Morgunblaðið - 19.03.2010, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ | 23
L
jótu hálfvitarnir eru vinsæl hljóm-
sveit með níu hressum piltum sem
flestir geta leikið á ýmis hljóðfæri.
Þeir hafa átt allmarga smelli á liðn-
um árum og verið duglegir að
vinna í spurningakeppni. Oddur Bjarni seg-
ir að þeir félagar hafi verið beðnir að leika í
brúðkaupum en þó ekki mörgum og ekki
eftir að kreppan skall á. „Við erum flókið
band og það þarf breið bök til að ráða við
það að fá okkur til að leika í brúðkaupi,“
segir Oddur Bjarni og viðurkennir að lík-
legast sé það svolítið 2007, eins og sagt er.
„Í flestum tilfellum sem við höfum spilað í
brúðkaupum er það vegna þess að við
þekkjum viðkomandi, það eru einhver vina-
tengsl. Við gefum okkur hins vegar út fyrir
að spila í brúðkaupum ef fólk vill ráða okk-
ur og jafnframt getum við tekið að okkur
veislustjórn og þess háttar. Það á reyndar
ekkert bara við í brúðkaupum því við leik-
um mikið í alls konur veislum, árshátíðum
og á stórum hátíðum.“
Ætlar að gifta félaga sinn
Þegar Oddur Bjarni er spurður hvort
margir meðlima hljómsveitarinnar séu
kvæntir hlær hann dátt en segir síðan að
það sé aðeins einn þeirra. „Það er Sævar
Sigurgeirsson og hann var búinn að gifta
sig þegar við mynduðum hljómsveitina í
þeirri mynd sem hún er núna. Aðrir í
hljómsveitinni eru ókvæntir en ég er með
þá ábyrgð á mínum herðum að Ármann
Guðmundsson hefur heitið því að hann gift-
ist ekki nema ég útskrifist og fái brauð. Ég
tek BA-próf í vor og þá á ég tvö ár eftir í
embættispróf. Þegar þeim áfanga verður
náð ætla ég að gifta heil ósköp af fólki,“
segir hann.
Ljótu hálfvitarnir eru með hressilega
heimasíðu og þar kemur fram að Oddur
Bjarni sé sviðsorkubolti, snjall og afkasta-
mikill lagahöfundur. Með námi hefur hann
auk þess að vera í Ljótu hálfvitunum leik-
stýrt og skrifað lög og handrit.
Oddur Bjarni hefur verið veislustjóri í
mörgum veislum og þegar hann er spurður
hvað það sé sem brúðhjón sækist fyrst og
fremst eftir svarar hann: „Í flestum til-
fellum hafa þetta verið vinmörg pör sem
eiga hugmyndaríka skemmtikrafta að vin-
um. Hlutverk okkar Margrétar hefur því
verið að vera umferðarstjórnendur. Við höf-
um gætt þess að allt gangi vel upp og að
gestir fái ekki blöðrur á rassinn af hreyf-
ingarleysi. Veislan á að vera skemmtileg.
Brúðkaup eru á persónulegum nótum og
fólk kemur til að samgleðjast brúðhjón-
unum.“
Ný plata í smíðum
Ljótu hálfvitarnir hafa nóg að gera við
tónleikahald víða um landið. Dagskráin
þeirra byggist á fjölbreyttu lagaúrvali, sum
lögin eru byggð upp sem skemmtiatriði en
þegar fer að líða á kvöldið keyra þeir á
stemningslögum og stuði. Hljómsveitin er
ekki ballhljómsveit þar sem er dansað en
Oddur Bjarni segir að gestir megi dansa
kjósi þeir svo.
Hann lítur heldur ekki svo á að hljóm-
sveitin sé með brúðarlög eða rómantískar
ballöður á sínum snærum þótt hún hafi flutt
eigið lag sem heitir Brúðkaup. „Það var
einu sinni spilað í brúðkaupi og vakti mikla
undrun vegna þess að það hefur misfallegan
endi. Það mun sennilega aldrei fara á
plötu,“ segir Oddur Bjarni sem bætir við að
annars séu þeir félagarnir mjög vel skipu-
lagðir þótt þeir séu á kafi í mörgum hlutum.
„Við æfum tvisvar í viku og förum fljótlega
í vinnubúðir í plötuupptöku.“
elal@simnet.is
Ljótur hálfviti ætlar að verða prestur
Morgunblaðið/Golli
Ljótu hálfvitarnir Oddur Bjarni Þorkelsson, einn meðlima Ljótu hálfvitanna hefur tekið að
sér að stýra brúðkaupum ásamt konu sinni, Margréti Sverrisdóttur leikkonu.
Oddur Bjarni Þorkelsson, guð-
fræðinemi og einn meðlima hljóm-
sveitarinnar Ljótu hálfvitanna, er
liðtækur veislustjóri og kann að
skemmta fólki í brúðkaupum.
Hann og unnusta hans, Margrét
Sverrisdóttir leikkona, hafa tekið
að sér að stýra brúðkaupum.
Ég tek BA-próf í vor og þá á
ég tvö ár eftir í embættis-
próf. Þegar þeim áfanga
verður náð ætla ég að gifta
heil ósköp af fólki.
Nánari upplýsingar í síma 515 4020 eða www.BYKO.is
LAUSNFRÁBÆR
FYRIR BRÚÐKAUPIÐ
Samkomutjöld
- Forrétta-& kökudiskar
- Aðalréttadiskar
- Súpudiskar
- Kaffibollar
- Undirskálar
- Gafflar
- Hnífar
- Skeiðar
- Teskeiðar
- Hvítvíns-
& rauðvínsglös
- Bjórglös
- Kampavínsglös,
longdrinkglös,
vatnsglös
o. fl.
AUÐVELT AÐ LEIGJA FYRIR VEISLUNA!
Borð og stólar
Borðbúnaður, stólar
og borð í miklu úrvali!