Ný saga - 01.01.1989, Page 7

Ný saga - 01.01.1989, Page 7
FRELSI ER EKKI SAMA OG FRJALSHYGGJA Þingvallafundir mörkuðu oft stefnuna I baráttunni fyrir auknu sjálfstæði þjóðarinnar. Hugmyndir þaðan birtust síðar í lagasetningum Alþingis. markmið og hún yrði best tryggð ef einstaklingurinn fengi notið hæfileika sinna eins og honum sjálfum þætti best henta. í þeirra augum var ríkið ekki stigveldi fjölskyldna, held- ur eins konar hlutafélag. Hlut- verk ríkisins var fyrst og fremst að sjá til þess að einstaklingarn- ir færu að settum reglum og um leið að tryggja að allir nytu sörnu lagalegu réttinda. Frelsi frjálshyggjunnar var því aðeins ein gerð frelsis. Lýðfrelsi eða þjóðfrelsi var ekki endilega á stefnuskrá þeirra. Flestir frjáls- hyggjumenn aðhylltust ein- hvers konar fulltrúalýðræði, enda var ríkið tilkomið með samningi manna á meðal en ekki af guðlegum uppruna. Engin eining ríkti þó um hvaða form lýðræðið skyldi taka. Enski heimspekingurinn John Locke taldi hlutverk ríkisins fyrst og fremst að varðveita eignarréttinn. Hvaða rétt áttu öreigar þá til áhrifa um aðgerð- ir ríkisins? Þar að auki óttuðust margir frjálshyggjumenn að ef eignalaus lýðurinn fengi rétt til jafns á við hinn „betri“ hluta þjóðarinnar, þá myndi hann í krafti fjölda síns geta afnumið eignarréttinn og komið á félags- legu jafnrétti. Kosningaréttur var af þessum sökum oft bund- inn við eignamenn - hluthafa í ríkinu. Álirif frjálshyggjunnar á evrópskt stjórnkerfi eru óum- deilanleg. Hugmyndir hennar voru vopn í höndum þeirra sem vildu brjóta niður einveldi og síðustu leifar lénsveldis. Frelsi einstaklinga til athafna, skoðanafrelsi, málfrelsi, jafn- rétti fyrir lögum o.s.frv., eru einnig réttindi sem flestir meta mikils. Hins vegar hefur frjáls- hyggjan alls ekki stuðlað að félagslegu jafnrétti, enda er það ekki markmið hennar. Frjáls- hyggjumenn telja það ófram- kvæmanlegt í raun, ekki síst þar sem því verði ekki komið á nenta með víðtækum tak- mörkunum á einstaklingsfrels- inu. Þetta hefur frá uppliafi vak- ið j)á óhjákvæmilegu spurningu fyrir hvern frelsið sé skapað. Hvernig getur einstaklingurinn talist frjáls nema hann hafi raun- verulegt val? Og hvaða skilyrði ber einstaklingnum að uppfylla til þess að hann geti talist fær um, eða haft áhuga á, að njóta frelsis? Eins og heimspekingur- inn Isaiah Berlin bendir á er það að „bjóða mönnum sem eru hálfnaktir, ólæsir, vannærð- ir og sjúkir pólitísk réttindi eða vernd gegn íhlutun ríkisins, að liæðast að aðstæðum þeirra. Þeir þarfnast læknishjálpar og Freisi frjálshyggjunnar var aðeins ein gerð frelsis. 5
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.