SunnudagsMogginn - 13.12.2009, Blaðsíða 24

SunnudagsMogginn - 13.12.2009, Blaðsíða 24
24 13. desember 2009 Íslensk samtímahönnun Höfundur: Elísabet V. Ingv- arsdóttir. Fæst í bókabúð- um. Verð: 4.950 kr. Tinni: Bækur eru alltaf góð jólagjöf og þessi er flott. Tilvalin kaffiborðsbók til að glugga í og fræðast um störf íslenskra hönnuða á síðustu árum. Kristín: Gott yfirlit yfir verk íslenskra samtímahönn- uða innan þessara greina hönnunar. Bókin veitir innsýn í þann faglega grunn sem við búum að, til að byggja á til framtíðar. Skemmtilegt er að sjá fólkið á bak við verkin, hvaðan hönnuðirnir koma og þá víðtæku þekkingu sem hönnuðir landsins búa yfir. Elísabet: Þegar kom að því að velja íslenska hönnun í jólapakk- ann kom fljótlega upp í hugann sú hönnun sem ég hef verið ná- tengd undanfarið ár vegna vinnu við sýninguna Íslensk hönnun 2009, húsgögn, vöruhönnun og arkitektúr og í áframhaldi vinna við bókina Íslensk samtímahönnun sem nýlega kom út. Þar sem jólin eru tími bóka og þessi bók mér kær ákvað ég að nefna hana og um leið að vekja athygli á allri þeirri góðu hönnun sem þar er sýnd og fjallað um án þess að vera að taka eitt fram yfir annað. Grafíska hönnun bókarinnar, verk Harðar Lárussonar, vel ég líka sem dæmi um vandaða íslenska hönnun. Morgunblaðið/Golli Kragi Frá Áróru Eiri Traustadóttur fatahönnuði. Sölustaður: Mýrin. Verð: 16.900 kr. Sigríður: Yndislega fallegir kragar sem gera hvaða flík fallegri. Þú skellir á þig kraga og ert fín og sæt, sama hvað. Elísabet: Á tímum kreppu eru ein- faldar snilldarlausnir mikilvægar. Undanfarið hafa komið fram marg- víslegir fylgihlutir og smáskraut sem auðveldlega geta gert hvers- dagsútlitið sparilegt eða gamla flík sem nýja. Áróra Eir hefur hannað margvíslegt smáskraut og ber þar hæst höfuðskraut og kraga. Krag- arnir hennar Áróru eru án allrar til- gerðar en þó þannig gerðir að eng- inn sem þá ber kemst hjá því að vekja athygli. Margvíslegir mögu- leikar í notkun þeirra segja manni að þetta sé lausnin. Rifgatað dagatal Hönnuðir: Snæfríð Þorsteins og Hildigunnur Gunnarsdóttir, grafískir hönn- uðir. Sölustaður: Kraum. Verð 3.500 kr. Kristín: Einfalt og skemmtilegt rifdagatal sem færir mann inn í núið. Afstæði tímans birtist í frábærri hönnun sem hægt er að leika sér með. Bókamerki frá Heima Hönnuðir: Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir vöru- hönnuður og Sigurður Þorsteinsson iðnhönnuður. Sjá sölustaði á www.heima.eu. Verð: 1.500 kr. Elísabet: Ég tel það gefa bókagjöfunum aukið gildi að láta fylgja með bókamerki frá Heima sem er samvinnuverkefni hönnuðanna Guð- rúnar Lilju Gunnlaugsdóttur og Sigurðar Þorsteinssonar. Innan Heima-línunnar er fjöldi áhugaverðra smágjafa – falleg, sannfærandi vísun í íslenskt handverk og íslenska náttúru. Varan pakkast flatt í handhægar umbúðir sem létt er að setja í umslag og tilvalið að senda vinum og ættingjum erlendis. Bókamerkin, litlir renningar, eru úr götuðu stáli með mynstri, annars vegar byggt á hekli; „heklað stál“, og fer það í bókina Íslensk samtímahönnun og hins vegar á út- skurði, „tálgað stál“, og fer það í Bókina um Manfreð. Geirfuglskertið Hönnuðir: Snæfríð Þor- steins og Hildigunnur Gunnarsdóttir, grafískir hönnuðir. Sölustaður: 871+- Landnámssýning. Verð: 7.900 kr. Kristján: „… í það minnsta kerti og spil.“ Klassísk jólagjöf - með húmor. Dalvíkursleðinn Hönn- uður: Dagur Óskarsson vöruhönnuður. Sölu- staðir: birkiland.com, Minjasafninu Akureyri og hjá hönnuði (dagurosk- arsson.com). Verð: 12.900 kr. Tinni: Sleðabrekkurnar hrökkva í gírinn á næstu dögum og því eins gott að vera vel græjaður. Mér sýnist Dalvíkursleð- inn vera nokkuð hrað- skreiður og langar að prófa. Sigríður: Hinn fullkomni sleði, fallegur og gæða- legur. Alveg ábyggilega skemmtilegt að renna sér á þessum í brekkunni á Miklatúni. Kristín: Frábær stemning í jólapakkann fyrir börn á öllum aldri. Íslensk hönn- un, íslensk framleiðsla! H önnunarmiðstöðin leitaði ráða hjá fimm ein- staklingum sem eru annálaðir fyrir góðan smekk: Tinna Sveinssyni blaðamanni, Kristjáni Eggertssyni arkitekt, Sigríði Thorlacius söng- konu, Kristínu Gunnarsdóttur, verkefnastjóra hjá Hönn- unarmiðstöð Íslands, og Elísabetu Ingvarsdóttur hönn- unarsagnfræðingi. Í kjölfarið var búinn til listi, fjölbreyttur og jólalegur, með ellefu hlutum. Íslensk hönnun hefur sótt í sig veðrið undanfarin misseri og samfara því hefur áhugi landsmanna á fallegum hönn- unargripum vaxið til muna. „Ég held að það sé alveg klárt að Íslendingar eru að verða meðvitaðri um íslenska hönnun og að kaupa íslenska hluti,“ segir Halla Helgadóttir, fram- kvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands. „Undanfarið hafa verið að koma fram gríðarmargir íslenskir hönnuðir sem búa til fallega og áhugaverða hluti. Íslendingar hafa ekki gefið þeim sérstakan gaum hingað til en við erum að verða meðvitaðri um það sem við eigum,“ bætir hún við. Aðspurð segist hún ekki vera í nokkrum vafa um að íslensk hönnun verði vinsæl jólagjöf í ár. „Ég efast ekki um það. Eins og sést á listanum er úrvalið afar fjölbreytt.“ Falleg íslensk hönnun í Sunnudagsmogginn bað Hönnunarmiðstöð Íslands um aðstoð við að finna skemmtilega hönnunargripi á undir 20 þúsund krónum í jólapakkann. Eina skilyrðið var að gripirnir yrðu að komast undir jólatréð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.