Íslendingur - 29.03.1978, Page 8
f gær lauk viku þorskveiði-
banni, sem mun hafa verið
virt, með örfáum undan-
tekningum, td. voru nokkr-
ir Vestmannaeyjabátar
grunaðir um veiðar á með-
an bannið stóð. Netaveiði-
sjómaður, sem hafði sam-
band við blaðið í gær, sagði
að netaveiðisjómenn í firð-
inum hefðu aliir tekið upp
net sín með ærinni fyrir-
höfn, enda virtu þeir bann-
ið og væru flestir sáttir við
þessar aðgerðir og skyldu
tilganginn. Þeim hefði þó
gramist það, að línuveiði-
sjómenn hefðu fengið að
láta línurnar liggja alla vik-
una á meðan bannið stóð.
Var þeim veitt leyfi til
þess og þá hversvegna?
Þóröur Eyþórsson
hjá Sjávarútvegs-
ráðuneytinu
svarar:
Já, það er rétt, að þeim
sem stunda línuveiðar við
Eyjafjörð á litlum bátum,
var leyft að láta línurnar
liggja. Ástæðan fyrir því
var sú, að þeir nota svokall-
aðar „umferðarlínur", sem
ekki eru notaðar annars
staðar hérlendis, svo mérsé
kunnugt. Þessar línur eru
ekki dregnar úr sjó, heldur
er farið með þeim og þær
beittar jafnóðum, þegar
þeirra er vitjað. Ástæðan
fyrir þessu er sú, að hér er
um litla báta að ræða, sem
ekki eiga hægt með að
draga línurnar og hafa þær
með í veiðiferðum. Leyfið
var veitt með þeim skilyrð-
um, að þeir afbeittu línurn-
ar fyrir hádegi þriðjudag-
inn 21. mars, en tæpast
veiðist á óbeittar línurnar.
Síðan verður fylgst með
því, að bátarnir komi ekki
með afla úr fyrsta róðrin-
um eftir bann, sem ein-
göngu á að fara í að beita
línurnar.
Baldur og
Konni
gerðu mikla
lukku
Um þessar mundir standa
yfir sýningar hjá Leikfélagi
Akureyrar á „Galdralandi"
Baldurs Georgs, sem er
trúða og galdraleikur með
bráðsmellnum texta. Bald-
ur naut mikilla vinsælda á
sínum tíma ásamt félaga
sínum Konna, en þeir hafa
lítið sem ekkert skemmt á
síðustu árum. Baldur og
Konni komu fram á sýn-
ingu á Galdralandi í 1. viku
og var ekki fyrirhugað að
þeir kæmu fram nema á
þeirri einu sýningu. Þeir
félagarnir fengu hins vegar
svo frábærar móttökur, að
ákveðið hefur verið aö þeir
komi fram á þeim sýning-
um, sem -eftir eru, en næstu
sýningar verða á laugardag
og sunnudagskvöld.
AUGLÝSINGASlMI islendings
2 15 00
eÍSangrunargleR
ISPAN HF. • FURUVÖLLUM 5 • AKUREYRI • SÍMI (96)21332
íslendingur
Leiklistarklúbburinn SAGA er skipaður ungu fólki
Æfa nú harnaleikinn
„Leif ljónsöskur"
af miklum krafti
- Frumsýningin verður að öllu forfallalausu í nœsta mánuði
Leiklistarklúbburinn í Dyn-
heimum, sem nú ber heitið
Leikklúbburinn Saga hefur nú
í æfingu barnaleikritið Leifur
Ijónsöskur eftir Torben Jets-
mark. Þýðinguna gerði Halla
Guðmundsdóttir, en leikstjór-
ar verða þeir Theódór Júlíus-
son og Þórir Steingrímsson.
Ungmennafélag Gnúpverja
sýndi þetta leikrit á Suður-
landsundirlendi og víðar fyrir
skömmu við mjög góðar und-
irtektir. Um I5 leikarar taka
þátt í sýningunni, en með
Fimm
Akur-
eyringar
hlutu
starfslaun
Nýlega hefur verið úthlutað
starfslaunum úr Launasjóði rit-
höfunda. Fjárveitingar tilsjóðs-
ins í fjárlögum námu 47 millj.
I8l þús. krónum, en það nægir
til veitingar 248 mánaðarlauna,
samkvæmt byrjunarlaunum
menntaskólakennara. Tveir rit-
höfundar fengu starfslaun í 9
mánuði, 5 rithöfundar hlutu 6
mánaða starfslaun, 24 fengu 3
mánaða starfslaun og 46 fengu
startslaun til tveggja mánaða.
Sú kvöð fylgir veitingu starfs-
launa í 3 mánuði, eða lengur, að
þeir höfundar, sem um þau
starfslaun sóttu, skuldbundu sig
til þess að gegna ekki fastlaun-
uðu starfi á meðan þeir nytu
starfslauna.
Eftirtaldir rithöfundar á Ak-
ureyri hlutu starfslaun:
3ja mánaða laun:
Guðmundur Frímann.
2ja mánaða laun:
Bragi Sigurjónsson,
Eiríkur Sigurðsson,
Indriði Úlfsson,
Kristján frá Djúpalæk.
