Morgunn - 01.12.1989, Blaðsíða 11
MORGUNN
KENNINGAR SILVER BIRCH
arjátningar, bók eða kirkju, heldur Lífsandann mikla og eilíft
náttúrulögmál hans. Þannig er það því að meðlimir í hring
hans, sem eru sex að tölu, telja þrjá gyðinga og þrjá trúleys-
ingja, sem í spíritisma finna ekki mismun kynþátta eða trúar-
setninga. Þrír þeirra voru efasemdarmenn um yfirnáttúruleg
efni og sá fjórði var meþódistaprestur, sem rétt áður en hann
gekk til liðs við hring okkar, hafði yfirgefið meþódistatrúna,
því hann gat ekki lengur samþykkt kenningar hennar.
Á þessum árum mínum á fundum með Silver Birch hef ég
aldrei vitað til þess að hann gleymdi nokkru atriði, þrátt fyrir
að við kynnum að gera svo.
Og aldrei í einu aukateknu orði hvikar hann frá sjálfskipaðri
hugsjón sinni um að kenna mannanna börnum einfaldari og
blessunarríkari lífsmáta.
Silver Birch segir af sjálfum sér.
Þegar ég var spurður að því, fyrir mörgum löngum árum,
hvort ég vildi snúa aftur til heims efnisins og finna á jörðunni
hóp fólks sem vildi starfa með mér að því að kynna boðskap
andans, þá játti ég því eins og margir fleiri, og mér var falið
hlutverkið.
Mér var sagt að ég þyrfti að leita að og finna starfstæki og
tengja mig því þannig að ég gæti komið í gegn um það þeim
boðskap sem mér var falið að koma til skila. Ég leitaði því í
skrám okkar og fann miðilinn minn.
Ég fylgdist með honum frá þeim tíma er hann fór að skilja og
frá þeirri stundu sem andinn fór að tjá sig — þó í litlum mæli
væri — hóf ég afskipti mín og byrjaði þar og þá það samband
sem síðan hefur varað öll þessi ár.
Ég hjálpaði til við að móta andann og hinn örlitla huga og í
gegnum sérhvert þróunarstig lífs hans fylgdist ég með sérhverri
reynslu, lærði hvernig komast mætti í náið samband og ég
kynnti mér allan huglægan þroska og líkamlegar venjur hans í
æsku. Ég rannsakaði starfstæki mitt frá öllum hliðum — huga,
anda og jarðlíkama.
9