Lífið - 01.01.1936, Page 67

Lífið - 01.01.1936, Page 67
LÍFIÐ 63 og efnisleg lífsfyrirbrigði“: „Jafnvel án þess að skilja til fullnustu ráðgátur erfðanna, þreytunnar og aðlögunarinnar, getum vér fært oss í nyt stað- reyndir þeirra og lögmál". Ennfremur segir hann: „Sú spurning, sem áður hefir verið minst á og enn er oftlega rætt um, hvort hinar lægstu lífverur séu í raun og veru jurtir eða dýr, er í raun og veru meiningarlaus, enda eru menn hættir að tala um hana í vísind- unum, því að einnig án þess að flokka þessar líf- verur, getum vér ranrtsakað lífsfyrirbrigði þeirra, og það er aðalatriðið". Slíkt hlutleysi í vísindalegri hugsun mun einnig að lokum yfirvinna mótsetningu anda og efnis. Þeir tímar eru liðnir, þegar menn ímynduðu sér efnið samsett úr ótal smáögnum. Hvaðan komum vér? Vér komum frá tímum þrældómsins. Hvert förum vér? Vér leitum að ríki hins hugræna og andlega frelsis. Til hvers erum vér að þrá? Vér viljum veita öllum íbúum jarðar- innar mannsæmandi tilveru. Það, sem gengur út yfir þessar nútíma kröfur, er pólitísk hjáguðadýrkun. Úrslitaspurningin er ®kki þessi, hvernig náum vér í gallalausa heims- niynd, heldur hin spurningin, hvernig getum vér með þessari gölluðu heimsmynd, sem við höf- um, leyst úr vandamálum mannfélagsins. Heimspekingamir hafa að eins útskýrt heim- inn, en aðalatriðið er, að breyta honum. Nýjar framfarir í vísindum eru að eins mögulegar í rnannfélagi, sem hefir yfirunnið allan þrældóm.

x

Lífið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lífið
https://timarit.is/publication/674

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.