Þess má að lokum geta, að
Bókaútgáfan Skjaldborg á Ak-
ureyri hefur gefið út bækur á
seinni árum eftir 4 af þeim 5 höf-
undum, sem starfslaun hlutu.
helstu hlutverk fara: Hejgi
Már Barðason, Magnús Ár-
sælsson. Jóhanna Birgisdóttir
og Snjólaug Brjánsdóttir.
Töluvert er af skemmtilegum
söngvum í leikritinu.
Leifur ljónsöskur er sirkus-
ljón, sem strýkur og tekur að
leita sér atvinnu, en gengur illa
af ýmsum ástæðum. Lögregl-
an er á hælum hans og út frá
þessu spinnast spennandi og
skemmtilegir atburðir.
Þetta er þriðja verkefni
Leikklúbbsibs Sögu. Áður
hefur klúbburinn sýnt „Höf-
um við gengið til góðs“ eftir
nemendur og kennara Voga-
skóla (1976) og „Sköllótta
söngkonan" eftir Eugéne
Ionesco, en það verk sýndi
klúbburinn einnig í nágranna-
byggðarlögunum. Félagar í
leikklúbbnum eru flestir á
aldrinum 14-18 ára og hafa
undanfarin ár stundað nám í
leiklist hjá ýmsum valinkunn-
um leikurum, en lengst af hafa
hjónin Saga Jónsdóttir og
Þórir Steingrímsson æft og
þjálfað hina ungu leikara.
Klúbburinn er rekinn á vegum
Æskulýðsráðs Akureyrar.
Frumsýningardagur „Leifs“
er óákveðinn enn sem komið
er, en líkur benda til að sýn-
ingargeti hafist I apríl. Verður
væntanlega frumsýnt í Dyn-
heimum, þar sem leikklúbbur-
inn hefur aðstöðu, en ekki er
ólíklegt að verkið verði einnig
sýnt víðar í Eviafiröí
Hrísey:
Nýr
viðlegu-
kantur
Nýlokið er við að smíða 50 m
langan viðlegukant við grjótgarð-
inn i Hrísey, sem einkum er ætlað-
ur fyrir smærri bátana. Fram-
kvæmdirnar gengu sérstaklega vel
og fljótt fyrir sig, en þær hófust í
nóvember og lauk í janúarlok. Er
það mjög vel að verki staðið miðað
við árstima, en verkstjóri við fram-
kvæmdirnar var Bergsveinn Breið-
fjörð Gíslason, frá Vita- og hafnar-
málastjórn. Að öðru leyti unnu
heimamenn við framkvæmdirnar.
„Jesús
lifir“
- Samkomuvika
verður í kristni-
boðshúsinu Zíon
2.-9. apríl
.2. apríl næstk. hefst sam-
komuvika í kristniboðshús-
inu Zíon, Akureyri. Yfir-
skrift vikunnar er hinn stór-
kostíegi boðskapur pásk-
•anna „Jesús lifir“.
Ræðumenn verða séra
Jónas Gíslason lektor við
guðfræðideild Háskóla ís-
lands, séra Hjalti Hugason
prestur í Reykholti ogstarfs-
menn kristniboðssambands-
ins þeir Benedikt Arnkels-
son, cand. theol. og kristni-
boðarnir Jónas Þórisson og
Skúli Svavarsson.
Ungt skólafólk á Akur-
eyri tekur til máls á hverri
samkomu og segir frá aftur-
hvarfi sínu og trúarreynslu.
Einnig mun sönghópur
þeirra syngja mörg kvöld.
Auk þess verður almennur
söngur og tvísöngur á sam-
komunum.
Nýjar frcttir verða sagðar
frá starfinu á kristniboðs-
akrinum oggjöfum til kristni
boðs veitt móttaka.
Allir eru velkomnír á sam-
komurnar, sem hefjast kl.
8,30 e.h. hvert kvöld vik-
unnar.
V OL V O-NÁMSKEIÐ
Nýlega er lokið námskeiði fyrir bifvélavirkja, sem Bifreiðaverkstæðið Þórshamar, þjónustu-
verkstæði Volvo á Akureyri, stóð fyrir í samstarfi við Velti hf., aðalumboðsfyrirtæki Volvo á
íslandi. Allir bifvélavirkjar Þórshamars á fólksbílaverkstæðinu tóku þátt í námskeiðinu, sem
stóð í vikutíma frá 13.-19. mars, og var fólksb/laverkstæðið lokað á meðan. Aðalkennari á
námskeiðinu var Kjell Odelius, sérfræðingur frá Volvoverksmiðjunum í Svíþjóð, en honum til
aðstoðar var Kristján Tryggvason, frá Velti hf. í Reykjavík. Aðaláhersla var lögð á sjálfskipt-
ingar og bifreiðarstillingar á námskeiðinu, sem er fyrst og fremst hugsað til að bæta þjónustu
við Volvoeigendur á Akureyri og nágrenni, að sögn Sigurðar Jóhannessonar, framkvæmda-
stjóra Þórshamars. Er þetta í fyrsta skipti, sem slíkt námskeið er haldið á vegum Volvo á Akur-
eyri, en til þessa hafa þau farið fram í Reykjavík. Á myndinni eru þátttakendur á námskeiðinu
ásamt kennurum.
GARDÍNUBRAOTIFr
TRÉSTANGIR og allir fylgihlutir
Ibúðin, Tryggvabraut 22