Morgunblaðið - 22.02.2010, Page 7
Íþróttir 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2010
„ÞETTA var ekkert alvarlegt. Ég fékk högg
á lærið og verð frá í nokkra daga, reikna
ekki með að spila á miðvikudaginn en verð
vonandi orðinn klár um næstu helgi,“ sagði
Brynjar Björn Gunnarsson, leikmaður Read-
ing, eftir viðureign liðsins við Blackpool á
laugardaginn. Endi var þar bundinn á sig-
urgöngu Reading, sem hafði unnið fjóra
leiki í röð í ensku fyrstu deildinni.
„Já þetta var búið að ganga ansi vel hjá
okkur í síðustu leikjum. Við unnum fjóra
leiki í röð og komumst loksins af fallsvæðinu
þannig að brúnin er aðeins farin að lyftast á
mannskapnum þó svo menn geri sér grein
fyrir að það er mikið eftir enn af mótinu.
Við höfum rætt að það þurfi svona 50 stig til
að ná að halda sér í deildinni og það vantar
talsvert upp á það,“ sagði Brynjar en Read-
ing er með 35 stig í 20. sæti deildarinnar en
þar eru 24 lið.
Er ekki á förum frá Reading
Brynjar Björn var um tíma í vetur að
hugsa sér til hreyfings, enda fékk hann ekki
mikið að spila. Síðan var skipt um knatt-
spyrnustjóra og þá breyttist allt. „Já, já,
svona gerast hlutirnir í þessu starfi. Núna
hef ég fengið að spila mikið og það er auð-
vitað það sem maður vill þannig að ég er
ekkert að pakka niður. Eins og staðan er
núna þá verð ég hér til vorsins og við ræð-
um síðan málin eftir leiktíðina,“ sagði Brynj-
ar Björn, sem fór út af á 32. mínútu leiksins
á laugardaginn og Gylfi Þór Sigurðsson tók
stöðu hans.
Ívar Ingimarsson hefur ekki verið í liði
Reading í síðustu leikjum. „Það er verið að
hvíla Ívar. Hann leni í hnéaðgerð í fyrra og
þetta eru margir leikir og mikið álag þannig
að það var ákveðið að hvíla hann þó svo
hann hafi ekki fundið neitt til í hnénu,“
sagði Brynjar Björn. skuli@mbl.is
Brúnin aðeins farin að lyftast á mannskapnum
Meiddist Brynjar Björn fór meiddur af velli.
Eftir Skúla Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
„ÞETTA var afar mikilvægur sigur
og það er þægilegt að vera með fjög-
urra stiga forystu þegar ellefu leikir
eru eftir,“ sagði Carlo Ancelotti,
knattspyrnustjóri Chelsea, eftir sig-
urinn. „Leikurinn var erfiður og það
var ekki auðvelt að spila fótbolta, en
einbeitingin var góð og menn tilbúnir
að berjast fyrir dýrmætum sigri. Eft-
ir að við sáum hvernig fór hjá Man-
chester United tvíefldumst við og
fundum að þetta væri mikilvægur
tímapunktur til að landa sigri,“ sagði
stjórinn.
Eins og oft vill verða þegar lið sem
eru ofarlega í deildinni mæta liðum
úr neðsta hlutanum gefa lakari liðin
allt í leikinn og sú varð raunin á laug-
ardaginn. Úlfarnir komu gríðarlega
einbeittir til leiks og efsta lið deild-
arinnar getur þakkað Petr Cech að
það fór með öll þrjú stigin heim til
Lundúna. Chech bjargaði glæsilega í
tvígang þegar Adlene Guediora
komst í flott færi, en Cech náði að
verja. Síðan átti hann flotta stoðsend-
ingu þegar Drogba skoraði síðara
mark sitt, sparkaði langt fram og
beint á Drogba sem skoraði af ör-
yggi.
„Didier spilaði mjög vel, ekki bara
vegna þess að hann skoraði bæði
mörkin heldur vegna þess hve mikill
leiðtogi hann er á vellinum. Vinnu-
semi hans er mikil. En Petr var mað-
ur leiksins. Hann bjargaði okkur
þegar staðan var 1:0 og átti síðan frá-
bæra sendingu í öðru marki okkar.
Þeir tveir voru frábærir og sigurinn
flottur,“ sagði Ancelotti eftir leikinn.
