Morgunblaðið - 06.09.2009, Síða 67

Morgunblaðið - 06.09.2009, Síða 67
Menning 67FÓLK MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2009 OPNUNARMYND Alþjóðlegrar kvikmynda- hátíðar í Reykjavík 2009, RIFF, verður kanadíska verðlaunamyndin Ég drap mömmu mína eða J’ai Tué Ma Mère. Xavier Dolan leikstýrir, framleiðir, skrifar handritið og leikur aðalhlutverkið í þessari mynd. Dolan er aðeins tvítugur og þykir afar hæfi- leikaríkur. Myndin er byggð á hans eigin ævi og fjallar um samband samkynhneigðs unglings, Hu- berts, við móður sína, Chantale. Á sama tíma og gjáin á milli þeirra stækkar ört taka þau að átta sig á því að þótt þau séu sennilega ófær um að búa saman geti þau ekki verið án hvort annars. Fleiri kanadískar Xavier Dolan er kanadískur kvikmyndaleikstjóri og leikari, fæddur árið 1989. Hann byrjaði ungur að leika í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Ég drap mömmu mína er fyrsta mynd hans en hún vakti feiknalega athygli á kvikmyndahátíðinni í Cannes í vor. Þar hlaut hún fyrstu verðlaun í Di- rector’s Fortnight flokknum ásamt því að hafa fengið SACD verðlaunin og C.I.C.A.E. verðlaunin sömuleiðis. Norðurlandafrumsýning myndarinnar verður á RIFF. Opnunarmyndin er fjarri því sú eina frá Kanada sem sýnd verður á RIFF í ár. Að þessu sinni mun hátíðin bjóða upp á mikið úrval nýrra kanadískra mynda, þar á meðal tvær heimildamyndir, en Kan- adamenn standa mjög framarlega í þeirri grein kvikmyndalistar-innar. Kanadískir kvikmyndagerðarmenn og -leikarar hafa leitað suður yfir landamærin til Bandaríkj- anna eftir frægð og frama. Nefna mætti leikstjóra á borð við David Cronenberg, Paul Haggis, Norm- an Jewison og James Cameron. Sá síðastnefndi gerði mest sóttu mynd sögunnar, Titanic. Ég drap mömmu mína á RIFF Mæðgin Úr myndinni Ég drap mömmu mína. RÚMLEGA 830 tónlistarmenn og hljómsveitir hafa nú opnað prófíl og sett tónlist sína í sölu á vefnum gogoyoko.com. Vefurinn er ný tón- listarveita þar sem tónlistarmenn geta komið tónlist sinni á framfæri og í sölu á alþjóðavísu, án milliliða, og verið í beinu sambandi við sína áhangendur. Yfir 7.000 lög eru komin í sölu á vefnum. Að stærstum hluta er um að ræða innlenda listamenn og hljóm- sveitir, enda er gogoyoko.com aðeins opin á Íslandi sem stendur. Erlendir tónlistarmenn og hljómsveitir geta aðeins sótt um aðgang og hafa á síð- ustu mánuðum myndast langir bið- listar. Af þessum listum má ráða að orðspor síðunnar hefur farið hæst í Bandaríkjunum, Danmörku, Sví- þjóð, Bretlandi, Þýskalandi og Kan- ada. Nokkrum listamönnum og hljómsveitum frá þessum svæðum hefur verið hleypt inn á síðuna. Á meðal flytjenda sem gert hafa það gott á vefnum má nefna hljóm- sveitirnar Nolo og Lights on the Highway, og listamennina Egil S. og Hermigervil. Morgunblaðið/hag Egill S. Vinsæll á Gogoyoko. Rúmlega 7.000 lög á Gogoyoko ÍSLENDINGAR geta enn sótt um að taka þátt í Kvikmyndasmiðju RIFF (e. Talent Lab) því umsókn- arfrestur rennur út á morgun, 7. september. Kvikmyndasmiðjan stendur yfir dagana 24.-27. sept. Meðal staðfestra fyrirlesara í smiðjunni er Giorgos Lanthimos, leikstjórinn sem fékk nýverið Un Certain Regard-viðurkenningu á Cannes-kvikmyndahátíðinni fyrir mynd sína Kynodontas, eða Dogto- oth á ensku. Þá mun leikstjórinn Friðrik Þór Friðriksson fjalla um feril sinn í smiðjunni og gefa góð ráð og Baltasar Kormákur mun sýna þátttakendum sviðsmyndina úr nýj- ustu mynd sinni, Vikingr. Kvik- myndaframleiðandinn Sigurjón Sig- hvatsson situr einnig fyrir svörum í svokölluðu „producer’s panel“, pall- borði framleiðenda, auk annarra ís- lenskra kvikmyndaframleiðenda. Þátttakendur fá dagskrána í hendur í byrjun næstu viku en þátt- tökugjald fyrir Íslendinga er 11.000 krónur. Hádegismatur er innifalinn á meðan á smiðjunni stendur og auk þess almennur passi á hátíðina. Frekari upplýsingar eru á riff.is. Hundstönn Úr kvikmyndinni Dogstooth eftir Giorgos Lanthimos. Kvikmynda- smiðjan enn opin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.