsdeild við Kaupfélagið
Mér var það óblandin ánægja, er ég sá,
að stjórn félagsins hafði notað heimild frá
síðasta aðalfundi Kron til stofnunar inn-
lánsdeildar við félagið. Innlánsdeildin býð_
ur félagsmönnum betri kjör en bankar:
41/2% í stað 4%.
Félagsmenn eru þegar farnir að leggja fé
á vöxtu í innlánsdeildina. Þess er líka að
vænta að deildin verði vinsæl. Það er þægi-
legt, sérstaklega þar sem húsmóðirin ann-
ast innkaupin og snúninga utan heimilisins,
að hafa sparisjóðinn á verzlunarstaðnum. í
öðru lagi er beinn vaxtahagnaður að leggja
inn í innlánsdeild Kaupfélagsins. Og samt
eru þetta hvorttveggja hverfandi smámunir
hjá því, að félagsmönnum gefst þarna kost_
ur á, með mjög svo þægilegu móti, að verða
félagi sínu til stórfellds gagns. Sá óbeini
hagnaður, sem kemur af því, að félagið fær
þarna ódýrt fé til umráöa, verður í fram-
tíðinni mestur og heilladrýgstur fyrir hvern
einasta félagsmann. Hann snýst upp í bein-
an hagnað, þegar innlánsdeildin er orðin
það öflug, að hún geti veitt félaginu til
verulegra muna rekstursfé, og kemur fram
í lækkun vöruverðs. Og eitt verða menn að
muna, að Kaupfélagið munar um hvað
litla upphæð sem vera skal, frá hverjum
einstakling og ætti því ekki að fæla neinn
frá að leggja í innlánsdeildina, þótt efnin
séu ekki mikil. Ef félagsmannatalan er t. d.
3500 og hver einasti leggur 10 kr. á vöxtu,
þá eru strax komnar 35000kr. — Það munar
um minna.
Vonandi er að félagsmenn notfæri sér
þetta ágæta tækifæri til að ávaxta fé sitt
á þennan skemmtilega hátt, jafnframt til
ágætrar eflingar á Kaupfélaginu. Bolli.
Innlhnsdeild
Kaupfélags Reykjavíkur og nágrennis
tók til starfa um síðustu mánaðamót.
Vextir af innstæðufénu eru 4,5% á ári.
Leggið sparifé yðar í innlánsdeild Kron, geymið það þar frá góðu
tímunum til hirma erfiðari.
Innstæða er greidd út samstundis og þess er óskað.
Afgreiðslustaðir: Skrifsiofan, Skólavörðusfíg 12, Reykjavík
Sölubúðin, Sfrandgöfu 28, Hafnarfirði
Sölubúðin í Keflavík
9