Íslendingur - 29.03.1978, Side 1
11. TÖLUBLAÐ . 63. ÁRGANGUR . AKUREYRI . MIÐVIKUDAGINN 29. MARS 1978
ff
VÖRUSALAN SR • HAFNARSTRÆTI 104 • AKUREVRI
VFR7IARÍ / VÖRIJRÖI IJNNI
VERZLAR
I
L.
Fermingar standa nú yfir á Akureyri og tæplega 160 börn voru fermd í Akur-
eyrarkirkju á skírdag og annan í páskum. Börn verða fermd ásunnudaginn, en
síðan verður fermt í Lögmannshlíðarkirkju sunnudaginn 9. apríl. Allt tilstand í
kringum ferminguna hefur tekið stakkaskiptum gegnum árin, samhliða verð-
bólgunni, jafnvel ríflega það. En hvað með það, fermingin er ein stærsta
stundin í lífi hvers og eins, sem á sér stað á afdrifaríkum tímamótuni í lífinu.
Þessi mynd var tekin af hluta fermingarhóps sr. Birgis Snæbjörnssonar á 2. í
páskum.
Stærri þorskur
Sjómenn á Raufarhöfn telja fiskgöngur
betrí en veríð hafi undanfarín ár
Stálu bíl
- Próflausir
- Grunaðir um ölvun við aksturinn
- Þeir segja hér sjómennirnir, að
flskgöngurnar séu bæði magn-
meiri og fískurinn stærri, en
verið hafí á sama tíma undan-
farin ár, þannig að þeir líta ekki
svörtum augum til framtíðar-
innar, hvað þorskinn varðar,
sagði Helgi Ólafsson á Raufar-
höfn, þegar blaðið hafði sam-
band við hann í gærkveldi.
- Netabátarnir höfðu fiskað
nokkuð vel fyrir þorskveiði-
Vonsku
veður í
Ólafsfirði
Hér er nú vonskuveður og hef-
ur verið það yfir mestallar há-
tíðarnar, sagði Sigurður Björns
son, lögregluþjónn í Ólafsfirði,
þegar blaðið hafði samband við
hann í gærkveldi. Sagði Sigurð-
ur, að Múlinn hafi verið lokað-
ur yfir allar hátíðarnar, að smá-
stund undanskilinni á páska-
dag. Þá opnaðist í smástund og
notuðu margir, sem verið höfðu
gestkomandi í Ólafsfirði yfir há-
tíðarnar, sér tækifærið að kom-
ast innúr. Þó munu ennþá
margir vera tepptir í Ólafsfirði,
t.d. skólafólk, en nokkrir þeirra
fóru með Drang í gær. Fengu
þeir vont í sjóinn, þar sem mikill
sjógangur var í firðinum, svo
við lá að hann væri ófær.
bannið og Rauðinúpur hefur
einnig fiskað vel í meðallagi í
vetur, þannig að atvinna á frysti
húsinu hefur verið nokkuð stöð
ug. Við tókum á móti rúmlega
25 þús. tonnum af loðnu frá ára-
mótum og er bræðslu lokið, en
við hefðum þegið einu sinni í
tankana aftur, eða uni 10 þús.
tonn, sagði Helgi. - Tel ég að
bræðsluskipið Norglobal hafi
tekið 10-20 þús. tonn af okkur.
Nú erum við að spá í að endur-
Framhald á bls. 7.
Samkvæmt upplýsingum Árna
magnússonar, varðstjóra hjá
lögreglunni á Akureyri, þá var
■ páskahelgin með róíegra móti
I hjá lögreglunni. Taldi Árni helg
I ina jafnvel með þeim rólegri,
sem hann myndi eftir og gat
hann þess jafnframt, að ekki séu
jafnmiklar annir hjá lögreglu
um stórhátíðir og verið hafi.
