Morgunblaðið - 06.09.2009, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 06.09.2009, Qupperneq 46
46 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2009 Klettaborg 56, Akureyri Raðhús á tveimur hæðum með bílskúr 134 fm. Verð 30 millj. Hugsanleg skipti á íbúð í rvk. Laust. Myndir á www.gellir.is Hafnastræti 83 – 600 Akureyri Sími: 461 2010 – www.gellir.is Til sölu Tískuverslun Steinunnar Akureyri Rótgróin verslun í miðbæ Akureyrar Húsnæði, lager, innréttingar. Hafnastræti 83 – 600 Akureyri Sími: 461 2010 – www.gellir.is Furugerði v. Álmgerði - sími 588 2030 - fax 588 2033 Lögg. fasteignasali: Sigríður A. Gunnlaugsdóttir SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG STÓRAGERÐI 42-44 Hafin er sala á hágæða þriggja til fimm herbergja íbúðum í nýbyggingu sem staðsett er milli Stóragerðis og Háaleitisbrautar, stutt frá Fossvogsspítala. Húsið er fjórtán íbúða lyftuhús á fjórum hæðum með bílastæðakjallara undir. Afhending er áætluð í júlí til ágúst á næsta ári. Allar íbúðir eru rúmgóðar með sérinngang af svölum sem gegnið er út á frá sérstæðu lyftuhúsi. Tvö baðherbergi eða snyrting og baðherbergi verða í hverri íbúð. Einnig er yfirleitt gert ráð fyrir sér fataherbergi og þvotthúsi inni í íbúð. Traustur verktaki. 8445 Nánari upplýsingar á www.borgir.is HINN 28. ágúst 2009, sam- þykkti Alþingi með 34 (af 63) at- kvæðum ábyrgð ríkissjóðs á nauðgunarsamningi vinstri manna, Steingríms Sigfússonar og Svavars Gestssonar, við félaga okkar í NATO. Ýmsir fyrirvarar voru settir af Alþingi, fyrirvarar sem ég skil ekki, og maðurinn, sem á að borga, skilur ekki. Þessir fyrirvarar skipta mig ekki máli. Ég á ekki að borga, en af- komendur mínir eiga að borga. Ég er ekki ánægður, en Jóhanna Sigurðardóttir er ánægð. Konan, sem hefur talað máli litla manns- ins í áratugi, er ánægð. Hvar eru þeir núna? Hvar eru mennirnir, sem stóðu saman, (all- ir gegn engum) í stóru málum þjóðarinnar, Jón Sigurðsson í sjálfstæðismálinu, Guðmundur Kærnested og sjómenn, Lúðvík Jósepsson, Matthías Bjarnason og Ólafur Jóhannesson í land- helgismálinu. Birtast þeir nú í Steingrími og Jóhönnu? Hvernig verður skrifað um Steingrím og Jóhönnu, þegar saga þjóðarinnar verður skrifuð af sagnfræðingum framtíðarinnar? Hvar eru þeir núna? Heyrist nú ekkert í sjálfskipuðum tals- mönnum þjóðarinnar, sem nauðguðu réttarkerfi lýðveldisins til að hrekja löglega ríkisstjórn frá völdum, Hvar er nú trúbadorinn, sem narraði löghlýðna en vonsvikna borgara niður á Austurvöll til þess að standa við bakið á skríl? Hvar er nú fundarstjórinn úr Háskólabíó, sem notaði vinnu- brögð einræðisherra, þegar hann ákvað, hverjir skyldu hafa mál- frelsi á fundunum og hverjir ekki? Hvar er nú maðurinn, sem fór með gítar upp á Arnarhól til að syngja Davíð og samstarfsmenn hans út úr Seðlabankanum? Hvar er nú „höfundur“ þjóð- arinnar, sem réðist að Geir Haarde þáverandi forsætisráð- herra fyrir utan stjórnarráð lýð- veldisins? Ég hef áður spurt þessara spurninga. Ég spyr enn. Axel Kristjánsson Hvar eru þeir núna? Höfundur er lögmaður. UMRÆÐAN um ræktun ORF Líf- tækni á erfðabreytt- um jurtum utandyra hefur, að mati höf- undar, snúist of lítið um hvaða áhrif hún getur haft á mögu- leika íslenskra fyr- irtækja á að vitna til hreinleika íslenskrar náttúru í sínu mark- aðsstarfi. Þessi pistill er ekki gagnrýni á almenna starfsemi ORF Líftækni, svo því sé haldið til haga. Mín skoðun er sú, að ein aðal- ástæðan fyrir því að banna eigi tilraunir með erfðabreyttar líf- verur utandyra á Íslandi sé mark- aðsleg og tengist vörumerkjunum „Ísland“ og „íslensk náttúra“. Hugtakið „Iceland’s pristine nature“ er í hættu, að mínu mati. Þetta hugtak er óspart notað af fjölmörgum fyrirtækjum í ferða-, heilsu- og matvælageirunum. Einnig er það notað af stjórnvöld- um í samhengi við aukið mik- ilvægi ferðaþjónustu á Íslandi, sbr. greinin „Fixing Iceland“ sem birtist 21. ágúst á Forbes.com. Tilraunaræktun ORF Líftækni gefur tilefni til þess að ætla að neikvæðar tengingar við íslenska náttúru verði algengari í framtíð- inni, því um sérstaklega umdeilt mál er að ræða og slík ræktun víða