Lífið - 01.01.1936, Page 10

Lífið - 01.01.1936, Page 10
6 LIFIÐ nokkrir hirðingjar hann, á leiðinni til Harar. og voru fyllilega vantrúaðir á ágæti $líks hlutar. „Áð- ur en hann (Burton) kemur skoti úr henni, eru örvar okkar smognar í gegnum hann!“ Ferðalang- urinn hleypti á sama augnabliki skoti af. Kúlan hvein yfir höfðum þeirra. Það sló miklu felmtri á þá. — Harar hlaut allan sinn þrifnað af verslun. Borgarar hennar auðguðu sig á kostnað hirðingj- anna eða flökkumannanna. í því skyni að gera fjárdrátt í viðskiftum auðveldari fyrir Hararmenn, varðaði það refsingu að nota vogarskálar. Frjáls verslun var með öllu óþekt. Soldáninn krafðist frá 16 til 30 fet segldúks af hverjum klyfjuðmn asna, er farið var með í gegnum borgarhliðin. Asninn varð að bera tollinn á baki sér. Af því leiddi, að hann var svo þungt klyfjaður, að eigandinn varð að létta undir, á leiðinni inn í borgina. Aðalútflutningsvarningur Harar var sem hér segir: Þrælar, fílabein og kaffi. Þrælanna var þannig aflað, að þeim var rænt. Stórir flokkar vopnaðra manna réðust, með yfirgnæfandi meiri- hluta, á friðsamar, einangraðar smábygðir. En hinir varnarlausu, herteknu menn voru seldir mansali og lentu í ánauð, oft æfilangt. Þeir óálit legustu og lélegustu, sem verslunarvara, voru not aðir sem þjónar og ambáttir í Harar sjálfri, er. hinir voru seldir mansali til Hejaz, Jemen og Muscat í Arabíu. Sjálfur soldáninn hafði einkasölu á fílabeini. Fílana veiddu menn af Gallakynstofninum. Þeir

x

Lífið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lífið
https://timarit.is/publication/674

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.