Morgunn - 01.12.1920, Side 135
MORGUNN
213
hans um visindamanninn og spekinginn Sir William Croo-
kes. í ritlingnum »Andatrúin krufin« segir hann afdráttar-
laust, að Florence Cook hafi leikið á hann, og að það
hafi verið »vinstúlka hennar, er lék andann Katie King
fyrir hana«. Auðvitað hefir hvergi komið fram snefill af
sönnun fyrir þeirri staðhæfingu. En væri hún sönn, blyti
Crookes að hafa verið einn af allra-mestu aulum verald-
arinnar. Florence Cook var 15 ára skólastúlka, þegar
hann byrjaði tilraunir sínar með hana. Hún lét bann
öllu ráða, og beztu fundirnir voru haldnir í stofum hans
sjálfs. Crookes kemst sjálfur svo að orði, og eg hygg að
allir hleypidómalausir menn verði honum sammála:
„Aö hugsa sér aö sahlaus skólastúlka, 15 ára gömul, yæri íær um
aö hugsa upp jafn-óhemjulega hlekking og halda henni uppi um þrjú ár,
hlíta á þessum tima sérhverri varúöarráöstöfun, sem farið var fram á,
standast hina nákvæmustu rannsókn, vera íús á að láta leita á sér hve-
nær sem var, hvort sem menn vildu á undan eöa eftir fnndi, fá jafnvel
betri árangur í minu húsi en á heimiii foreldra sinna, vitandi það að
hún kom til min í þeirn ótvíræöu erindum að leggja sig undir strang-
vísindalegar ráöstafanir — að hugsa sér í stnttu náli, að Katie King
þessara þriggja ára sé áiaDgur af svikum, það er meira ofbeldisverk
viö heilbrigða skynsemi en hitt, aö taka það trúanlegt, að hún hafi
verið það, sem liún sjálf sagðist vera.“. — Researehes- inf Spiritua-
lism, hls. 112.
En 1906 vissi dr. A. H. B. þetta alt betur en Croo-
kes — þó að engin líkindi, því síður nein sönnun, hefði
komið fram viðvíkjandi þessari »vinstúlku«.
Kú er dr. Á. H. B. farinn að trúa líkamlegu fyrir-
brigðurum, Nú veit hann, að manngervingar gerast og
margt annað af svipuðu tæi. Fyrir þvi var ekki óskyn-
samlegt að búast við því, að Crookes mundi eitthvað hafa
vaxið í augum hans. Hann hafði fengið fullkomnustu
líkamlegu fyrirbrigðin, sem sögur fara af. Óhætt er að
segja, að að flestra manna áliti hafði hann gengið snildar-
lega frá rannsóknum sínum. >Vinstú)kan« hefði átt að
fara að verða vafasamari.
En ekki tekur nú betra við fyrir Crookes. Nú er