Þetta er orðið jafnara og hátíð-
I arnar eru ekki öðruvísi en hver
önnur helgi. Um helgina var
Istolið bíl úr Hafnarstræti, sem
síðar fannst við bæinn Hvamm í
Arnarneshreppi. Er upplýst
hverjir þar voru að verki, en það
voru tveir ungir Akureyringar,
of ungir til að hafa bílpróf og
jafnframt grunaðir um ölvun
við aksturinn. Eitthvað var bíll-
inn skemmdur, t.d. höfðu þeir
ekið út af, en við það hafði olíu-
pannan skemmst eitthvað,
þannig að olía lak af mótorn-
um. Mun mótorinn hafa verið
orðinn rúmur á legum, þegar
ökuferðinni lauk. Fáir gistu
fangageymslurnar yfir hátíð-
íslendingur
fslendingur kemur næst út
þriðjudaginn 4. apríl. Að-
sent efni þarf að hafa borist
fyrir hádegi á föstudag og
auglýsingar fyrir hádegi á
mánudag.
arnar og árekstrar með færra
móti, að miðvikudeginum und-
anskildum, en þá var mikil
hálka og urðu 9 árekstrar þann
dag._____________
Lionsbingó á sunnu-
daginn:
Styðja
vangefna
Lionsklúbbur Akureyrargengst
fyrir bingói í Sjálfstæðishúsinu
á sunnudaginn, en þar verða á
boðstólnum margir glæsilegir
vinningar, t.d. utanlandsferðir,
heimilistæki og húsgögn. Er
þetta annað bingóið, sem félag-
ar í Lionsklúbbi Akureyrar
halda í vetur, en ágóðanum hef-
ur verið varið til að bæta að-
búnað vangefinna að Sólborg.
Ágóðanum af fyrra bingóinu
var t.d. varið til að kosta teppi á
ganga einnar byggingarinnar og
í fyrrasumar tók klúbburinn
þátt í sameiginlegr: söfnun
lionsklúbba við Eyjafjörð til að
kaupa bifreið fyrir heimilið.
Hefur Sólborgarbíllinn þegar
fært vistmönnum þar margar
hamingjustundir. Hafa klúbb-
félagar beðið blaðið fyrir þakkir
til bæjarbúa fyrir dyggan stuðn-
ing við þetta málefni, á undan-
förnum árum.
Hárskerar á Akureyri og Húsavík fylgjast með tískunni
Permanentið nýtur vaxandi
vinsælda hjá karlmönnunum
Á síðustu árum hafa orðið
nokkuð örar breytingar í hártísku
karlmanna og betra fyrir hárskera
að fylgjast vel með þeim breyt-
ingum, sem verða. Það hafa hár-
skerar á Akureyri gert, nú síðast
um páskana efndu þeir til nám-
skeiðs, þar sem þeir kynntu sér
permanent og hárlitun. Leiðbein-
andi var Torfi Geirmundsson frá
Fagskólanum i Reykjavík. Allir
starfandi hárskerar á Akureyri og
Húsavík tóku þátt í námskeiðinu.
Á árum bítlatískunnar örlaði á
atvinnuleysi hjá hárskerum og lítil
endurnýjun varð í stéttinni. Á
þeim tima gengu margir um með
sóðalegan hárlubba, sem fékk að
vera í friði fyrir skærum hársker-
ans. Siðan uppgötvaðist, að það
var líka hægt að hafa snyrtilegt
hár, jafnvel þótt það væri mikið
að vöxtum. Sfðan hefur atvinna
farið vaxandi hjá hárskerum og
sífellt gerast karlmenn djarfari.
Nú síðast hefur það mjög farið í
vöxt, að karlmenn taki perman-
ent. Fyrst í stað var það einn og
einn, sem var virkilega ,,kaldur“,
en nú cr það orðið algengt, að
karlmenn biðji um permanent,
samkvæmt upplýsingum, sem
blaðið fékk á einni rakarastofunni
í morgun. En verða menn ekki
snarhrokknir cins og nýfædd
lömb, eftir permanentið? Það er
alveg til í dæminu, en flestir taka
þó tiltölulega létt permanent, sem
skapar lyftingu í hárið og gerir
,það líflegra.
Samkvæmt upplýs-
ingum Torfa, þá eru margir tví-
stígandi fyrst og ragir við að
leggja út í þetta. Verði þeir hins
vegar óánægðir, þegar upp er
staðið, þá er það yfirleitt vegna
þess að þeim finnst hárið ekki
nógu liðað, sagði Torfi.
Hér sést hvernig hárið verður eftir létt permanent.
KIÖRBUO BjiljPífU HR
2-38 02 2S* 1-9810
KAUPANGI
Glæsilegasta vöruval
í kjörbúð á Norðurlandi