Ný saga - 01.01.1989, Page 51

Ný saga - 01.01.1989, Page 51
Ætli það sé betra að vera hérna megin eða hinum megin við hliðið? Svona spurningu verður hver íslendingur að svara sjálfur, ekki láta fræðingunum það eftir. vegna þess að þeir vona að morgundagurinn verði betri, að allt stefni í rétta átt, að allir hlut- ir hafi tilhneigingu til að fara vel og í „fyllingu tímans“ renni nýr dagur. Hvaða dagur skiptir ekki máli. Vonin er fyrirbæri sem maðurinn verður að fylla upp í á einhvern hátt. En það er vonin sem er forsenda fyrir lífi hans. Án hennar lifir hann ekki. Kannski má líta svo á að nost- algían sé afsprengi gyðing-krist- innar söguvitundar sem byggist á þeirri hugsun að ferill sög- unnar sé hvorki sífellt að end- urtaka sig né gangi í hringi í hið óendanlega. Sagan skiptir máli en hún heldur sífellt áfram í átt að telos sögunnar eða mark- miði sínu, þessa heims eða ann- ars: fyrirheitna landinu, guðs- ríki á hininum, endurkomunni. Spurning dagsins er meðal ann- ars spurning um telos sögunn- ar. Hætt er við að framtíðin vekji mönnum ugg og ótta og hafi í för með sér uppgjöf hafi þeir enga vitund um telos hennar. Vonin er leyndardómsfullt hugtak sem erfitt er að henda reiður á. Það verður ekki skoð- að með neinum tækjum eða tólum, samt vita allir að án von- ar er ekkert líf. Hún er hreyfiafl í lífi einstaklinga og þjóða. Án vonar er maðurinn eins og kolanámumaður sem er lokað- ur inni í dimmum göngunum og finnur enga leið út. Vonin er leið út og áfram. En leið vonar- innar er jafnframt ávallt leið inn í óvissuna því að framtíðin er ævinlega óviss. En þó ekki óviss í þeim skilningi að hún komi manninum ekkert við, maður- inn eigi bara að bíða og vona. Þvert á móti er vonin hvati að öllu hans starfi. Þó ekki þannig að hann geti tjúið hana til og gert framtíðina að veruleika með striti sínu einu saman. Framtíðin kemur að sönnu án tilverknaðar manna. Og hún er þegar komin, „núið“ er horfið á vit hins liðna um leið og orðinu sleppir. Vonin er hvorki aðgerðar- leysi né strit við að þvinga fram nýjar aðstæður úr gömlum efni- við heldur eins og sagt hefur verið „hún er lík tígrisdýri sem liggur makindalega en stekkur þá fyrst þegar hið rétta andartak rennur upp.“ Að vona felst í því að vera í viðbragðsstöðu og þekkja hið nýja þegar það kem- ur hljóðlega og hjálpa því til að fæðast. Okkur íslendingum lætur best að bíða og vona aðgerðar- lítil og leita á vit sagna og sögu til afþreyingar - ekki til þess að draga lærdóm af hinu liðna eða til þess að rekja orsakir sam- tímaviðburða eða þróun ein- stakra þátta þjóðlífs og menn- ingar. Við erum happdrættis- þjóð sem dýrkum lukkumiða, lottó og happaþrennur. Hvað eigum við að vera að hafa áhyggjur af framtíðinni? Til hvers eigum við að blanda okk- ur í gang sögunnar? Ráða ekki stjórnmálamenn öllu? Hugsa ekki sérfræðingar okkar þannig, eru líffræðingar, haf- fræðingar, efnafræðingar, stjórnmálafræðingar og ótal aðrir fræðingar ekki einmitt aldir upp í því að tjá sig ekki? Segja ekki sína skoðun, hafa ekki áhrif á gang mála, ganga ekki fram fyrir skjöldu í um- hverfismálum svo dæmi sé tekið? Kannski eiga grasrótar- hreyfingar oft svo erfitt upp- dráttar hér sem annars staðar þrátt fyrir nægar málefnalegar upplýsingar vegna þess að sér- fræðingana vantar, þeir sitja í makindum heima hjá sér og hlæja að stjórnmálamönnunum. Þeir einir huga að framtíð- inni sem vænta sér einhvers af henni og skipuleggja með hana í huga. Hinir ábyrgu. Hvar er þeirra að leita? Meðal hags- munahópanna, bænda, útgerð- armanna? Eða meðal sumra stjórnmálamanna? í grasrótar- hreyfingum, alþýðuhreyfingum nútímans? Eina hugsjónin að því er von- ina varðar okkar á meðal er það að vera bara bjartsýnn. En bjart- sýnishugtakið er yfirborðsliug- tak án inntaks; það felur í sér skipun um að láta eins og allt sé í lagi þótt innra fyrir sé engin forsenda finnanleg til þess að hlýðnast slíkri skipun. Vonin er 49
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.