Morgunn - 01.12.1980, Blaðsíða 41
ER DAUÐINN DYRÐLEGUR
135
II.
Læknirinn á neyðarvaktinni kom að manninum, sem hafði
hringt á hjálp, meðvitundarlausum í hægindastól í hótel-
herbergi sínu. Heyrnartólið lá suðandi hjá honum, hálsmálið
á skyrtunni var rifið og stjörf augun lýstu skelfingu. Þetta
var Daniel Gélin, franskur kvikmyndaleikari, 50 ára að aldri.
Hinn meðvitundarlausi maður var í skyndi fluttur í Dan-
olosjúkrahúsið í Tel Aviv í Israel á gjörgæzludeild. Þar vakn-
aði hann til meðvitundar með mikla verki fyrir hjartanu og
greindi þá óljóst „hvítklædda veru, sem ég veit nú að var
læknir.“ Og hann heldur áfram: „Síðan féll skyndileg svört
slæða fyrir augu mér. Dg var látinn, án þess að gera mér
strax grein fyrir því.“
Gélin skildi aðeins að hann hafði fengið hjartaáfall. En nú
„fann ég, að létt var af mér þeim þunga, sem um hrið virt-
ist vera að sprengja á mér brjóstkassann.“ Og jafnframt varð
hann allt í einu fær um að virða fyrir sér umhverfið.
Og þegar hann var að því „kom eitthvað undarlegt yfir mig.
Ég sveif skyndilega um herbergið og barst eins og skuggi
að tækinu, sem átti að mæla hjartaslög mín. Mér til skelf-
ingar sá ég, að nálin hreyfðist ekki, — hjartað var hætt að
slá.“
Þetta gerðist 29. júní 1971. Nú er Daniel 57 ára gamall.
III.
Hinn 16. september 1964 var svissneski húsameistarinn
Stefan von Jankovich farþegi í Alfa Romeo-bifreið á leiðinni
til Lugano. Kl. 11.10 mættu þeir hægfara herbílalest, sem
stór flutningabíll var að fara fram úr, en þetta var tveggja
akreina braut.
í lögregluskýrslu segir, að ökumaður flutningabílsins, rosk-
inn maður, hafi truflast við framúraksturinn og ekki hafi
verið hægt að afstýra árekstri.
Jankovich gerði sér á augabragði grein fyrir hinni bráðu
lífshættu. Hann hrópaði. Sjónarvottar segja, að um leið og