Mick McCarthy, knattspyrnustjóri
Úlfanna, var ánæður með sína menn.
„Chelsea er með forystu í deildinni
og hefur spilað vel í vetur en við náð-
um að standa þeim jafnfætis í öllu í
dag – öllu nema koma boltanum
framhjá Petr Cech. Munurinn á lið-
unum lá í því,“ sagði McCarthy.
Tékkinn hefur staðið í marki
Chelsea meira og minna frá því hann
kom til liðsins 2004. Hann setti met í
úrvalsdeildinni hinn 5. mars 2005 en
þá hafði hann haldið marki sínu
hreinu í 1.025 mínútur, það met hefur
reyndar Edwin van der Sar bætt.
Cech var í marki Chelsea þegar liðið
varð meistari 2006 og þá fékk liðið að-
eins á sig fimmtán mörk í deildinni.
Það er met.
Í október 2006 meiddist Cech illa
þegar hann lenti í samstuði við
Stephen Hunt, leikmann Reading.
Hunt fór á fyrstu mínútu leiksins
með hnéð í höfuð Cech sem varð að
gangast undir aðgerð á höfði vegna
meiðslanna. Síðan þá leikur hann
með sérstaka hlíf um höfuðið, sem
búin er til í Canterbury á Nýja-
Sjálandi.
„Þetta brot var hræðilegt og Cech
er heppinn að vera á lífi,“ sagði José
Mourinho, sem var knattspyrnustjóri
Chelsea á þessum árum, en mikið var
fjallað um þetta mál í kjölfarið.
Cech kom aftur inn í lið Chelsea
20. janúar 2007 þegar liðið mætti Liv-
erpool og tapaði 2:0.
Cech bjargaði Chelsea
Tékkinn varði í tvígang meistaralega gegn Úlfunum Átti síðan fína
stoðsendingu á Didier Drogba þegar hann gerði annað mark sitt í leiknum
Reuters
Góður Tékkneski markvörðurinn Petr Cech átti flottan leik í marki Chelsea gegn Wolves um helgina.
Í HNOTSKURN
»Petr Cech fæddist í Tékk-landi 1982 og er því 27 ára
gamall.
»Claudio Ranieri, þáver-andi stjóri hjá Chelsea,
keypti hann árið 2004 frá
franska liðinu Rennes þar sem
hann hafði verið í tvö ár.
»Carlo Cudicini var aðal-markvörður Chelsea á
þessum tíma en meiddist á oln-
boga fyrir tímabilið og Cech
lék sinn fyrsta leik á móti
Manchester United og hélt
hreinu í 1:0-sigri Lundúnaliðs-
ins.
Tékkinn Petr Cech var hetja Chelsea
á laugardaginn þegar efsta lið deild-
arinnar lagði Wolves, 2:0, á útivelli.
Efsta lið deildarinnar lenti nokkrum
sinnum í kröppum dansi á móti Úlf-
unum, sem eru neðarlega í töflunni,
en Cech var vandanum vaxinn í mark-
inu. Þá átti Didier Drogba einnig
flottan leik og gerði bæði mörk Lund-
únaliðsins. Chelsea er nú með fjög-
urra stiga forystu á Manchester Unit-
ed sem tapaði fyrir Everton í Liver-
pool. Arsenal kemur síðan tveimur
stigum á eftir United í þriðja sæti eft-
ir 2:0-sigur á Sunderland.
Hollenskimarkvörð-
urinn Edwin van
der Sar, sem ver
mark Englands-
meistara Man-
chester United,
staðfesti um
helgina að hann
væri tilbúinn til
að skrifa undir nýjan eins árs samn-
ing við félagið. Markvörðurinn
snjalli er 39 ára gamall en í mjög
góðu líkamlegu standi. Van der Sar
verður fertugur í október en í ár eru
20 ár liðin frá því hann kom inn í lið
Ajax þar sem hann lék í áratug. Síð-
an lék hann í tvö ár með Juventus,
fjögur hjá Fulham og hjá United
síðan 2001. Hann á að baki 130
landsleiki fyrir Holland sem er
landsleikjamet þar í landi.
