Morgunn - 01.06.1971, Blaðsíða 82
76
MORGUNN
að Jesús hafi stundað nám í Egyptalandi og jafnvel Tíbet. Og
finna má í kenningum Jesú glögg tengsl við kenningar frægs
egypzks kennara, sem kenndur er við réttvísina, en liann var
uppi nálega hundrað ái’um á undan Jesú.
Rósarkrossmenn telja sig hafa sannanir fyrir því, að Kristur
hafi tekið vígslur í fornum launhelgum Egyptalands, eins og
Móses, og jafnframt stundað nám í Tíbet og Indlandi. Telja
þeir, að þetta nám og þessi ferðalög hafi einmitt farið fram á
tímabilinu sem er svo þögult um ævi Jesú í Biblíunni, nefni-
lega frá því hann var tólf ára og til þritugs aldurs. Hafa þeir
skrifað um þetta forvitnilegt rit, er þeir telja byggt á heimild
um, sem fræðimenn þeirra hafi fundið í Austurlöndum.
Ef eitthvað er hæft i þessu, fer að verða skiljanlegra að Jesús
gangi út frá endurfæðingu sem sjálfsögðum hlut, því meiri-
hluti hinna miklu trúarbragða heimsins hafa boðað trú á ein-
hvers konar form endurfæðingar. Enda er talið mjög líklegt, að
endurholdgunarkenningin hafi einmitt verið eitt af grundvall-
aratriðunum í kenningum frumkristninnar. Hvað sem annars
kann að vera sagt um þessa kenningu, þá verður því vart neit-
að með sanngirni, að hún varpar alveg nýju ljósi á forn helgirit,
og til dæmis Ritningin lifnar í ljósi þessa skilnings á sannleik-
anum. Þeim fer æ fjölgandi, sem telja að kenningin um end-
urholdgun samkvæmt hinu mikla lögmáli orsaka og afleiðinga
sé eina rökrétta skýringin á því, hvernig einstaklingnum get-
ur verið kleift að ná guðsvitund. Með því einu, að lifa aftur og
aftur, getum við öðlast tilfinningu fyrir og skilning á hinum
mörgu óliku hliðum lífsins. Þannig getum við lifað það, að vera
karlmenn í einni tilveru en konur í annari; við getum verið
foreldrar og börn, ung og gömul. Og hvernig eigum við að
skilja þetta fyllilega öðru visi en að lifa það? Við þurfum að
læra að vera auðmjúk og umburðarlynd og umfram allt að læra
að elska hvert annað, eins og hinir miklu trúarbragðahöfundar
allra tíma hafa kennt. Trúa menn því virkilega, að okkur
venjulegum manneskjum nægi til þess eitt mannslíf, sem nær
aðeins yfir nokkra tugi ára? Og hvað um reynzlu þeirra, sem
deyja ungir? Er líklegt, þegar við lítum í kringum okkur í heim-