Morgunblaðið - 08.01.2009, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.01.2009, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009 Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Patti húsgögn Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16 80%afslætti valdar vörur á allt að Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt- ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is GULA ljósið gerðist nokkuð frekt í eftirmiðdagsumferðinni á Suðurlands- veginum í gær og var því íhlutunar handlaginna þörf. Viðgerðarmennirnir virtu guluna fyrir sér áður en hafist var handa en betra er að hafa umferð- arljósin í lagi þegar skammdegið byrgir bílstjórum sýn. Morgunblaðið/Heiddi Gult tók völdin „ÉG held að fólk ætli að berjast eins og það getur og láta ekki fólk sem er nýkomið í flokkinn ýta þeim sem lengur hafa starfað úr vegi,“ segir Sæunn Stefánsdóttir, rit- ari Framsókn- arflokksins um atburði á fundi Framsóknarfélags Reykjavíkur í gærkvöldi. Hópur félaga úr Framsókn- arflokknum, þar á meðal Sæunn Stefánsdóttir og Jón Sigurðsson, fyrrverandi formaður, hefur sent frá sér yfirlýsingu, þar sem fullyrt er að fjandsamleg yfirtaka hafi farið fram á fundi félagsins í fyrrakvöld, þar sem skráðir voru 70 nýir félagar undir lok dags. Ólýðræðisleg vinnubrögð „Með þeim hætti var félagið tekið yfir og tillaga borin fram um nýjan fulltrúalista á flokksþing í stað þess sem stjórn hafði lagt fram. Sá listi var tilraun til að hleypa að öllum sjónarmiðum og því að okkar mati lýðræðislega unninn. Jafnframt var gerði tilraun til að setja fundarstjóra af til að ná tökum á fundinum. Ekki kom fram að yfirtakan byggði á nokkrum málefnalegum grundvelli heldur var tilgangurinn greinilega sá að fá nýjan hóp framsókn- armanna með atkvæðisrétt á flokks- þingið sem framundan er,“ segir m.a. í yfirlýsingu hópsins. „Ég er sorgmædd yfir því að Framsóknarflokkurinn skuli ekki nýta sér það tækifæri sem nú gefst til þess að kjósa sér nýja forystu, móta stefnu og velja ný vinnubrögð á væntanlegu flokksþingi. Ég tel að þeir sem að þessu stóðu á fundinum í gær hafi litið framhjá þessu tæki- færi,“ segir Sæunn Stefánsdóttir. jmv@mbl.is Fólk mun berjast fyrir sínu „Fjandsamleg yfir- taka“ hjá Framsókn Sæunn Stefánsdóttir FRÉTTASKÝRING Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is FJÁRFESTINGAFÉLÖGIN Ex- ista og Kjalar, sem áttu samtals 35 prósenta hlut í Kaupþingi, eiga kröf- ur til gamla Kaupþings sem nema a.m.k. 240 milljörðum króna vegna framvirkra gjaldmiðlaskiptasamn- inga. Með samningunum leituðust fé- lögin við að verjast gengissveiflum, samkvæmt upplýsingum frá félögun- um, vegna veikingar krónunnar. Eins og greint var frá í Morg- unblaðinu í gær gerir Kjalar kröfu um að krafa félagsins upp á 650 millj- ónir evra verði gerð upp á markaðs- gengi krónunnar hjá evrópska seðla- bankanum. Gengið þar er meira en 80 prósentum hærra en hjá Seðlabanka Íslands. Evran er skráð á 290 krónur þar en 167 krónur hjá Seðlabanka Ís- lands. Miðað við það nemur virði krafna Kjalars 190 milljörðum króna. Samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins er enn ekki ljóst hvernig gjald- miðlaskiptasamningarnir verða gerð- ir upp. Afar ólíklegt er að þeir verði borgaðir út þar sem einfaldlega ekk- ert fé er til svo það sé hægt. Þá er einnig á reiki við hvaða gengi á að miða. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins hefur skilanefnd Kaup- þings ekki viljað fallast á það með for- svarsmönnum Kjalars að samningarnir skuli gerðir upp á markaðsgengi evrópska seðlabank- ans, þegar kemur að skuldajöfnun bankans og félagsins. Exista á kröfur til gamla bankans vegna gjaldmiðlaskiptasamninga upp á 100 til 140 milljarða, allt eftir því gengi sem miðað er við. Milljarða- samningar Morgunblaðið/Golli Hluthafar Exista átti 25% hlut í Kaupþingi og Kjalar um 10 prósent. Exista og Kjalar með hundraða milljarða gjaldmiðlaskiptasamninga Eftir Andra Karl andri@mbl.is ÞRÍR piltar á sautjánda ári voru í gær dæmdir til að greiða pilti á fjórtánda ári 100 þúsund krónur í miskabæt- ur fyrir kynferðislega áreitni. Að öðru leyti var refsingu frestað og fellur hún niður haldi þeir skilorð. Brot piltanna fólst í því, að tveir þeirra héldu fórn- arlambinu en sá þriðji leysti niður um sig buxurnar, beraði lim sinn og otaði honum að andliti fórnarlambsins. Sló hann limnum ítrekað í andlit og hendur þess. Allir játuðu þeir sök en neituðu að um kynferðislegan verknað væri að ræða. Athæfið átti sér stað í anddyri íþróttahúss eftir íþróttaiðkun í janúar á síðasta ári. Af framburði ákærðu má ráða að háttsemi sem þessi hafi tíðkast í fjölda ára. Segir m.a. svo: „Ákærði kvað ekk- ert vera kynferðislegt við getnaðarliminn á sér þegar hann tæki hann út og setti hann í andlitið á öðrum karlmönnum. Þetta gerðist margoft í fótbolta með yngri krökkum.“ Sá hinn sami sagðist hafa séð bekkjarfélaga sína slá yngri nemendur, á hans aldri eða ári eldri, í sturtunni eftir fót- boltaleiki. Einnig kvað hann hið sama tíðkast í Fjölbrauta- skóla Suðurlands. Verjendur kröfðust sýknu og byggðu kröfur sínar á því að um „félagslegt fyrirbæri“ væri að ræða, en einnig að háttsemin væri ekki kynferðisleg. Fórnarlambið í málinu var á þrettánda ári þegar atvikið átti sér stað. Í framburði piltsins kom fram að honum leið illa eftir atburðinn. Honum hefði „fundist það hommalegt og ógeðslegt að fá getnaðarlim framan í sig“. Í niðurstöðu dómara kemur fram, að það að fá beran getnaðarlim í andlit eða á líkama, gegn vilja sínum, hljóti að brjóta gegn kynfrelsi einstaklingsins auk þess að teljast siðlaus háttsemi. „Breytir þar engu um að sú háttsemi sé talin eðlileg af einstökum einstaklingum, hópum eða undir vissum kringumstæðum.“ Dóminn kvað upp Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari. Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður sótti málið. „Félagslegt fyrirbæri“ reyndist kynferðisbrot Af hverju eru gjaldmiðlaskipta- samningarnir gerðir? Mörg íslensk fyrirtæki gerðu fram- virka gjaldmiðlaskiptasamninga í fyrra til þess að verjast geng- issveiflum og áhrifum vegna þeirra á eiginfjárstöðu fyrirtækja. Um miklar fjárhæðir var að ræða, eins og dæmin hér að ofan sýna. Samningarnir gátu ýmist byggst á því að veðja á veikingu krónunnar, svo dæmi sé tekið, eða styrkingu og var gjaldeyriskaupum hagað eftir því. Fyrirtæki gerðu í flestum tilfellum samninga í stuttan tíma í senn, viku eða hálfan mánuð, sem síðan voru framlengdir ef ástæða þótti til. S&S Alls kyns niðurlæging hefur verið landlæg í búningsherbergjum íþróttahúsa og skiptir engu hvort um leikfimi grunnskólanema er að ræða eða æfingar eldri flokka í hópíþróttum. Í máli piltanna þriggja sem dæmdir voru í gær kemur fram að slíkt væri „ekkert stórmál“. Þorgerður Ein- arsdóttir, dósent í kynjafræði við Háskóla Íslands, segir dóminn mikilvægan til að taka á slíku. „Það er orðið svo margt sem við- gengst og orðið er að viðtekinni venju. Mér finnst því mjög mik- ilvægt að skýra hvar mörkin liggja. Þetta er ekki ásættanlegt at- hæfi og ég myndi segja það mjög alvarlegt ef þetta er jafn algengt og fram kemur í dómn- um.“ Mörkin þurfa að vera skýr LÖGREGLUNNI á höfuðborgarsvæðinu tókst að skakka leikinn þegar tveimur hópum fólks lenti saman í Lönguhlíð í gærkvöldi. Lögreglunni barst tilkynning um 10-15 manna hóp vopnaðan bareflum sem ætti í útistöðum á áttunda tímanum. Enginn særðist í áflogunum að sögn lögreglu sem sagðist hvorki hafa orðið vör við vopn né barefli. Hóparnir héldu svo sína leið eftir íhlutun lögreglunnar. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar var um hópa af ýmsu þjóðerni að ræða og var fólkið um og yfir tvítugt. Ekki er vitað um orsakir þess að fólk- inu lenti saman en að sögn lögreglu má að hluta til rekja það til tungu- málaörðugleika. Lögreglan skakkaði leikinn í Lönguhlíðinni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.