bönnuð. Mér þykir nokkuð lýsandi hvað þetta mál gæti orðið erfitt við- fangs fyrir íslensk fyrirtæki ef reynt er að svara mögulegri spurningu um hreinleika náttúr- unnar frá erlendum aðila, á ensku. Á því tungumáli munum við þurfa að svara fyrir okkur og því hentar það best fyrir slíka æfingu. Líklegast geta þar til bærir að- ilar komið með trúverðugra svar, en svona gæti ég ímyndað mér að mörg íslensk fyrirtæki reyndu að svara slíkum erindum að utan, kysu þau að verja ræktun ORF Líftækni og þar með vörur sínar í leiðinni: „Yes, Iceland al- lows outdoor rese- arch on genetically modified organisms. However, it has been thoroughly explained to us at [XYZ comp- any] that the genes in question are biologi- cally incapable of spreading into other lifeforms. Further- more, heavy precau- tion is taken in the form of nets and buffer zones so as to ensure that plant material is contained and isolated from the surrounding environment. We are aware of the negative attention this generates. However, there is widespread consensus in the scientific comm- unity on the fact that this type of research does not have any ad- verse effects on the environment. Icelandic nature is clean and I assure you that [XYZ company’s] products are among the purest on the market, and in fact, in the world.“ Það er sama hversu skil- merkilega er svarað. Hinn íslenski viðmælandi er kominn í vörn. Hver er kostnaðurinn fyrir þjóðina við að vera í vörn í svona máli? Það er eitt að halda hreinleika íslenskrar náttúru á lofti. Annað að þurfa að verja hann. Hversu mikið kostar að verja ímynd nátt- úrunnar og hvað kostar það í samanburði við kynningu á henni ósnortinni? Hér þarf að sjálfsögðu að huga að almenningsáliti, en þess konar álit snýst ekki endilega um rök- hyggju. Staðreyndir á bakvið hlutina, í slíkum tilvikum nota bene, geta fljótt orðið aukaatriði. Gera íslenskir ráðamenn sér grein fyrir því, að ekki þarf nema eina grein í ágætlega útbreiddum er- lendum fjölmiðli til að sá þeirri hugmynd í huga markhópa ís- lenskra fyrirtækja, að Íslendingar séu búnir að sleppa jurtum með erfðaefni úr mönnum út í íslenska náttúru og að það muni hugs- anlega hafa ófyrirsjáanlegar af- leiðingar? Erlendir viðskiptavinir geta einfaldlega valið sér aðrar vörur sem eru ekki, að þeirra mati, úr umhverfi þar sem erfðabreyttar lífverur fyrirfinnast. Það er til- hugsunin hjá viðkomandi kaup- endum, en ekki vísindaleg stað- reynd sem skiptir hér höfuðmáli. Það skiptir engu máli hvort um- ræddar jurtir ORF Líftækni séu undir neti, eða að færustu vís- indamenn haldi því fram að þær dreifi sér ekki annað. Yrði útkom- an hagfelld fyrir Íslendinga ef fólk færi að tengja lífverur í náttúru Íslands við mannaprótein, hvort sem slíkar tengingar ættu við rök að styðjast eða ekki? Þó við kysum að banna svona tilraunir eftir fáein ár er ekki víst að við gætum sannfært erlenda neytendur um að umrædd gen hafi ekki „sloppið út“ og muni ekki haldast áfram í lífríkinu, hver sem raunin yrði. Hér er því mögulega í uppsigl- ingu varanlegur skaði á ímynd ís- lenskrar náttúru og þeirra vara sem unnar eru úr henni, í huga út- lendinga. Er hugsanlegt að ákvörðunin um að leyfa þessa ræktun hafi verið tekin útfrá þröngum for- sendum þar sem aðeins var tekið tillit til erfðafræðilegra stað- reynda, en látið vera að íhuga málið útfrá sjónarhóli annarra fræðigreina, svosem markaðs- og hagfræði? Ég vil hvetja ríkisstjórnina til að endurskoða þetta mál á heild- rænan hátt og taka til greina verðmæti þess álits sem útlend- ingar hafa á íslenskri náttúru. Þeir eru nefnilega viðskiptavinir margra, ef ekki allra Íslendinga. Við slíka endurskoðun væri nauðsynlegt að líta til hagsmuna allra þeirra fyrirtækja sem nýta sér íslenska náttúru í markaðs- setningu erlendis. Eftir Kristin Leifsson »Erlendir viðskipta- vinir geta einfald- lega valið sér aðrar vörur sem eru ekki, að þeirra mati, úr umhverfi þar sem erfðabreyttar lífverur fyrirfinnast. Kristinn Leifsson Höfundur er viðskiptafræðingur. Íslensk náttúra sem vöru- merki og tilraunir með það
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.