HermannHreið-
arsson stóð í
vörn Portsmouth
þegar liðið tapaði
á heimavelli fyrir
Stoke, 1:2, og eru
Hermann og fé-
lagar því enn ein-
ir og yfirgefnir á
botni deildarinnar. Sigurmark Stoke
kom í uppbótartíma. Áður hafði Ro-
bert Huth, þýski miðvörðurinn hjá
Stoke, jafnað metin með góðum
skalla eftir hornspyrnu á 50. mínútu
leiksins.
Forráðamenn Portsmouth fenguekki góðar fréttir um helgina
þegar stjórn ensku úrvalsdeild-
arinnar hafnaði beiðni félagsins um
að fá að selja leikmenn utan fé-
lagskiptagluggans. Félagið á í mikl-
um fjárhagsvandræðum og vonaðist
til að geta létt aðeins á þeim með því
að selja leikmenn, en nú er það ekki
lengur inni í myndinni. Gjald-
þrotakrafa breskra skattyfirvalda
veður tekin fyrir í hæstarétti 1.
mars.
Spánski sókn-armaðurinn
Fernando Torres
kom á nýjan leik
inn í leik-
mannahóp Liver-
pool í gær þegar
liðið gerði marka-
laust jafntefli við
Manchester City.
Torres, sem hefur verið frá í nokk-
urn tíma, kom inn á fyrir Ryan Ba-
bel á 75. mínútu og fékk gult spjald
á lokamínútum leiksins. Alls fengu
sex leikmenn Liverpool að líta gula
spjaldið í leiknum, en aðeins einn
liðsmaður City.
Fréttir bárust af því um helginaað nokkurrar óánægju gætti í
herbúðum Manchester City. Í lið-
inni viku lentu Craig Bellamy og
Roberto Mancini, stjóri liðsins, í
rifrildi og segir Mail on Sunday um
helgina að margir leikmenn séu
óánægðir með æfingar ítalska stjór-
ans, sem séu bæði langar og á slæm-
um tíma.
Fólk sport@mbl.is
RÚSSNESKI sóknarmaðurinn Roman Pavlyuc-
henko var hetja Tottenham þegar liðið lagði
Wigan 3:0 á útivelli í síðasta leik deildarinnar í
gær. Jermain Defoe kom liðinu yfir í fyrri hálf-
leik en næsta mark lét á sér standa og kom ekki
fyrr en Pavlyuchenko var skipt inn á fyrir Defoe
á 73. mínútu. Rússinn náði að setja tvö mörk á
þeim sautján mínútum sem hann var inná.
Með sigrinum stökk Tottenham upp í hið vin-
sæla fjórða sæti deildarinnar með 46 stig líkt og
Manchester City sem gerði markalaust jafntefli
við Liverpool fyrr í gær. Tottenham er með hag-
stæðari markamun og er því í fjórða sæti en
Liverpool kemur í sjöunda sæti, stigi á eftir
Spurs og City. Aston Villa er
með 45 stig líkt og Liverpool
eftir 5:2 sigur á Burnley í
gær. Eiður Smári Guðjohnsen
var á varamannabekk Totten-
ham og kom ekkert við sögu í
leiknum.
Leikur City og Liverpool
var ekki eins skemmtilegur og
búast hefði mátt við fyr-
irfram. Liðin eru í mikilli bar-
áttu um fjórða sæti deild-
arinnar, síðasta sætið sem veitir rétt til að leika
í Meistaradeildinni að ári. Bæði Rafa Benítez,
stjóri Liverpool, og Roberto Mancini, knatt-
spyrnustjóri City, leggja mikla áherslu á að ná
Meistaradeildarsæti og kannski bar leikurinn í
gær einhvern keim af því.
„Við lögðum okkur fram og við stjórnuðum
leiknum. Mér fannst við geta unnið, en reyndar
hefðum við alveg getað tapað þannig að trúlega
er jafntefli sanngjarnt,“ sagði Benítez eftir leik-
inn og Mancini hafði þetta um leikinn að segja:
„Ég er alltaf óhress þegar ég tapa, en þetta var
erfiður leikur og ætli úrslitin hafi bara ekki ver-
ið sanngjörn. Bæði lið vörðust vel og það var
gott að koma í veg fyrir að Liverpool skapaði
sér einhver hættuleg færi.“ skuli@mbl.is
Öflugur varamaður hjá Tottenham
Rússinn Pavlyuchenko kom inn á 17 mínútum fyrir leikslok og gerði tvö mörk
Roman
Pavlyuchen