Morgunblaðið - 08.01.2009, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 08.01.2009, Blaðsíða 20
20 FréttirERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is HAMAS-samtökin eiga rætur að rekja til Bræðralags múslíma, stærstu stjórnarandstöðuhreyf- ingar margra arabalanda og elstu og stærstu hreyfingar íslamista í heiminum. Eftir að sex daga stríðinu árið 1967 lauk leituðust Ísraelar við að styrkja íslamskar hreyfingar á her- numdu svæðunum til að grafa undan palestínskum þjóðernissinnum. Eitt af fyrstu verkum Ísraela eftir stríðið var að sleppa nokkrum af frammá- mönnum Bræðralags múslíma úr fangelsi, þeirra á meðal Ahmad Yassin, sem síðar stofnaði Hamas. Sex árum eftir stríðið kom Yassin á fót góðgerðastofnuninni Mujama, sem rak m.a. sjúkrahús, barnaheim- ili og skóla. Ísraelsk yfirvöld á Gaza- svæðinu hvöttu Mujama til að sækja um skráningu sem góðgerð- arstofnun árið 1978 og Ísraelar styrktu hana fjárhagslega með óbeinum hætti með það að markmiði að kljúfa Palestínumenn. Ísraelar snerust gegn Mujama Í byrjun níunda áratugarins tóku Mujama-menn að beita ofbeldi gegn stofnunum eða fyrirtækjum sem þeir álitu í andstöðu við íslam, svo sem kvikmyndahúsum, veitinga- húsum sem seldu áfengi og spilavít- um. Þegar hreyfingin tók að sýna aukinn pólitískan metnað snerust Ísraelar gegn Mujama. Þeir hand- tóku Yassin og tólf samstarfsmenn hans og lögðu hald á vopnabúr Mujama árið 1984. Yassin og fleiri íslamistar stofn- uðu síðan Hamas í desember 1987 til að gera bandamönnum Bræðralags múslíma kleift að taka þátt í inti- fada, uppreisn Palestínumanna gegn hernámi Ísraela á árunum 1987-1993. Í stofnsáttmála Hamas frá ágúst 1988 er boðað að íslam muni tortíma Ísrael og því er lýst yfir að öll Pal- estína sé íslamskt land sem múslím- ar geti aldrei gefið eftir. Ólíkt Yasser Arafat, leiðtoga Frelsissamtaka Palestínumanna (PLO), studdi Hamas ekki Saddam Hussein Íraksforseta í Persaflóa- styrjöldinni eftir að Írakar gerðu innrás í Kúveit árið 1990. Þess í stað hvatti Hamas Íraka og Bandaríkja- menn til þess að kalla hersveitir sín- ar heim. Styrjöldin varð til þess að mörg arabaríki, einkum Sádi- Arabía, tóku að styðja Hamas fjár- hagslega, fremur en PLO. Það sama hefur Íran gert. Samfélagsþjónusta Hamas Þessi fjárhagsstuðningur varð til þess að Hamas gat að miklu leyti tekið við hlutverki PLO í velferð- armálum og vinsældir íslömsku samtakanna meðal almennings á svæðum Palestínumanna jukust. Þótt Hamas-samtökin séu þekkt- ust fyrir trúarofstæki og mann- skæðar sjálfsvígsárásir á Ísraela hafa þau lagt mikið af mörkum í samfélagsmálum á svæðum Palest- ínumanna. Ráðstöfunarfé Hamas hefur að miklu leyti verið notað til að halda uppi umfangsmikilli sam- félagsþjónustu. Samtökin hafa t.a.m. rekið skóla, heimili fyrir mun- aðarlaus börn, heilsugæslustöðvar, súpueldhús og staðið fyrir íþrótta- mótum. „Um það bil 90% starfsem- innar eru á sviði samfélags-, vel- ferðar-, menningar- og menntamála,“ segir ísraelski fræði- maðurinn Reuven Paz, sem