Morgunn - 01.12.1980, Blaðsíða 36
130
MORGUNN
að leiða hugann að slíkum möguleikum. Og þegar vér skyggn-
umst aftur i hina löngu sögu mannkynsins, þá rekumst vér á
ýmis tilfelli í skráðri sögu, þar sem slik skilningsvídd virðist
hafa verið fyrir hendi. Þannig fáum vér vitneskju um það,
að hinn mikli stœrðfræðingur og visindamaður átjándu aldar,
Swedenborg, hafi á efri árum öðlast óskiljanlega vitundar-
vidd, að því er ævisöguritarar hans herma. Eitt atvik sem
sýndi fjarskyggni Swedenborgs er sérstaklega frægt, ekki síst
sökum þess að það er vottað af mörgum málsmetandi mönn-
um, meðal annarra heimspekingnum fræga Immanuel Kant.
Kvöld nokkurt klukkan sex var Swedenhorg að snæða kvöld-
verð með nokkrum vinum sínum, þegar hann allt í einu
komst í mikið uppnám og sagði að hættulegur eldur hefði
brotist út í heimaborg sinni Stokkhólmi, sem var í þrjú hundr-
uð mílna fjarlægð. Hann fullyrti skömmu síðar, að eldurinn
hefði þegar eyðilagt heimili eins af nágrönnum hans og ógn-
aði nú heimili hans sjálfs. Klukkan átta sama kvöldið hróp-
aði hann með nokkrum létti, að tekist hefði að stöðva eldinn
þrem húsum frá heimili sínu. Tveim dögum síðar var hvert
einasta atriði sem Swedenborg hafði greint frá staðfest með
raunverulegum skýrslum um eldsvoðann, sem hafði brotist
út einmitt á sömu klukkustund og Swedenborg hafði orðið fyr-
ir skyggniáhrifunum.
Þetta dæmi um Swedenborg er aðeins eitt af mörgum hundr-
uðum svipaðra tilfella, sem getið er um í sögunni og ævisög-
um mikilmenna og annarra sem minna eru kunnir. Sam-
kvæmt ævisöguriturum Marks Twains, Abrahams Lincolns
og tónskáldsins Saint-Saens, svo einhverjir séu nefndir, áttu
allir þessir menn það sameiginlegt, að þeim hafði einhvern
tíma á ævinni opnast sýnir af atburðum sem gerðusl í óra-
fjarlægð, sem þeir gátu lýst i minnstu smáatriðum. Eða þá
þeir sáu með sama hætii atburði sem gerðust í þeirra eigin
lífi mörgum mánuðum eða árum síðar. Hvað snertir Sweden-
borg þá þroskaðist fjarskyggnihæfileiki hans og varð að föst-
um og öflugum eiginleika. I flestum öðrum tilfellum virtist