Morgunn


Morgunn - 01.12.1980, Side 32

Morgunn - 01.12.1980, Side 32
126 MORGUNTM og tilgangur lífsins utan þess augljósa og efnislega: að halda lífi? Hver er ég? Hvers vegna er ég hér? Hvert er för minni heitið? Hvers vegna þjáist ég? Hver er hinn sanni skyldleiki minn við aðra menn og þeirra við mig? Og hvemig erum vér almennt tengdir hinum mikla samleik náttúruaflanna, og ef til vill hinu æðsta valdi utan vor og í kringum oss? Þetta eru upprunalegustu og elslu spurningar mannkyns- ins. Fáum vér ekki svör við þeim, er þá ekki endanlega til- gangslaust að leita lausnar frá þjáningum, hvort sem þær eru andlegs eða líkamlegs eðlis? Ef ekki er hægt að útskýra hvern- ig á þjáningunni getur staðið, þá hefur ekkert verið útskýrt. Þangað til gerð hefur verið grein fyrir þjáningu hinnar minnstu pöddu, hefur ekki verið gerð grein fyrir neinu, og skilningur vor á lífinu er ófullkominn. Frá örófi alda hafa jafnvel frumstæðustu menn spurt þess- ara mikilvægu spurninga. Þeir hafa horft upp á tign him- insins og l’undið á sér, að barátta og sorgir mannsins væru ekki eins auðvirðileg og virtist. Þeir fundu tilgang í því að til væri alheimslegur skyldleiki milli stjarna og manna. Eða þeir hafa orðið einhvers varir í skógunum og sagt, að allir lifandi hlutir hefðu anda og maðurinn líka, og að þessi andi mannsins lifði og þjáðist aðeins skamma hríð á jörðinni og sneri lil hamingjusamari og friðsælli heimkynna að þessu lífi loknu. Eða þeir hafa fundið innri skynjun á réttu og röngu, og komist að þeirri niðurstöðu, að með sama hætti hljóti einnig að vera rétt og rangt í samvisku alheimsins, og á einhverjum fjarlægum sviðum staður þar sem umbun og refsing fari fram. Uppi hafa verið þúsundir skoðana og skýringa i þessa átt; sumar ærið frumstæðar, aðrar fágaðri og skynsamlegri. Nú á tímum draga menn fram lífið um heim allan og berjast hetjulega gegn erfiðleikunum, sökum jiess að jteir treysta þvi að einhvers konar skýring í þessa átt sé sönn. Sumir vitna til Muhameðs; aðrir styðjast við kenningar Buddha, Móse, Jesú eða Krishna. Og svo eru jiúsundir sem trúa því, að utan þarf- arinnar til þess að halda lífi, eigi mannlegt líf sér enga skýr-

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.