hefur sérhæft sig í rannsóknum á ísl- ömskum hreyfingum í heiminum. Talið er að yfir 500 manns hafi látið lífið í rúmlega 350 árásum Hamas frá árinu 1993. Þótt sam- tökin hafi léð máls á langvinnu vopnahléi hafa þau aldrei viljað við- urkenna tilvistarrétt Ísraelsríkis. AP Frið og dauða Nemar við Íslamska háskólann í Íslamabad halda á myndum af leiðtogum Hamas á mótmælafundi gegn hernaði Ísraela á Gaza-svæðinu. Á spjöldunum stendur: „Við viljum frið“ og „Deyðu, Ísrael, deyðu“. Ofbeldi beitt í bland við góðgerðarstarf Vinsældir Hamas má rekja til víðtækrar samfélagsþjónustu Heimild: Global Security Lengd (sm) Þvermál (mm) Þyngd (kg) Sprengihleðsla (kg) Hámarksdrægi (km) 80 60 5.5 0.5 3-4,5 180 150 32 5-9 8-9,5 200 170 90 10-20 10-12 283 122 72 18 18-20 294 122 74 18-22 34-45 Q as sa m -1 Q as sa m -2 Q as sa m -3 G ra d (R ús sl an d, Ír an ) W S -1 E (K ín a) Netivot Ashkelon Hamas og fleiri vopnaðar hreyfingar Palestínumanna á Gaza-svæðinu eiga nokkrar tegundir flugskeyta sem þær hafa beitt gegn Ísraelum. FLUGSKEYTI HAMAS Kiryat Gat Sderot Ofakim Netivot Ashdod Yavne Gadera Kiryat Malachi Í S R A E L M að ur , t il vi ðm ið un ar E G Y P T A - L A N D G A Z A Miðjarðarhaf 10 km 20 km 40 km Byggðir sem Hamas hefur skotið flugskeytum á Eftir Svein Sigurðsson svs@mbl.is HART er nú lagt að Ísraelum og Hamas-hreyfingunni að fallast á til- lögu Frakka og Egypta um vopnahlé á Gaza. Var ísraelska ríkisstjórnin boðuð til fundar í gær um tillöguna en einnig um það hvort enn ætti að herða hernaðinn á Gazasvæðinu. Margt bendir þó til, að Ísraelar séu að tapa áróðursstríðinu. Sæta þeir nú alþjóðlegri fordæmingu vegna dauða um 40 manna í skólabyggingu á Gaza og alþjóðleg hjálparsamtök hafa hvatt Evrópuríkin til að endur- skoða samband sitt við Ísrael. Condoleezza Rice, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, hefur tekið vel í vopnahléstillöguna hver svo sem afstaða hennar og Bandaríkjastjórn- ar verður í öryggisráðinu. Gabriela Shalev, sendiherra Ísraels hjá SÞ, sagði það eitt um tillöguna, að hún yrði skoðuð „gaumgæfilega“ en jafn- vel þótt Ísraelar féllust á tillöguna, er talið ólíklegt, að Hamas gerði það fengju Ísraelar að stýra áfram allri neyðaraðstoð, sem flutt er til Gaza. Afdrifarík árás Árás Ísraela á skóla á Gaza og dauði um 40 manna, aðallega óbreyttra borgara, kvenna og barna, sem þar höfðu leitað skjóls, hefur vakið mikla hneykslan. Var skólinn tryggilega merktur Sameinuðu þjóðunum og fulltrúar þeirra höfðu áður gefið Ísraelum upp nákvæma staðsetningu hans. Margir telja, að árásin marki tímamót og nú hafa ríkisstjórnir víða um í fyrsta sinn látið í sér heyra og fordæmt Ísraela harðlega. Benita Ferrero-Waldner, sem fer með sam- skipti við önnur ríki í framkvæmda- stjórn Evrópusambandsins, sagði á fundi með Shimon Peres, forseta Ísraels, í fyrradag, að Ísraelar væru „að eyðileggja ímynd sína“. Undir það hafa ýsmir fjölmiðla- og ímynd- arfræðingar tekið, til dæmis franski sérfræðingurinn Dominique Wolton. Hún segir, að Ísraelar eigi vissulega sín rök en þeir sjái jafnan til þess að drekkja þeim með ofbeldi. Skora á ESB að endurskoða samstarf við Ísrael Ýmsar kunnar hjálparstofnanir hafa sameinast um að skora á Evr- ópusambandið að endurnýja ekki samstarfssamninga við Ísrael eða þar til samið hafi verið um vopnahlé á Gaza og um óhindraðan flutning á matvælum, lyfjum og annarri að- stoð. Daleep Mukarji, yfirmaður sam- takanna Christian Aid í Bretlandi og á Írland sagði, að trúverðugleiki Evrópusambandsins væri í húfi. „Það er með öllu óhugsandi, að Ísraelar séu látnir njóta ýmissa hlunninda næstum eins og hvert annað aðildarríki að Evrópusam- bandinu á sama tíma og þeir virða að vettugi alþjóðasamninga um mann- réttindi og neita að binda enda á of- beldið með samningum,“ segir í yf- irlýsingu frá hjálparsamtökunum, meðal annars Oxfam. „Matvæli eru að ganga til þurrðar, rafmagn og vatn er farið af og skolp- ið flýtur eftir götunum. Að verð- launa þá, sem fyrir þessu standa, er óviðunandi.“ Vilja vopna- hlé án tafar ESB endurskoði samninga við Ísrael AP Mannfall Beðið yfir líkum þeirra, sem létust í skólaárásinni. Í HNOTSKURN » Hamas-hreyfingin hefurverið við völd á Gaza frá því í júní 2007 en allan þann tíma hafa Ísraelar haft svæðið í eins konar herkví og stýrt og tak- markað allan flutning þangað. » Hamas-liðar hafa skotiðflugskeytum á Ísrael og hertu mjög þær árásir snemma á síðasta ári. Þær hafa að vísu aðeins valdið dauða fárra manna en engu að síður verið alvarleg ógn. » Tilgangur Ísraela með inn-rás á Gaza er að binda enda á flugskeytaárásir en líklega mun enn einu sinni koma í ljós að deilan verður ekki leyst á vígvellinum. YFIRMENN hersins í Ástr- alíu óttast, að vegna loftslags- breytinga sé hætta á, að ýmis ríki á Kyrrahafs- svæðinu brotni saman. Það geti síðan kynt undir ólgu og jafnvel styrjöldum. Herinn segir í nýrri skýrslu, að hann verði að búa sig undir að tak- ast á við afleiðingar loftslagsbreyt- inga. Þá er fyrst og fremst átt við hækkandi sjávarborð en það getur leitt til upplausnar í ríkjum, sem eru veikburða fyrir. Herforingjarnir telja, að Ástr- alíumenn verði hugsanlega að senda hermenn til ýmissa landa til að stilla þar til friðar og annast neyðaraðstoð. Kemur þetta fram í dagblaðinu Sydney Morning Her- ald, sem komst yfir skýrsluna, sem stimpluð er trúnaðarmál. Gerir ráð fyrir að „umhverf- isflóttamönnum“ fjölgi „Loftslagsbreytingar og aukið álag á náttúruna af þeim sökum mun hafa alvarlegar afleiðingar víða um heim,“ segir í skýrslunni og er áströlskum stjórnvöldum ráðlagt að búa sig undir stórauk- inn fjölda „umhverfisflóttamanna“. Ástralarnir telja mikla hættu á, að loftslagsbreytingar muni leiða til vopnaviðskipta og ekki aðeins í þriðja heiminum. Í því sambandi er bent á norðurheimskautið en hverfi ísinn að miklu leyti megi bú- ast við mikilli ásókn margra ríkja í auðlindir þar. svs@mbl.is Óttast að loftslagsbreyt- ingar leiði til styrjalda Náttúruhamfarir verða æ tíðari.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.